Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.03.2021, Blaðsíða 10

Skinfaxi - 01.03.2021, Blaðsíða 10
10 S K I N FA X I Þ jóðin þekkir Elísu Viðarsdóttur, landsliðskonuna og fyrir- liða Íslandsmeistara Vals í knattspyrnu. Færri vita að Elísa er jafnframt næringarfræðingur og með meistara- gráðu í íþróttanæringarfræði og matvælafræði. Hún hefur nú soðið áhugamál sín saman og skrifað fræðslu- bókina Næringin skapar meistarann, sem öðru fremur fjallar um nær- ingarheim íþróttafólks og veitir ráð um það sem betur má fara. Í bók- inni er jafnframt fjöldi uppskrifta fyrir allan daginn. Við vinnslu bókarinnar ræddi Elísa við fjöldann allan af íþróttafólki sem eys þar úr viskubrunni sínum. Í bókinni lýsa tólf einstaklingar sem hafa náð langt í grein sinni mataræði sínu og segja frá því hvaða hlut- verki næring skiptir í lífi þeirra. Rúmlega tuttugu uppskriftir eru í bók- inni allt frá morgunmat til millimála og máltíða fyrir iðkendur á öllum aldri. Á meðal þeirra sem fjalla um líf sitt og næringu eru knattspyrnu- konan Sara Björk Gunnarsdóttir, körfuknattleiksmaðurinn Martin Hermannsson, handboltakonan Lovísa Thompson og margir fleiri. Íþróttafólk kennir réttu tökin Íþróttafólk veit helling um mataræði. En það er forvitið og vill fá að vita meira, að sögn Elísu, sem talaði við fjölda íþróttafólks, bæði tengslum við meistaraverkefni sitt í næringafræðinni og í aðdraganda bókaskrif- anna. „Íþróttafólk tekur bókinni mjög vel, því flest sem ég talaði við sögðu að þau hefðu viljað geta glugg- að í svona bók þegar þau voru yngri. Þekking íþrótta- fólks á næringu og matar- æði liggur víða og fólk þarf að leita sér fanga um rétta matinn og samsetningu hans út um allt. Það veit sumt, þjálfarinn veit eitt- hvað og svo má lengi telja,“ heldur hún áfram. „Mataræðið skiptir öllu máli, ekki bara í tengslum við æfingar heldur þarf að borða rétt í aðdraganda mikilvægra við- burða. Það getur jafnvel lengt feril- inn. Þess vegna vill íþróttafólkið sem við töluðum við fá að vita hvað á að kaupa til að elda rétta matinn. Við birtum lista yfir það. En svo getur það verið yfirþyrmandi að sjá upp- skriftir með löngum listum af hráefnum. Við miðum því við að hafa fremur einfaldar uppskriftir og hráefnin helst aðeins fimm. Þau geta auðvitað verið fleiri eða færri. En fimm er við miðunartalan í öllum réttunum,“ segir Elísa. Matur fyrir alla iðkendur Matreiðslubókin er afskaplega fallegur og eigulegur gripur og upp- skriftirnar einstaklega heilbrigðar og freistandi. Elísa segir markmiðið að flestir aldurshópar geti notað bókina, meira að segja ungir iðkend- ur á grunnskólaaldri og líka foreldrar þeirra. „Leynimarkmið bókarinnar er að hún höfði til allra, iðkenda og áhuga- fólks um næringu sína og fái fólk til að huga að því hvað það setur ofan í sig. En svo viljum við líka að foreldrar kíki í bókina og fái áhuga á því að börnin þeirra nærist rétt. Ég horfi á bókina sem leiðarvísi sem auðveldar íþróttafólki að velja betur. Þetta er næringarfræði á manna- máli enda algjör óþarfi að flækja hlutina,“ heldur Elísa áfram. „Það er lítið fjallað um næringu íþróttafólks á einum stað og þess vegna þurfa iðkendur að leita upplýsinga víða. En auðvitað flækir það málið að íþróttafólk þarf mismunandi næringu í samræmi við þær gre- inar sem það stundar. Íþróttahreyfingin hefur bætt sig verulega þegar kemur að fræðslu um líkamlega þáttinn í íþróttum. En við þurfum líka að leggja meiri áherslu á næringuna,“ heldur hún áfram. „Þegar ég var að skrifa meistararitgerðina mína í næringarfræði þarfagreindi ég fræðslu um næringarfræði hjá íþróttafélögum. Þá komst ég að því hvað þörfin er mikil. Það kom mér ekkert sérstaklega á óvart, enda hef ég verið þátttakandi í íþróttaheiminum í mörg ár, bæði hér og erlendis. Það er komin svo mikil vitneskja um flesta þætti. Íþróttafólk veit hvert það á að leita ef það snýr sig á ökkla. En það er erfiðara þegar kemur að réttu næringunni. Því vil ég breyta. Auðvitað hefði ég vel getað skrifað um næringarfræði íþróttafólks með djúpum akademískum hætti. En það er ekki jafn grípandi fyrir áhugasama, þá sem vilja glugga í bókina, fræðast um næringu og jafnvel skella í máltíð. Ég vildi nefni- lega miklu frekar skrifa um næringarfræði á mannamáli,“ segir Elísa. Íþróttafólk kennir réttu tökin í eldhúsinu Íþróttafólk hefur um fáar leiðir að velja þegar það vill fræðast um réttu næringuna. Knattspyrnukonan Elísa Viðarsdóttir segir mikla áherslu hafa verið lagða á líkamlega fræðslu. Nú sé kominn tími á næringuna. Lykillinn að góðum árangri sé í eldhúsinu og hjá íþróttamanninum sjálfum.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.