Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.03.2021, Blaðsíða 26

Skinfaxi - 01.03.2021, Blaðsíða 26
26 S K I N FA X I „Við vinnum hörðum höndum að því að bjóða börnum og unglingum að koma og æfa með okkur. En í augnablikinu er starfið aðeins fyrir 18 ára og eldri,“ segir Júlía Oddsdóttir, formaður félagsins Roller Derby á Íslandi. Roller derby, eða hjólaskautaat upp á íslensku, er hröð snertiíþrótt þar sem keppt er á hjólaskautum á sporöskjulaga braut. Greinin á sér langa sögu. Keppt var í henni í fyrsta sinn í Chicago í Bandaríkjunum árið 1935. Hún nam ekki land hér fyrr en skautarinn Ice Sickle stofnaði félagið árið 2011, en Ice Sickle er atnafn Guðnýjar Jónsdóttur, sem hafði æft með liðinu Atlanta Roller Girls í Bandaríkjunum. Konur eru hugmyndasmiðir Júlía Oddsdóttir, formaður félagsins Roller Derby á Íslandi, segir hjóla- skautaat vera í grunninn kvennaíþrótt. „Konur komu íþróttinni af stað í Bandaríkjunum. Hér á landi var það sama uppi á teningnum, en tuttugu áhugasamar konur stofnuðu félagið hér. En starfið fór ansi hægt af stað. Við áttum erfitt með að útvega búnað og aðstöðu til æfinga. Við æfðum í bílakjöllurum, GoKart höllinni og ýmsum sölum innan og utan höfuð- borgarsvæðisins,“ heldur Júlía áfram. Á sama tíma viðuðu félagsmenn að sér meiri fróðleik um íþróttina, sóttu ráðstefnur, æfingabúðir og mót erlendis. Allir sem þora velkomnir í hjólaskautaat Alltaf er gaman þegar nýjar íþróttagreinar skjóta upp kollinum. Hjólaskautaat er án efa ein af nýju greinunum. Hún hefur engu að síður verið stunduð á Íslandi í tíu ár. Stefnt er að því að fjölga iðkendum svo að hægt verði að keppa við innlend lið.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.