Ský - 01.12.2001, Blaðsíða 12
FYRST & FREM5T = HEIMURINN
BERNARD REYNER GERÐUR ATVINNULAUS
Til Englands koma 13 milljón feröamenn á ári og níu af hverjum tíu
fara ekki út fyrir höfuðstaðinn. Nú hefur borgarstjórn London
ákveðið að gera Bernard Reyner atvinnulausan, en hann hefur haft
það starf á annan áratug að selja ferðamönnum fuglafóður á Trafal-
gartorgi. Á torginu eru 40.000 dúfur sem samkvæmt ályktun ráðs-
ins eru meira til óþurftar en gleði. ps
Á VÖLLINN
Stærsti knattspyrnuvöllur heims er Maracaná í Rio de Janeiro og
tekur hann 130.000 manns í sæti, eða um það bil alla íbúa
Reykjavíkur og Kópavogs. Þegar hann var byggður fyrir HM í
Brasilíu árið 1950 tók hann 220.000 í stæði. Það eru einungis
tveir vellir í Evrópu sem rúma yfir hundrað þúsund árhorfendur og
eru þeir báðir á Spáni. Sá stærri er Nou Camp í Barcelona en
hann tekur 115.000 og Santiago Bernabeu, leikvangur Real Ma-
drid, en hann tekur 108.000. Næststærstu vellirnir eru á Ítalíu,
Stadio Olimpico í Róm, heimavöllur Lazio og Roma, en hann tek-
ur 86.500 og leikvangur Inter og AC Milan sem rúmar 83.500.
Stærsti völlur Bretlands er Old Trafford í Manchester en hann
tekur 68.000. Til samanburðar má geta þess að stærsti völlur ís-
lands, Laugardalsvöllur, tekur 7.076 í sæti. ps
LEIKHÚ5 si
BOÐORÐIN 9 Nýtt leikrit eftir Ólaf Hauk Símonarson. Segir frá brúðkaupi aldarinnar. Æskuástirnar Andri og Birna ganga í það heilaga með tilheyrandi glæsibrag, tónlist, gleði, söng og dansi. Undir yfirboröinu kraumar fortíöin og möguleg framtíð, en kannski er ekki allt sem sýnist. í aöalhlutverkunum eru Björn Ingi Hilmarsson og Jóhanna Vigdís Arnardóttir en auk þeirra koma m.a. við sögu Gísli Örn Garðarsson, Halldóra Geirharðsdóttir, Eggert Þor- leifsson, Edda Björg Eyjólfsdóttir og Jóhann G. Jóhannsson. Leikstjóri Viðar Eggertsson. Sýnt I Borgarleikhúsinu. GESTURINN Vínarborg 1938 nasistar hafa tekið völdin í Austurríki. Sigmund Freud er bjartsýnn og vill enn ekki yfirgefa landið sitt, en kvöld eitt er Anna dóttir hans, tekin til yfirheyrslu af Gestapó. Freud er ótta- sleginn og vonlaus þegar hann fær óvænta og furðulega heimsókn. Maður í kjólfötum, kaldhæðinn og léttur kemur inn um gluggann og heldur furðu- legustu ræður. Hver er hann? Vitfirringur? Galdramaður? Eða er hann sá sem hann segist vera: Sjálfur Guð? Margverðlaunað verk eftir Frakkann Eric-Emmanuel Schmitt. Gunnar Eyjólfsson leikur Freud en gesturinn óboðni er Ingvar E. Sigurösson. Jóna GuðrúnJónsdóttir og Kristján Franklín Magnús leika einnig í sýningunni. Leikstjóri Þór Tulinius. Sýnt í Borgarleikhúsinu.
CYRANO Hann býr yfir leiftrandi gáfum, er talandi skáld og vígfimastur allra í París. Hann er hetja sem ekkert fær stöðvað nema... nefið! Þetta risastóra nef sem meinar honum að ná ástum hinnar fögru Roxönnu. Þetta er mann- mörg og viöamikil sýning. Það er Stefán Karl Stefánsson sem setur upp gervinefið og leikur titilhlutverkið en Nanna Kristín Magnúsdóttir leikur ást- ina í lífi Cyrano, meðal annarra leikara eru Rúnar Freyr Gíslason, Sigurður Sigurjónsson, Edda Arnljótsdóttir, Þórunn Lárusdóttir, Valdimar Örn Flygenring, Linda Ásgeirsdóttir og Hjalti Rögnvaldsson. Leikstjóri Hilmar Jónsson. Sýnt í Þjóðleikhúsinu. SLAVAR Kraftmikið, skemmtilegt, ögrandi og nýstárlegt leikrit eftir Tony Kushner, sem hefur meðal annars fengið Pulitzer-verðlaunin, og Tony-verð- launin tvívegis. Yrkisefnið er fall Sovétríkjanna og skipbrot sósíalismans í Austur-Evrópu. Sögusviðið er Moskva voriö 1985 og Síbería 1992. Leikarar eru Þráinn Karlsson, Aöalsteinn Bergdal, Saga Jónsdóttir, Skúli Gautason, Þorsteinn Bachmann, Laufey Brá Jónsdóttir og María Pálsdóttir. Leikstjóri Halldór E. Laxness. Leikfélag Akureyrar sýnir.