Ský - 01.12.2001, Page 42

Ský - 01.12.2001, Page 42
Ef stórt gos yrði i Hengli væri Nesjavallavirkjun í mikilli hættu af hraunrennsli. Sama á við um nær allar meginháspennulínur Landsvirkjunar til höfuðborgarsvæðisins. um á höfuðborgarsvæðinu. Hafþór Jónsson segir ekki til séráætlun vegna viðbragða við ógnandi eldgosi í nágrenni Reykjavtkur, en almenn áætlun um viðbrögð við eldgosi nálægt byggð sé tiltæk. „Aðgerðir miðast fyrst og fremst við upptök viðkomandi eldgoss og hvar og hvernig lega þess er miðað við þyggð. Hafnarfjörður, Garðabær og Reykjavík eru allt staðir sem hafa orðið fyrir barðinu á eldgosi. Samt verður að teljast frekar ólíklegt að hraunrennsli verði með slíkum hraða að það ógni verulega öryggi borgaranna og því yrði ekki gripið til brottflutnings fólks nema önnur úrræði brystu því fólksflutningar yrðu alltaf síðasta nauðvörnin.” Afkastageta núverandi vega-, sjó- og flugflutningskerfa við höfuð- borgarsvæðið, kæmi til fólksflutninga, færi eftir veðurfari, árstíma og staðsetningu sem og eðli náttúruhamfaranna. Mörgum er í fersku minni þegar tólf þúsund prúðbúnir þjóðhátíðargestir sátu fastir í um- ferðaröngþveiti milli Reykjavíkur og Þingvalla í besta veðri sumarið 1994. Helgi Hallgrímsson, vegamálastjóri í Reykjavík, segir þann umferðarhnút ekki skrifast alfarið á vegakerfið, en Ijóst sé að umferð myndi ganga hægt, kæmi til brottflutnings borgarbúa. „Það má segja að ein akrein anni 1.500 bílum á klukkustund. Ef umferð til borgarinnar væri bönnuð væri hægt að notast við tvær akreinar og þá erum við að tala um 3.000 bíla. Þó myndi umferðin ganga gríðarlega hægt miðað við fólksbílaeign íbúanna. Margir eiga tvo og þrjá bíla og flestir myndu trúlega freistast til að reyna að bjarga verðmætum sínum og bílunum. Ef Vesturlandsvegur og vegurinn austur um Mosfellsheiöi væru einu útgönguleiðirnar og borgarbúar þyrftu nauðsynlega að yfirgefa borgina, væru miklir erfiðleikar samfara því. Því þarf að meta stöðuna með tilliti til þess hvort fólki sé betur borgið með því að flýja. Hugsanlega yrði um- ferðin stöðvuð með valdi og það er tiltölulega einfalt mál að stjórna bílaumferð þannig.” Á höfuðborgarsvæðinu eru um 135 þúsund ökutæki. Tvo sólar- hringa gæti tekið að greiða leið þeirra út úr borginni, en oftast má greiða úr tilfallandi umferðarteppu á styttri tíma. Skemmist vegir við að fara undir hraun í eldgosi eða vegna landslagsbreytinga við jarðskjálfta hefur það stórfelld áhrif á fólks- og vöruflutninga til nokkurs tíma. Einnig gæti komið til mjög alvarlegs umferðar- ástands í þéttbýli vegna rafmagnsleysis í kjölfar náttúruhamfara sem gerði umferðarljós og götulýsingu óvirka. Ef til þess kæmi að vegir lokuðust og bílar yrðu óstarfhæfir vegna gjóskufalls færu fólksflutningar fram um sjóveg, en hafnarskilyrði á höfuðborgar- svæðinu eru þau bestu á landinu og ávallt nægur skipakostur í höfn. Hafþór Jónsson segist þó eindregið ráðleggja fólki að yfirgefa ekki borgina nema borgaryfirvöld fyrirskipi slíkan brottflutning. „Eins gæti reynst afdrifaríkt í höfuðborginni ef gysi í Hengli með miklu gjóskufalli yfir borgina og með mikilli sprengivirkni í námunda við eldstöðina. Þá fellur gjóska á götur, þyrlast upp í andrúmsloftinu og kæfir bílvélar og aðra mótora á þann hátt að ekki reynist unnt að notast við slík farartæki. Eins verður útivist öll erfiðari við skort á hreinu súrefni og hugsanlega þyrfti að notast við gasgrímur." -> Páll Imsland jarófræðingur HAMFARIR í HÖFUÐBORGINNI SKV 41

x

Ský

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.