Skinfaxi - 01.01.2022, Blaðsíða 21
S K I N FA X I 21
„Það hefur komið okkur á óvart
hversu margir sækja í Selfosshöll-
ina. Það er einstök ánægja með
húsið og nýtingin ofboðslega
góð frá morgni til kvölds,“ segir
Sveinbjörn Másson, fram-
kvæmdastjóri knattspyrnudeildar
Ungmennafélags Selfoss. Svein-
björn og deildin hafa umsjón með
aðstöðunni á Selfossi og nýja fjöl-
nota íþróttahúsinu sem vígt var á
Selfossvelli í október í fyrra.
Húsið, sem hefur fengið nafnið
Selfosshöllin, er um 6.500 m² að
flatarmáli og skiptist niður í fyrir-
taks æfingasvæði fyrir frjálsar
íþróttir og hálfan knattspyrnuvöll.
Ýmisleg hreyfing og afþreying er
möguleg í húsinu en sem dæmi
hélt Árborg þar árshátíð fyrir 900
manns í vor.
Sveinbjörn segir íþróttahúsið
þaulsetnara en gert hafi verið ráð
fyrir.
„Menn gerðu ráð fyrir að húsið
yrði notað nokkuð vel. En það er
langt umfram björtustu vænting-
ar og hefur haft mikil jákvæð áhrif
á íbúa sveitarfélagsins. Húsið er
með sjálfvirka opnun klukkan sex
á morgnana. Þá kemur fyrsta fólk-
ið að hreyfa sig. Þetta er líka svo
gott hús, enda fer hitinn þar inni
aldrei undir 15 gráður,“ segir Svein-
björn, sem telur að um þúsund
manns komi í húsið á hverjum
virkum degi.
Sveinbjörn bendir á að með til-
komu hússins hafi iðkendum á
öllum aldri líka fjölgað.
Árborg er heilsueflandi sam-
félag og þar var ákveðið að bjóða
upp á æfingar tvisvar í viku fyrir
eldri borgara. Einhverjir tuttugu
byrjuðu. En þegar húsið var tekið
í notkun færðust æfingar inn í það.
Nú eru iðkendur orðnir 120 og
búið að skipta fólkinu í tvo hópa,“
segir Sveinbjörn og bætir við að
sömu sögu sé að segja af mikilli
fjölgun í yngri flokkum kvenna
í knattspyrnu. Fjölgunin þar sé
talsvert meiri en í hinum flokkun-
um. Til viðbótar séu opnir tímar
fyrir leikskóla og dagmæður.
„Húsið nýtist afar vel og er mikil
ánægja með það. Þetta er í alla
staði virkilega vel heppnað mann-
virki,“ segir Sveinbjörn.
Selfosshöllin er fyrsti áfangi í
stórhuga framkvæmdum sem fyrir-
hugaðar eru á íþróttasvæðinu á
Selfossi. Næstu áfangar gera ráð
fyrir að Selfosshöllin verði byggð
áfram á næstu árum yfir núver-
andi knattspyrnuvöll með búnings-
aðstöðu og fleiri rými inni, hand-
boltahöll verði reist og fimleika-
hús auk skrifstofa.
Selfosshöllin
slær í gegn
Sveinbjörn Másson, vallarstjóri og framkvæmdastjóri knattspyrnu-
deildar Umf. Selfoss.