Skinfaxi - 01.03.2021, Blaðsíða 21
S K I N FA X I 21
Guðmunda Ólafsdóttir
er ný í varastjórn UMFÍ. Hún hefur tengst
íþróttastarfi í mörg ár, bæði sem sjálfboðaliði
og starfsmaður síðastliðin 20 ár. Guðmunda
er framkvæmdastjóri Íþróttabandalags Akra-
ness (ÍA), nýs sambandsaðila UMFÍ. Hún hefur
lokið MBA-námi frá Háskóla Íslands þar sem
lokaverkefni hennar var stefnumótun KR í
heild fyrir árin 2019–2024. Guðmunda hefur
setið í aðalstjórn KR, stýrt verkefni um eflingu
kvennastarfs innan KR og margt fleira. Guð-
munda er fædd á svæði HSH, uppalin á svæði
USAH, en hefur starfað lengst á svæði ÍBR.
Sigurður Óskar Jónasson
ritari
var kjörinn í varastjórn UMFÍ árið 2015 og sat
þar í tvö kjörtímabil. Frá árinu 2019 hefur hann
átt sæti í aðalstjórn UMFÍ og verið ritari stjórnar.
Sigurður Óskar er frá Ungmennafélaginu Mána,
aðildarfélagi Ungmennasambandsins Úlfljóts
(USÚ) í Hornafirði. Hann sat í stjórn Ungmenna-
félags Mána 2005–2020 og hefur gegnt
embætti gjaldkera hjá USÚ frá árinu 2011.
Eins og gengur hefur Sigurður gegnt flestum
hlutverkum í stjórnum þeirra félaga sem hann
hefur átt sæti í – nema gjaldkerastöðunni.
Ragnheiður Högnadóttir
meðstjórnandi
formaður framkvæmdastjórnar UMFÍ
er frá Ungmennafélaginu Kötlu í Vík í Mýrdal,
sem er aðili að Ungmennasambandi Vestur-
Skaftafellssýslu (USVS). Hún sat í varastjórn
UMFÍ 2013–2015 og í aðalstjórn 2015–2019
sem meðstjórnandi. Í kjölfar þingsins árið
2019 varð Ragnheiður varaformaður UMFÍ.
Ári síðar hafði hún svo sætaskipti við Jóhann
Steinar Ingimundarson, hætti sem varafor-
maður og tók við sem formaður framkvæmda-
stjórnar UMFÍ.
Gunnar Gunnarsson
meðstjórnandi
sat í varastjórn UMFÍ 2009–2011. Árið 2013
var hann kjörinn í aðalstjórn sem meðstjórn-
andi og hefur gegnt því hlutverki til dagsins í
dag. Gunnar er frá sambandssvæði Ung-
menna- og íþróttasambands Austurlands
(UÍA). Hann gegndi embætti formanns UÍA
árin 2012–2021.
Lárus B. Lárusson
tók sæti í varastjórn UMFÍ 2017. Lárus er frá
sambandssvæði Ungmennasambands Kjalar-
nesþings (UMSK), nánar tiltekið frá Gróttu á
Seltjarnarnesi, og hefur setið í stjórn UMSK
frá árinu 2014. Lárus hefur töluverða reynslu
af nefndarsetum, en hann sat í bæjarstjórn
Seltjarnarness í tólf ár og var formaður íþrótta-
og tómstundaráðs í átta ár. Auk þess sat hann
í fjölda nefnda og ráða fyrir hönd Seltjarnar-
ness á starfstíma sínum. Jafnframt átti Lárus
sæti í landsliðsnefnd kvenna hjá Handknatt-
leikssambandi Íslands (HSÍ) í fjögur ár.
Gissur Jónsson
hefur átt sæti í varastjórn UMFÍ frá árinu 2019.
Hann hefur alla sína tíð starfað hjá ungmenna-
félögum í Suðurkjördæmi. Gissur er uppalinn
á sambandssvæði Ungmennasambandsins
Úlfljóts (USÚ) en hefur alið manninn á svæði
Héraðssambandsins Skarphéðins (HSK) hin
síðari ár. Gissur er í góðum tengslum við gras-
rót hreyfingarinnar þar sem hann starfar sem
framkvæmdastjóri Ungmennafélags Selfoss.