Skinfaxi - 01.01.2022, Síða 20
20 S K I N FA X I
Næstum 200 ár eru síðan fyrsta íþróttamannvirkið reis á Íslandi. Þetta
var sundpollur sem varð til úr fyrirhleðslu í Laugalæknum. Síðan þá hafa
þróttahús, sundlaugar og ýmis konar íþróttamannvirki af ýmsum toga
litið dagsins ljós. Sum íþróttahús eru börn síns tíma, byggð af litlum
efnum, eru ekki nóg stór og uppfylla ekki kröfur nútímans. Lengi hefur
Íþróttamannvirki á Íslandi eru af ýmsum toga, lítil og stór.
Sumum þykir nóg um en aðrir vilja meira. En hver er staðan?
Við skoðum hér nokkra staði á landinu, ræðum við forsvarsmenn
íþróttahéraða, íþróttafélaga og íþróttafulltrúa sveitarfélags.
verið þess krafist að ráðist verði í byggingu þjóðarleikvangs. Ekki er
einhugur um slíkt. Engu að síður hafa verið stigin fyrstu skref í þá átt.
En eru það rétt skref? Hvað segir forsvarsfólk í íþróttahreyfingunni og
sveitarfélögum um stöðuna, hvar er hægt að gera betur og hvar er
íþróttaaðstaða til fyrirmyndar?
Bylting í byggingu
íþróttamannvirkja
1824: Sundkennsla pilta hefst í Laugalæknum, sem rann úr Þvotta-
laugunum til sjávar í Reykjavík. Þetta má kalla fyrstu almennilegu
sundlaug landsins. Sundlaugin var þannig gerð að fyrirhleðsla var
í læknum til að útbúa sundlaug eða góðan poll til að synda í.
1858: Fyrsta íþróttahús Lærða skólans (síðar Menntaskólans í
Reykjavík) tekið í notkun.
1870: Sigurður Guðmundsson málar gerir uppdrátt að íþrótta-
og útivistarsvæði Reykvíkinga í Laugardal.
1873: Glímuvöllur Sverris Runólfssonar og félaga í Glímufélagi
Reykjavíkur lítur dagsins ljós á horni Suðurgötu og Hringbrautar.
Þetta reynist vera fyrsti íþróttavöllur landsins og var hann staðsett-
ur þar sem höggmyndinn Útlagar eftir Einar Jónsson stendur nú.
1884: Sundaðstaðan bætt í Laugalæknum með stofnun Sund-
félags Reykjavíkur.
1896: Sportfélag Reykjavíkur stofnað. Markmið þess er að standa
fyrir íþróttaæfingum á Austurvelli. Fljótlega hefjast framkvæmdir við
að ryðja íþróttavöll á Melunum. Það er fyrsta skref að gerð íþrótta-
svæðis. Íþróttavöllurinn var vígður 11. júní 1911. Fyrsta íþróttamótið
þar var vikulangt íþróttamót Ungmennafélags Íslands. Sama ár var
leikfimihúsið á Hvanneyri tekið í notkun.
1989: Íþróttahús Menntaskólans í Reykjavík tekið í notkun og
eldra hús rifið. Telja má þetta ásamt fimleikahúsinu á Hvanneyri
elstu íþróttahúsin sem enn eru í notkun hér á landi.
6. maí 2022: Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Ásmundur
Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, og Dagur B. Eggerts-
son borgarstjóri undirrita viljayfirlýsingu um byggingu þjóðarhallar
í innanhússíþróttum í Laugardal. Ríki og borg tryggja fjármögnun
stofnkostnaðar. Kostnaðarmat liggur ekki fyrir. Stefnt að því að
framkvæmdum ljúki árið 2025.
Á hraðferð:
Ýmis íþróttamannvirki á Íslandi