Skinfaxi - 01.01.2022, Síða 30
30 S K I N FA X I
R eglulega kemur upp umræða um hagræðingu úrslita í íþrótta-
keppnum. Nú á vordögum kom út skýrsla á vegum Sportradar,
sem rannsakaði málið og komst að þeirri niðurstöður að úrslit-
um hefði verið hagrætt í 903 tilvikum í tíu greinum árið 2021. Hafa til-
vikin aldrei verið fleiri, en þau komu upp í 76 löndum á síðasta ári.
Verðmæti hagræðingarinnar, þ.e. sú upphæð sem lögð var undir í
veðmálum í tengslum við hagræðingu úrslita, nam 165 milljónum evra,
sem jafngildir tæpum 23,7 milljörðum íslenskra króna.
Flest tilvikin áttu sér stað í knattspyrnu í neðri deildum um allan heim.
Næst á eftir komu rafíþróttir og körfubolti.
Þótt um háar fjárhæðir sé að ræða jafngildir hagræðingin því að 0,5
prósentum allra knattspyrnuleikja sé hagrætt á einhvern hátt um allan
heim.
Andreas Krannich, framkvæmdastjóri Sportradar, segir í aðfararorð-
um að skýrslunni að ljóst sé að tilraunum til að hafa áhrif á úrslit íþrótta-
kappleikja sé að fjölga mikið. Ein af ástæðum þess sé að möguleikar
Gríðarlega mikið
um hagræðingu
úrslita í heiminum
Vísbendingar eru um að tilraunum til að hafa áhrif á úrslit íþróttakappleikja muni
fjölga á þessu ári. Ísland er ekki undanskilið varðandi hagræðingu úrslita.
Engar upplýsingar um Ísland
Í skýrslu Sportradar er aðeins tiltekið í hvaða íþróttagreinum hag-
ræðing úrslita hefur greinst, í hvaða heimsálfum og ýmis önnur
tölfræði, s.s. hvaða rafíþróttaleiki um ræðir og á hvaða tímabil-
um mesta svindlið á sér stað. Flestu tilvikin komu upp í maí, í
september og október. Langfæst voru þau í janúar.
Ekki er tiltekið í hvaða löndum hagræðing úrslita og önnur teg-
und svindls hefur komið upp. Þegar eftir því var leitað hjá Sportra-
dar hvort upp hefðu komið vísbendingar um hagræðingu úrslita
á Íslandi var vísað í samninga um þagnarskyldu við samstarfsaðila.
Sportradar Integrity Services var stofnað
árið 2004 eftir að komið var upp um hagræðingu af hálfu dómara
í þýskri knattspyrnu. Málið kom upp þegar þýski knattspyrnudóm-
arinn Robert Hoyzer viðurkenndi aðild að hagræðingu úrslita.
Hoyzer var þá 25 ára gamall og þótti einn efnilegasti dómari þýskrar
knattspyrnu. Hann var settur í ævilangt bann og hefur ekki dæmt
leik síðastliðin 18 ár.
Hoyzer sagðist ætíð hafa verið í slagtogi með fleirum og hafa
vitneskju um sekt fjögurra dómara, fjórtán leikmanna og fleiri
tengdra þýskri knattspyrnu. Þótt ekki hafi komist upp um fleiri
tengda málinu sagði þýska dagblaðið Der Spiegel að rannsókn
málsins benti til að úrslitum væri hagrætt víðar, svo sem í deildum
atvinnumanna í Austurríki og Grikklandi.
Nokkrar leiðir í svindli
• Að stofna til vináttu við leikmenn. Leikmaður vill síður að
vinir sínir tapi á leikjum sem þeir hafa veðjað á.
• Að freista leikmanna, svo sem að lofa viðkomandi nýjum
síma ef hann brenni af í víti, eða styðja fjárhagslega við
fjölskyldur leikmanna.
• Þar sem hægt er að veðja á fjölda innkasta, gul spjöld og
atriði sem ekki hafa bein áhrif á úrslit leiksins eykst freistni-
vandinn.
• Lið fær fjárstuðning frá fjársterkum einstaklingi.
• Að koma með leikmenn/þjálfara inn í liðið, ná árangri fyrst
en tapa svo óvænt stórt.
• Mútur til þjálfara eða leikmanna. Um leið og það gerist er
viðkomandi fastur í netinu.
• Fyrir nokkrum árum var komið að máli við leikmann í einu
af yngri landsliðunum og hann beðinn um að brenna af
fyrsta vítinu. Hann varð steinhissa og neitaði.
• Dæmi eru um að fjárhættuspilarar sendi framkvæmdastjór-
um og formönnum dulda hótun tapist leikur þeim í óhag.
Fótbolti
Tennis
Körfubolti
Krikket
Amerískur fótbolti
Rafíþróttir
Borðtennis
Hafnabolti
Íshokkí
51% af heildar-
upphæð veðmála
í heiminum 2021
var í fótbolta
Stærstu (veðmála) íþróttagreinarnar
fólks til að veðja á íþróttaleiki hafi þróast mikið og það sé orðið mögu-
legt að leggja fjármagn undir kappleiki eftir mörgum leiðum. Því miður
séu miklar líkur á að fleiri tilraunir verði gerðar til að hafa áhrif á úrslit
leikja á þessu ári en því síðasta. Þeir sem vilji hagræða úrslitum leiti
allra mögulegra leiða til að gera það og kappkosti að vera nokkrum
skrefum á undan öðrum. Þess vegna verði eftirlitsaðilar að vera stans-
laust á tánum, sérstaklega nú þegar tilraunir til svindls og vísbending-
ar um slíkt hafi aldrei verið fleiri. Krannich hvetur stjórnendur íþrótta-
félaga og aðra sem hafa tengsl við íþróttir og félög þeirra til að gera
allt sem í þeirra valdi stendur til að koma í veg fyrir að óheiðarlegir
einstaklingar hafi áhrif á íþróttir, hvaða nafni sem þær nefnast.