Skinfaxi - 01.01.2022, Page 10
10 S K I N FA X I
RAFMAGN
N1rafmagn.is
„Þetta var æðislegt. Við komum í Ungmennabúðir UMFÍ með næstum
níutíu nemendur. Nemendurnir fengu hópeflisæfingar og styrktust
mikið. En þetta var eins og á hóteli fyrir okkur kennarana. Við fengum
miklu betri aðstöðu en við höfum áður fengið, gott kaffi og súkkulaði!“
segir Þórunn Sif Böðvarsdóttir, kennari í 9. bekk í Laugalækjarskóla.
Hún kom í Ungmennabúðir UMFÍ síðustu vikuna fyrir páska með um
níutíu nemendur ásamt þremur öðrum kennurum.
Þórunn segir utanumhaldið mjög gott. Starfsfólk Ungmennabúðanna
hafi hugsað vel um börnin og samskipti við þau verið afar góð og skipu-
lagið allt til fyrirmyndar frá fyrsta degi.
Þórunn hefur komið oft með nemendum í Ungmennabúðir UMFÍ,
bæði á Laugarvatn og áður að Laugum í Sælingsdal.
Hún segir dvölina á Laugarvatni hafa verið afar ánægjulega og
krakkana hafa tekið því mjög vel að vera þar án síma og tækjabúnaðar.
Þau hafi haft nóg fyrir stafni og ekki haft neinn tíma til að láta sér leiðast.
„Auðvitað komu einhverjir nemendur með nammi með sér og fóru
á svig við reglur. En vel var tekið á öllu og málin leyst,“ segir hún en
tekur fram að verkefnin á Laugarvatni hafi þétt nemendahópinn og
margir tekist á við ýmsar áskoranir. Það hafi styrkt þau.
„Þetta var mikill sigur fyrir marga sem voru óöruggir við að fara að
heiman. Eins og alltaf ætluðu nokkrir að vera bara tvær nætur. En svo
gátu þau ekki beðið eftir næsta degi,“ segir hún.
Krakkarnir koma öflugri
heim frá Laugarvatni
Umsjónarkennarar í Laugalækjarskóla nutu dvalarinnar
í Ungmennabúðum UMFÍ á Laugarvatni
Þórunn segir alla aðstöðu fyrir kennara hafa verið til fyrirmyndar
í Ungmennabúðunum. Nemendurnir hafi haft í nægu að snúast og
kennararnir aðeins þurft að hafa til kvöldkaffi, skipuleggja einhverjar
kvöldvökur og ganga frá eftir morgunmat.
„Þetta var mjög gott í alla staði,“ segir Þórunn að lokum.
Vantar húsnæði
fyrir námskeið?
• UMFÍ leigir út húsnæði Ungmennabúða UMFÍ á Laugarvatni
utan skólamissera á sumrin og um helgar.
• Á sumrin eru Sumarbúðir Íþróttasambands fatlaðra í
Ungmennabúðum UMFÍ á Laugarvatni.
• Íþróttafélög hafa haft þar námskeið og vinnufundi.
• Í Ungmennabúðum UMFÍ er fullbúið eldhús, svefnaðstaða
fyrir tugi gesta og frábær aðstaða til fundarhalda og útivistar.
Fyrir fyrirspurnir og bókanir vinsamlegast hafið samband
í gegnum netfangið siggi@umfi.is eða í síma 861 3379.