Skinfaxi - 01.01.2022, Page 13
S K I N FA X I 13
Íþróttaveisla UMFÍ
Hundahlaup eða canicross er hluti af Íþróttaveislu UMFÍ og 100 ára
afmæli UMSK (Ungmennasambands kjalarnesþings), sambandsaðila
UMFÍ. Íþróttaveisla UMFÍ er nýjung sem fer fram sumarið 2022 frá júní
og fram í byrjun september.
Í veislunni verður boðið upp á fjóra nýja og gríðarlega spennandi
viðburði í fjórum þéttbýliskjörnum á sambandssvæði UMSK. Hunda-
hlaupið er fyrsti viðburðurinn í Íþróttaveislunni.
Íþróttaveislan er fyrir alla 18 ára og eldri sem finnst gaman að hreyfa
sig og njóta lífsins með öðrum. Allir geta tekið þátt í viðburðunum
fjórum, sem dreifast yfir allt sumarið.
Íþróttaveisla UMFÍ samanstendur af Drullu- og hindrunarhlaupi
Krónunnar í Mosfellsbæ, Boðhlaupi BYKO í Kópavogi, Hundahlaupi á
Seltjarnarnesi og að síðustu Forsetahlaupi í september á Álftanesi.
Viðburðirnir
• Boðhlaup BYKO fimmtudaginn 30. júní
– við Fífuna í Kópavogi
• Drullu- og hindrunarhlaup
Krónunnar laugardaginn 13. ágúst
– Íþróttamiðstöðinni Varmá í Mosfellsbæ
• Hundahlaup fimmtudaginn 25. ágúst
– Seltjarnarnesi
• Forsetahlaup laugardaginn 3. september
– Álftanesi
Hlíðasmári 6 Kópavogi 510 7900
R
Takk fyrir stuðninginn