Ský - 01.12.2001, Síða 36

Ský - 01.12.2001, Síða 36
Spurningar innblásnar af Óþelló (1990) Þú lékst hinn slæga og undirförla Jagó í afbragösgóöri uppsetningu Nemendaleik- hússins á Óþelló. Hvort finnst þér meira gaman, aö leika þorpara eöa góömenni? Það er mjög erfitt að leika þessi Ijósu góð- menni þannig að þau séu spennandi og skemmtileg. Fyrir vikið eru þau ögrandi hlutverk og ég hef tilhneigingu til þess að leika þau þannig að þau hafi einhverja mannlega breyskleika. En reyndar er ég nánast aldrei valinn í svona hlutverk. Jagó karlinn er gjarnan talinn einn grimmasti karakter leikbókmenntanna. Þegar maður tekur að sér slíka persónu má maður ekki hugsa hana vonda. Maður verður eiginlega að hugsa hana alveg öfugt, það er ástæða fyrir öllu. Einu sinni var illmennið lítið sak- laust barn. „Mára-hrókinn hef ég grunaöan um aö stelast í minn sööul; þanki sá brennir mig innan eins og vítissteinn,” segir Jagó, sturlaöur af afbrýöisemi í garö Óþellós. Sumir segja að heilbrigður skammtur af afbrýöisemi veröi aö vera í hverju sam- bandi. Afbrýðisemi er partur af okkur og til þess að glæða eldinn þarf smáolíu. Ef fólk fær ekki einhvers konar ögrun, sama hvaðan hún kemur, þá geta hlutirnir fjarað út. Ég get til dæmis ekki haldið áfram að vera góður leikari, ef ég má taka svo stórt upp í mig, ef ég fæ ekki verðuga samkeppni og spark í rassinn. Er mikill metingur og öfund innan leikhús- anna? Ég get ekki sagt það. Ég held að það sé miklu frekar að utanaðkomandi reikni með því að svo sé, heldur en að sú sé raunin. Þinn árgangur í Leiklistarskólanum var óvenju sterkur; Baltasar, Hilmar Jónsson, Björn Ingi, Edda Arnljóts, Harpa Arnardótt- ir, Erling Jóhannesson og Eggert Kaaber, flest þeirra hafa látið mikið að sér kveða í leikhúsinu. Hvernig var að fara í gegnum skólann í svona öflugum hópi? Það var ofsalega gaman en um leið mjög erfitt fyrir okkur öll. Þetta var hópur af mjög ólíku fólk, eins og bekkirnir eru yfirleitt í skólan- um, og allir þurftu að gefa einhvers staðar eftir á leiðinni. En það var einmitt mjög mikilvægur þáttur af náminu. Það sem batt þennan bekk mjög vel saman var ákveðin ást. Við bundust mjög sterkum taugum eftir þessa nánu samvinnu. Þrjú af þessum skólasystkinum þínum, Baltasar, Hilmar og Harpa, hafa mikiö til snúið sér aö leikstjórn. Er þaö eitthvaó sem þig langar að prófa? Þegar ég hef verið að leika mikið hef ég stundum orðið hræddur um að fólk fengi leiða á mér; þá hefur mér stundum dottið í hug að snúa mér að leik- stjórn. En ég hef aldrei fundið nógu sterka hvöt til þess að henda mér út í þaö. Ég hef oft verið beðinn um að stýra áhugaleikhóp- um, en aldrei þegið þaó, þóst hafa of mikið að gera. Svo er ég ekki einu sinni viss um að ég sé vel til þess fallinn. Edda konan þín var einmitt meó þér í bekk. Flækir þaó eitthvað tilveruna að þió eruó bæði leikarar? Nei, það hefur aldrei gert það. Það hefur aldrei verið nein samkeppni milli okkar. Á margan hátt er það mjög gott því það er mikill skilningur á starfinu á báða bóga. Sambandið hefur verið ákaflega farsælt hjá okkur. Svo mjög reyndar að stundum óttast ég að það komi eitthvað fyrir, stundum er þetta nánast einsog það sé of gott til að vera satt. Jón Kaldal er ritstjóri Skýja.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Ský

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.