Skinfaxi - 01.03.2021, Blaðsíða 12
12 S K I N FA X I
Námskeið um svefn, lýðheilsu og
verkefni sem ná til nýrra Íslendinga
Fræðslu- og verkefnasjóður UMFÍ veitir styrki fyrir félags- og íþróttastarf ungmennafélags-
hreyfingarinnar m.a. með því að auka menntun og þekkingu félaga innan hreyfingarinnar
á íþróttagreinum, þjálfun, í félagsmálum og félagsstarfi. Í nóvember veitti Fræðslu- og verk-
efnasjóður 108 styrki upp á rúmar tíu milljónir króna.
fara af stað með verkefnið í janúar/febrúar. Okkur langar að hafa alla
vegana tvo fyrirlestra fyrir hvern hóp, þ.e. tvo fyrir börn og tvo fyrir
fullorðna og jafnvel hafa einhverja eftirfylgni eftir fyrirlestrana.“
Fyrirlestrarnir verða unnir í samvinnu við skólann á svæðinu og
munu þeir fara fram þar. „Við erum enn í startholunum svo við erum
ekki komin með neinn fyrirlesara en það í vinnslu,“ segir Þóra Sigríður
sem er mjög spennt fyrir þessu góða og þarfa verkefni.
Ungmennafélagið Æskan á Sval-
barðseyri hlaut styrk úr Fræðslu-
og verkefnasjóð fyrir fyrirlestur-
inn Sátt/ur í eigin skinni.
„Okkur langar mjög til að efla
lýðheilsu og leggja sérstaka áherslu á svefn, sjálfsstyrkingu, heilsu og
mataræði félagsmanna. Það er mikil umræða í samfélaginu um akkúrat
þetta málefni og okkur finnst vanta meiri fræðslu um málefnið fyrir
börn í skólanum og fyrir fullorðna. Við teljum þetta því mjög þarft
verkefni og teljum tímasetninguna á því góða,“ segir Þóra Sigríður
Torfadóttir, formaður Ungmennafélagsins Æskunnar.
„Fyrirlesturinn verður bæði fyrir börn og fullorðna og planið er að
Ungmennafélagið Æskan:
Fyrirlesturinn – Sátt/ur í eigin skinni
Þóra Sigríður Torfadóttir,
formaður Ungmennafélagsins
Æskunnar