Skinfaxi - 01.01.2022, Qupperneq 6
6 S K I N FA X I
Skinfaxi 1. tbl. 2022
Skinfaxi, tímarit Ungmennafélags Íslands,
hefur komið út samfleytt síðan 1909.
Tímaritið dregur nafn sitt af hestinum
fljúgandi sem dró vagn goðsagnaver-
unnar Dags er ók um himinhvolfið í
norrænum sagnaheimi.
R I TST J Ó R I
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson.
Á BY R GÐA R M A Ð U R
Jóhann Steinar Ingimundarson.
R I T N E F N D
Gunnar Gunnarsson, Elísabet Ásdís
Kristjánsdóttir og Sigurður Óskar Jónsson.
UM BR OT O G H Ö N N U N
Indígó.
P R E N T U N
Litróf.
AU GLÝS I N GA R
Hringjum.
FO R S Í Ð UMY N D
Ungur iðkandi hjá Klifurfélagi Reykjavík-
ur. Myndin er liður í umfjöllun blaðsins
um íþróttamannvirki. Myndin er birt með
góðfúslegu leyfi Klifurfélagsins.
L J ÓS MY N D I R
Hafsteinn Snær Þorsteinsson, Tjörvi Týr
Gíslason, Ívar Sæland, Gunnar Gunnars-
son, Haraldur Jónasson, Jón Aðalsteinn
Bergsveinsson, Guðmundur Karl Sigur-
dórsson, Oscar Rybinski og ýmsir fleiri
s.s. þeir sem tóku góðar myndir af félög-
um í Klifurfélagi Reykjavíkur.
SKRIFSTOFA UMFÍ/SKINFAXA
Þjónustumiðstöð UMFÍ,
Sigtúni 42, 105 Reykjavík,
s. 568 2929
umfi@umfi.is - www.umfi.is
ST J Ó R N UM F Í
Jóhann Steinar Ingimundarson formaður,
Gunnar Þór Gestsson varaformaður,
Ragnheiður Högnadóttir meðstjórnandi
og formaður framkvæmdastjórnar, Guð-
mundur G. Sigurbergsson gjaldkeri, Sig-
urður Óskar Jónsson ritari, Málfríður Sig-
urhansdóttir meðstjórnandi og Gunnar
Gunnarsson meðstjórnandi.
VA R AST J Ó R N UM F Í
Hallbera Eiríksdóttir, Lárus B. Lárusson,
Gissur Jónsson og Guðmunda Ólafsdóttir.
UM F Í
Ungmennafélag Íslands, landssamband
ungmennafélaga á Íslandi, var stofnað á
Þingvöllum 2. ágúst 1907. Sambands-
aðilar UMFÍ eru 26 talsins og skiptast í
21 íþróttahérað og 5 ungmennafélög
með beina aðild. Alls eru um 450 félög
innan UMFÍ um land allt.
STA R FS FÓ L K UM F Í
Auður Inga Þorsteinsdóttir framkvæmda-
stjóri, Einar Þorvaldur Eyjólfsson fjármála-
stjóri, Jón Aðalsteinn Bergsveinsson
kynningarfulltrúi og ritstjóri Skinfaxa,
Ómar Bragi Stefánsson landsfulltrúi og
framkvæmdastjóri Landsmóta (með
aðsetur á Sauðárkróki), Ragnheiður
Sigurðardóttir landsfulltrúi og verkefna-
stjóri, Guðbirna Kristín Þórðardóttir
ritari og Sabína Steinunn Halldórsdóttir
verkefnastjóri.
Starfsfólk í Ungmennabúðum
UMFÍ á Laugarvatni:
Forstöðumaður: Sigurður Guðmunds-
son. Frístundaleiðbeinendur og tóm-
stundafræðingar: Þorsteinn Hauksson,
Soffía Margrét Sigurbjörnsdóttir, Ingveld-
ur Gröndal og Halldóra Kristín Unnars-
dóttir. Eldhús og ræstingar: Joanna M.
Winiecka. Jörgen Nilsson er í leyfi.
„Það er auðveldara að vinna í þessu kerfi. En ég hef ekki kallað eftir upp-
lýsingum úr því. Ég mun gera það til að fá upplýsingar í ársskýrslur.
Síðan verður gott að sjá hvort iðkendum hefur fjölgað eða fækkað eft-
ir greinum,“ segir Telma Knútsdóttir, framkvæmdastjóri Ungmenna-
sambands Skagafjarðar (UMSS). Hún er á meðal þeirra sem hafa skilað
starfsskýrslum í nýju rafrænu skilakerfi UMFÍ og ÍSÍ sem Sportabler hefur
þróað. Nýja kerfið tók við af Felix, sem hafði verið notað frá árinu 2004.
Við þróun nýja kerfisins var horft til þess að með nýju kerfi yrðu
skil félaganna skilvirkari og einfaldari en áður í gamla kerfinu.
Framvegis munu öll félög UMFÍ skila starfsskýrslum í þessu kerfi óháð
greinum, þar á meðal skákfélög og fleiri, enda mikilvægt að allir nýti
Ánægja með fyrstu skýrsluskil í nýju kerfi
Nýtt skilakerfi UMFÍ og ÍSÍ var tekið í notkun í apríl.
Stjórnendur íþrótta- og ungmennafélaga eru ánægðir
með kerfið enda gekk vel að skila í fyrsta skipti.
• Hægt er að fara inn á skilakerfi Sportabler á tveimur stöðum
á vefsíðunni umfi.is. Hnappur er undir flipanum „Verkfæra-
kista“ og annar undir flipanum „Hagnýtir hlekkir“.
• Hafir þú ábendingu um kerfið þá getur þú sent okkur línu á
netfangið umfi@umfi.is eða hringt í þjónustumiðstöð UMFÍ
í síma 568 2929.
það til að sjá raunverulega stöðu íþróttahreyfingarinnar hverju sinni.
Nokkur íþrótta- og ungmennafélög hafa skilað inn skýrslum í nýja
kerfinu og hefur það gengið prýðisvel þótt einstaka hnökrar hafi komið
upp eins og búast má við. „Þetta er svolítil handavinna. En annars
gekk það mjög vel,“ segir Telma, sem eins og margir sinnir skráning-
um fyrir nokkur aðildarfélög UMSS, eins og Tindastól.
Hjördís Baldursdóttir, íþróttastjóri Keflavíkur, íþrótta- og ungmenna-
félags, tekur undir með Telmu um kosti nýja kerfisins. Mjög gott sé að
skrá í það og halda utan um upplýsingar:
„Þetta er mjög einfalt. Upplýsingarnar vistast sjálfkrafa og það er gott
að vinna með það,“ segir hún og hefur ekki orðið vör við annað en
að fólk sé ánægt með kerfið, enda sé það mjög notendavænt eins og
skráningarkerfið Sportabler, þar sem séð er um greiðslur, innheimtu
og annað utanumhald fyrir þjálfara og stjórnendur íþróttafélaga. Margir
foreldrar iðkenda kannast jafnframt við kerfið enda nýta margir það til
að hafa yfirlit yfir æfingar þeirra.