Skinfaxi - 01.01.2022, Blaðsíða 31
S K I N FA X I 31
Skipulögð glæpasamtök
tengjast íþróttum
„Það er ekki spurning um hvort
heldur frekar hvenær úrslitum
verður hagrætt í íþróttaleikjum á
Íslandi. Veltan er orðin gríðarleg
í veðmálum á íþróttaleiki og mikið
er undir. Skipulögð glæpasamtök
eru að færa sig yfir í íþróttirnar. Við í
íþróttahreyfingunni verðum því að
vera vel á verði því margir telja hag-
ræðingu úrslita vera stærstu ógn
sem steðjar að íþróttahreyfingunni
um þessar mundir,“ segir Pétur
Hrafn Sigurðsson hjá Íslenskri
getspá og Getraunum. Hann var
með erindi um málið á Stefnumóti
UMFÍ á Hótel Geysi fyrir ári.
Pétur sagði þar veltu á erlendum veðmálasíðum á íslenska knatt-
spyrnuleiki hafa aukist gríðarlega á síðastliðnum árum og gæti hún
nú numið 1,5–2 milljörðum króna á dag. Hluti aukningarinnar fælist í
því að íslensk knattspyrna væri leikin að sumri þegar flestar erlendar
deildir væru í fríi og oft væri leikið á mánudögum hér á landi þegar
framboð væri lítið af leikjum í öðrum löndum.
„Menn halda kannski að fólk í öðrum löndum tippi ekki á íslenska
knattspyrnuleiki. En það er fjarri sanni,“ sagði hann og hvatti með sama
hætti og framkvæmdastjóri Sportradar alla sem málið varða til að leggj-
ast á eitt og koma í veg fyrir svindl. Íþróttahreyfingin léki lykilhlutverk
með öflugri fræðslu til íþróttafólks, dómara og forystufólks í hreyfing-
unni. Íþróttahreyfingin hefði tekið við sér en stjórnvöld drægju lappirnar.
„Stjórnvöld hafa ekki fylgt eftir lögum og reglugerðum til að koma í
veg fyrir að erlend veðmálafyrirtæki starfi hér á landi sem ekki hafa til
þess heimild og sem leggja ekkert til samfélagsins, greiða enga skatta.
Þau hafa til þess margvíslega möguleika en því miður hefur ekkert ver-
ið gert, þrátt fyrir mikinn þrýsting frá forystusamtökum íþróttahreyfing-
arinnar, UMFÍ og ÍSÍ. Með því að koma í veg fyrir að Íslendingar geti
tippað hjá ólöglegum erlendum veðmálafyrirtækjum geta stjórnvöld
minnkað stórlega líkurnar á hagræðingu úrslita í íþróttum á Íslandi.“
Enn beðið viðbragða frá Íslandi
Mennta- og menningarmálaráðuneytið gaf út skýrslu um málið í janúar
árið 2018. Í skýrslunni kemur fram að vandi íþróttahreyfingarinnar sé
m.a. sá að skortur sé á settum reglum innan hennar, sem geri það refsi-
vert að íþróttamenn hagræði úrslitum eða hafi óeðlileg áhrif á kappleiki.
Fimmtán Evrópuþjóðir samþykktu samning til að taka á hagræðingu
úrslita í íþróttum árið 2014 og hafa 30 þjóðir nú gert það. Ísland undir-
ritaði samninginn í nóvember 2014 en hafði árið 2018 ekki fullgilt
hann. Fram kom árið 2018 að unnið væri að því. Fyrsta skrefið hefði
verið að skipa starfshóp árið 2015 sem myndi leggja fram tillögur að
því hvað gera þyrfti til að samningnum væri best framfylgt hér á landi.
Tillögurnar litu dagsins ljós árið 2018. Síðan þá hefur lítið gerst.
Starfshópurinn lagði fram 10 tillögur sem miða að því að vinna
gegn hagræðingu úrslita í íþróttum. En lítið hefur gerst síðan þá.
Sjá: Hagræðing úrslita í íþróttakeppnum:
Alþjóðasamningur Evrópuráðsins um hag-
ræðingu úrslita í íþróttakeppnum. Skýrsla
og tillögur starfshóps um innlent og alþjóð-
legt samstarf.
694 62 53 47 15
11 9 6 5 1
Fótbolti körfubolti Tennis Rafíþróttir Íshokkí
Borðtennis Krikket Blak Handbolti Strandblak
Greinar með grunsamleg úrslit
(fjöldi grunsamlegra leika)
Pétur Hrafn Sigurðsson.