Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.03.2021, Blaðsíða 42

Skinfaxi - 01.03.2021, Blaðsíða 42
42 S K I N FA X I Ástríðuhlauparinn Helga Árnadóttir stofnaði hlaupahóp á Höfn í Hornafirði í haust í samstarfi við Ungmennafélagið Sindra. Nú eru í hópnum 40 hlauparar sem hlaupa þrisvar í viku. „Það er svo gaman að hlaupa með öðrum. Ég þekki bara skemmtilega hlaupara og langaði til að búa til vettvang á Höfn fyrir fólk til að hittast og deila gleði sinni á hlaupum,“ segir landvörðurinn og Rangæingur- inn Helga Árnadóttir, forystuhlaupari Hlaupahóps Hornafjarðar á Höfn í Hornafirði. Helga stofnaði hópinn í september síðastliðnum. Undir- tektirnar voru framar vonum og hafa hlaupararnir vart stoppað síðan. Helga elskar að hlaupa og hefur varla tekið hlaupaskóna af sér í að verða 20 ár. Hún er með bakgrunn í frjálsum íþróttum og hafði hlaupið á eigin vegum í 2–3 ár þegar hún mætti á fyrstu hlaupaæfingu sína hjá Laugaskokkurum í Reykjavík haustið 2006. Hún var í tvö ár í hlaupahópn- um en hefur einnig tekið þátt í þríþraut og uppgötvað gleðina sem felst í því að hlaupa úti í náttúrunni ásamt öðru fjallabrölti. „Ég hef alltaf verið tiltölulega virk í útivist og undanfarin ár hef ég æft mest fyrir sjálfa mig, og oft í minni hóp hlaupara hér á Höfn. En eftir átta ára búsetu á Höfn fann ég loks hvötina til að deila hlaupareynslunni með öðrum, skora sjálfa mig á hólm sem þjálfara, fara út fyrir þæginda- rammann og ýta öðrum út í jaðra hans í leiðinni. Ég skoraði á mig að takast á við eitthvað alveg nýtt, hafði samband við frjálsíþróttadeild Ungmennafélagsins Sindra á Höfn og saman bjuggum við til Hlaupa- hóp Hornafjarðar. Hópurinn byggir á tilraun sem Ungmennafélagið Máni í Nesjum gerði í fyrra þegar félagið þar stofnaði hlaupahóp. Þetta var frábær tilraun. Halla tók undan fæti í COVID-faraldrinum þegar fólk mátti ekki hittast. Steininn tók svo úr þegar þjálfarinn hætti,“ heldur Helga áfram og bætir við að mjög gott sé að vinna með Sindra, hlaupa- hópurinn fái m.a. aðgang að húsnæði og stuðningi. Viðtökurnar voru líka langt fram úr væntingum og eru nú 42 meðlimir skráðir í hlaupa- hópinn, sem verður að teljast afar gott í 1.800 íbúa samfélagi. Þátttak- endur í hópnum greiða lágt gjald fyrir þátttökuna, 15.000 krónur fyrir veturinn, eða sem nemur þúsund krónum fyrir vikuna. Óreyndu hlaupararnir mæta best Helga viðurkennir að vissulega sé hún ekki menntuð í íþróttafræðum. En hún hefur viðað að sér ýmissi þekkingu í gegnum tíðina og getur því sett upp æfingar og fleira fyrir hlauparana á Höfn. Helga stýrir lokaðri Facebook-síðu hlaupahópsins og birtir þar æfing- ar og hvatningu ásamt ýmiss konar upplýsingum. Hún segir afar góða stemningu í hlaupahópnum, sem samanstendur af óreyndum hlaupur- um, sem áður horfðu á hina, og líka reyndari hlaupurum, sem hafa tekið þátt í hálfmaraþoni og utanvegahlaupum. Hópurinn hleypur ekki allur saman heldur er honum skipt í þrennt eftir reynslu og er gerð og fjöldi æfinga mismunandi eftir hópum. Alltaf er þó boðið upp á þrjár fastar æfingar í viku. „Hlaupararnir eru mjög góðir í því að hvetja hver annan og gefa af sér, bæði ráð og fleira sem styrkir hlauparana og sambandið í hópnum,“ heldur Helga áfram. „Það geta auðvitað ekki allir hlaupið á sama tíma. Ég reyni að mæta á þær allar en get það auðvitað ekki. En það er eftir- tektarvert að nýliðarnir mæta langbest,“ segir hún. Vetrarhlaup fram á vor Fyrsta hlaup hópsins fór fram í september. Í upphafi voru æfingar hóps- ins reyndar auglýstar fram að áramótum. Helga segir góðar undirtektir hvatningu til að halda áfram inn í næsta ár. Nú er búið að koma á fót reglulegri vetrarhlauparöð á Höfn sem stefnt er á að verði frá október og fram í mars á næsta ári. Í röðinni eru 5 km hlaup með tímatöku einu sinni í mánuði og taka ungmennafélagar þátt í undirbúningi og vinnu við hlauparöðina. Tveimur hlaupum er nú þegar lokið og hafa viðtökur þess verið afar góðar, en 28 hlauparar tóku þátt í fyrsta hlaupinu í október og 25 mánuði seinna. Þriðja hlaupið verður á gamlársdag á Höfn í Hornafirði. Helga segir að þá verði hlaupið í búningum og býst hún við góðri þátttöku. Boðið verður upp á 3, 5 og 10 km hlaup. „Hlaupahópurinn er fyrir meðlimi en allir sem vilja geta tekið þátt í vetrarhlauparöðinni. Það er mjög gaman að sjá fólk taka þátt í vetrar- hlaupunum sem ekki er í Hlaupahópi Hornafjarðar,“ segir Helga. Dásamlegt að deila hlaupagleði með öðrum á Höfn Frekari upplýsingar Hlaupahópinn má finna á Facebook: hlaupahopurhornafjardar. Netfang hópsins er: hlaupahopurhornafjardar@gmail.com HVAÐ ER AÐ FRÉTTA?

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.