Skinfaxi - 01.01.2022, Blaðsíða 32
32 S K I N FA X I
„Saga Ungmennasambands Eyjafjarðar er mjög tvinnuð saman við sögu
þjóðlífs í Eyjafirði síðastliðin hundrað ár. Hún er stórmerkileg, enda
alls ekki sjálfgefið að ungmennasambönd nái þetta háum aldri,“ segir
fjölmiðlamaðurinn Óskar Þór Halldórsson, sem vinnur að ritun sögu
UMSE. Söguritið kemur út í tengslum við aldarafmæli sambandsins í
apríl. Um er að ræða um tvö hundruð blaðsíðna litríka og vel mynd-
skreytta sögu í tímaritaformi.
Óskar segir sögu UMSE afar spennandi og litríka og því hafi hann
heillast af verkefninu þegar það var kynnt fyrir honum á sínum tíma.
„Það var margt að gerast og breytast í þjóðfélaginu alveg frá fyrri
hluta aldarinnar og fram yfir miðja öldina. Ungmennafélagar voru eld-
hugar sem stóðu í framvarðarsveitinni fyrir ungmennasambandið og
ungmennafélagshreyfinguna og létu líka mjög að sér kveða í félags-
málum á sambandssvæðinu, í búnaðarsambandinu, öðrum störfum
og meira að segja á Alþingi,“ heldur hann áfram. „Ungmennafélags-
hreyfingin stóð sig afskaplega vel
í félagslegu uppeldi. Forkólfarnir
hlutu eldskírn sína innan raða
sambandsins og ungmenna-
félagshreyfingarinnar. Félögin
tóku auðvitað virkan þátt í sam-
félagsumræðunni og ályktuðu
um öll heimsins mál og ýmis
þjóðmál, sum eldfim. Eins og
um það hvort hér ætti að vera
her í seinni heimsstyrjöldinni.
Fólk skiptist auðvitað í fylking-
ar. En þetta heyrir nú sögunni
til og áherslur eru orðnar skýra-
ri og skarpari. En vitneskjuna
um söguna verður engu að
síður að vernda svo að hún
gleymist ekki,“ segir hann.
Forkólfarnir
hlutu eldskírn
innan raða UMSE
Ungmennasamband Eyjafjarðar er
einn þeirra sambandsaðila UMFÍ
sem fagna 100 ára afmæli á árinu.
Svarfdælingurinn Óskar Þór
Halldórsson ritar sögu félagsins.
Hann segir mikilvægt að hún verði
lesvæn og skemmtileg.
Söguformið heillar
Óskar ákvað snemma í ritunarferlinu að skrifa sögu UMSE með öðrum
hætti en almennt þekkist og gefa hana út á aðgengilegu formi fyrir sem
flesta. Í ritinu er mikill fjöldi mynda úr sögu sambandsins. Vel gekk að
nálgast myndir og var fólk velviljað þegar Óskar falaðist eftir því að fá
að glugga í albúm. Hann notar sem dæmi margar myndir úr safni Þór-
odds heitins Jóhannssonar, sem var um tíma formaður og framkvæmda-
stjóri UMSE.
„Hann var mjög duglegur að taka myndir af viðburðum UMSE á sjö-
unda og áttunda áratugnum og hélt vel utan um safnið. Það er algjör-
lega ómetanlegt að fá aðgang að því,“ segir Óskar og tekur sem dæmi
að í safninu séu gríðarlega flottar liðsmyndir af ungum fótboltamönn-
um í aðildarfélögum UMSE á áttunda áratug síðustu aldar. Strákarnir
hafi verið á aldrinum 15–20 ára á þeim tíma en standi líklega flestir við
sjötugt í dag.
Frjálsíþróttamenn sem störfuðu í lögreglunni. F.v.: Sigurður Matthías-
son, Aðalsteinn Bernharðsson og Einar Vilhjálmsson.
Þátttakendur og leiðbeinendur frá UMFÍ á félagsmálanámskeiði í Svarfaðardal vorið 1976.