Skinfaxi - 01.01.2022, Síða 27
S K I N FA X I 27
Stjórn Klifurfélagsins er í viðræðum við Reykjavíkurborg um mögu-
legar lausnir er kemur að langtímalausn. Þar hefur Toppstöðin við
Rafstöðvarveg 4 í Elliðaárdal verið þungamiðjan í umræðunni og er
stefnt að því að þar verði miðstöð jaðaríþrótta í borginni.
ÍTR og Íþróttabandalag Reykjavíkur hafa unnið þetta með okkur
síðastliðin tvö ár. Lendingin er í samræmi við stefnumótun Reykjavíkur-
borgar í íþróttamálum og þá munum við geta leigt aðstöðu í 25 ár í
stað 5–10 ára áður,“ segir Hilmar og bætir við að ljóst sé að klifur-
íþróttin, eins og aðrar jaðaríþróttir, sé komin til að vera.
„Heimurinn er að breytast og áhugasviðið líka. Ég hef stundað jaðar-
íþróttir alla mína tíð og tek eftir þessu. Hjólabretti voru til að mynda
ekki samþykkt af fjöldanum hér á árum áður þegar við félagarnir vor-
um að stunda það en núna má sjá það sem eina af nýjustu og vinsæl-
ustu greinunum á Ólympíuleikunum. Sama gerðist með snjóbrettin
og lengi vel voru skíðagreinarnar að reyna að útiloka greinina frá stóra
sviðinu. En með tímanum eykst áhuginn og almenningur kallar eftir
breytingum sem eru óumflýjanlegar fyrir íþróttirnar. Tímarnir breytast
og mennirnir með og það sem var vinsælt er ekki endilega ofan á í dag.
Nýr forseti Ólympíusambandsins, ThomasBachh, gerði sér grein fyrir
þessu og sá fyrir sér þessa breytingu, að Ólympíuleikarnir þyrftu að
þróast í takt við tímann til að halda ungu kynslóðinni áhugasamri um
leikana. Þess vegna náðu klifur, hjólabretti og brimbretti inn á síðustu
leika. Ungmenni geta alveg æft knattspyrnu og fimleika og hvað eina
til 18 aldurs en hvað tekur síðan við að barna- og unglingastarfi loknu?
Margir hafa áhuga á öðru en boltaíþróttum og þessum hefðbundnu
greinum innan ÍSÍ. Þegar hugsa á um skipulag íþróttahúsa og svæða
þarf að hugsa út í slíkt. Ef ekki er horft til þarfa iðkenda og fólk er ekki
opið fyrir breyttu umhverfi missir það af vagninum. Iðkendur fara ein-
faldlega annað. Það er í fullkomnu samræmi við það að láta íþróttir ná
yfir öll æviskeiðin, sem sést auðvitað best á því að 70% iðkenda okkar
eru 18 ára og eldri. Fólk eins og ég finnur þarna eitthvað skemmtilegt
að gera og það verður hluti af lífsstíl þess. En það sem skiptir máli er að
með nýju húsnæði Klifurfélagsins til 25 ára kemst félagið og mögulega
fleiri greinar í öruggt húsnæði. Það styrkir stoðir klifurs og annarra ört
vaxandi jaðaríþróttagreina,“ segir Hilmar Ingimundarson.