Skinfaxi - 01.01.2022, Blaðsíða 14
14 S K I N FA X I
A
nna er innfæddur Vesturbæingur og bjó alla sína æsku
á Ægisíðunni í Reykjavík. Hún á ættir að rekja í Húna-
vatnssýslu og Þingeyjarsýslu, en faðir hennar var aðal-
lega Reykvíkingur.
„Ég tók aldrei þátt í íþróttum í æsku en ég studdi KR
í öllu sem félagið tók sér fyrir hendur. Vinkonur mínar og skólasystur
voru mest í handboltanum, en þá var handboltinn í KR öflugur. Ég var
alltaf í sveit á sumrin þannig að ég hafði ekki mikinn áhuga á íþróttum
þá. Ég var í sveit á Húsafelli í Hálsasveit í Borgarfirði. Ég fór þangað
fyrst sex ára og var sex sumur í sveit,“ segir Anna.
Flutt í Garðabæinn
Anna stundaði nám í Verzlunarskóla Íslands og útskrifaðist þaðan með
verslunarpróf 1971.
Hún flutti í Garðabæ 1978 ásamt eiginmanni sínum, Stefáni Hjalte-
sted, og einni dóttur sem þá var fædd. Dóttir númer tvö kom í heim-
inn ári síðar. Fimleikadeildin í Garðabæ var stofnuð 1982. Þá var elsta
dóttir Önnu í fimleikum í Ármanni en flutti sig síðan yfir í Stjörnuna.
Þrjár heimavinnandi húsmæður
Anna var spurð hvernig það hefði komið til að hún dróst inn í stjórn
fimleikadeildarinnar. „Það var haustið 1985 að ein nágrannakona mín
sem var þá í stjórn fimleikadeildarinnar kom að máli við okkur tvær, en
Anna Ragnheiður Möller á að baki langan feril í félagsmálum innan ungmennafélags-
hreyfingarinnar. Hún kom inn í stjórn fimleikadeildar Stjörnunnar í Garðabæ sem foreldri og
var um tíma formaður aðalstjórnar félagsins. Þaðan lá leiðin í Fimleikasambandið, þar sem
hún var m.a. framkvæmdastjóri í tíu ár. Hún sat í stjórn UMFÍ frá 1997 til 2007 og starfaði
síðan hjá Evrópu unga fólksins, sem síðar varð Erasmus+ áætlunin. Anna hefur hlotið fjölda
viðurkenninga fyrir félagsmálastörf sín og var m.a. gerð að heiðursfélaga UMFÍ 2021.
EIGNAÐIST VINI FYRIR
LÍFSTÍÐ HJÁ UMFÍ