Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.03.2021, Blaðsíða 36

Skinfaxi - 01.03.2021, Blaðsíða 36
36 S K I N FA X I R áðstefna International Sport and Cultural Association (ISCA) fór fram í Brussel í Belgíu um miðjan nóvem- ber og sóttu hana starfsfólk og for- maður UMFÍ. ISCA eru alþjóðleg samtök ýmissa grasrótarsamtaka á sviði íþrótta, al- menningsíþrótta og menningar. UMFÍ hefur unnið náið með ISCA um árabil. Þátttakendur ráðstefnunnar komu frá fjölmörgum löndum beggja vegna Atlantsála. Sérfræðingur WHO sagði helsta verkefni stjórnvalda landa heims að gefa fólki kost á fjölbreyttri hreyfingu. COVID-19, hreyfingarleysi, breytt samskipti og aðrar afleiðingar heimsfaraldursins voru í kastljósi fundarins. Áherslan var á tengingu fólks og félaga, endurbyggingu og aðgerð- um til að koma öllu á hreyfingu á nýjan leik. ISCA hafa sjálf ekki farið varhluta af veirufar- aldrinum, enda hefur hann raskað starfi þeirra verulega í þau tvö ár sem hann hefur herjað á heimsbyggðina. Slagorð ráðstefnunnar voru einkennandi fyrir stöðuna og afleiðingar far- aldursins. Þau voru: Endurtenging (Recon- nect) – endurbygging (Rebuild) – endurræs- ing (Restart). Mogens Kirkeby, forseti ISCA, sagði eftir- mál COVID skelfileg. Faraldurinn hefði staðið í vegi fyrir samneyti fólks og það væri þvert á það sem íþróttir stæðu fyrir. Nú þyrfti að leggja allt kapp á að hvetja fólk til að hreyfa sig sam- an á nýjan leik eftir einveru og aukinn ein- manaleika síðastliðin tvö ár. Þetta var gert með hvatningarorðum og kynningu á ýmsum leiðum fyrir stjórnendur félagasamtaka til að blása lífi í starfið, auka samstarf við hagsmunaaðila og búa til nýjar tengingar, fá hugmyndir að nýrri hreyfingu og fá fleiri til að hreyfa sig. Nýtt líf í breyttum heimi Eftirtektarvert var hversu stór hluti af ráðstef- nunni var tileinkaður flóttamannavanda í álf- unni. Ljóst var af efni vinnuhópa og samræð- um við ráðstefnugesti að vandinn er mun stærri og umfangsmeiri á meginlandi Evrópu en hér á landi. Birtingarmynd vandans er ein- faldlega í mýflugumynd á Íslandi. Þrátt fyrir á margan hátt ósambærileg stærðarhlutföll eru vandamálin í hnotskurn þau sömu, það er að ná til nýrra íbúa og höfða til þeirra sem vilja verða virkir þátttakendur í samfélaginu, svo sem með íþróttaiðkun. Á meðal ráðstefnugesta voru Khalida Popal, ein af hvatakonum fyrir stofnun kvennalands- liðs Afganistan í knattspyrnu. Hún flúði reynd- ar land árið 2011 og hefur síðan þá verið bú- sett í Danmörku ásamt fleiri knattspyrnukon- um. Það var lýsandi fyrir vandann að á sama tíma og Popal stóð á sviði ráðstefnunnar í Brussel og lýsti lífi sínu sem fótboltakona á flótta var hópur ungra fótboltakvenna að lenda í Bretlandi. Konurnar höfðu flúið frá Afganist- an eftir að talibanar hrifsuðu völdin þar á ný og aðstoðaði Popal við flutninginn. Hreyfing er lykill að betri heilsu Ráðstefnu ISCA var skipt upp í nokkrar vinnu- stofur og enn fleiri vinnuhópa þar sem kast- ljósinu var beint að því hvernig hægt væri að Fjölga þarf tækifærum til hreyfingar

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.