Skinfaxi - 01.01.2022, Side 33
S K I N FA X I 33
Verkefnastjóri Landsmóts
UMFÍ 2009 úr Svarfaðardal
Óskar er Svarfdælingur og var í
félaginu Þorsteini Svöfurði á yngri
árum. „Ég keppti í skólasundi og
spilaði knattspyrnu undir merkj-
um félagsins á héraðsmótum en
hef að öðru leyti ekki verið virkur
í starfi félagsins eða íþróttum yfir
höfuð. En ég þekki sambandið
vel og svæðið allt eftir störf mín í
blaðamennsku til fjölda ára.
Félögin marka djúp spor í hverri
sveit og auðvitað þekki ég per-
sónulega marga sem hafa komið
við sögu UMSE því þau tengjast
sögu Eyjafjarðar,“ segir hann.
Ungmennasamband Eyjafjarðar hefur komið að framkvæmd
þriggja Landsmóta UMFÍ í gegnum tíðina og er umfjöllun um
hvert þeirra í sögu Óskars. Þetta eru mótin árin 1955, 1981 og
það síðasta sem var árið 2009. En ofsögum er reyndar sagt
að hann hafi ekkert tengst starfi UMSE á fullorðinsárum. Þegar
Landsmót UMFÍ var haldið á Akureyri var leitað til Óskars og
var hann verkefnastjóri mótsins með Ómari Braga Stefánssyni,
framkvæmdastjóra mótsins.
Óskar Þór Halldórsson.
„Þeir hafa kannski séð myndirnar á sínum tíma. En þær hafa ekki ver-
ið sýndar opinberlega og fáir hafa séð þær síðan þær voru framkallað-
ar,“ segir hann og bætir við að þótt vissulega hafi hann skoðað frum-
heimildir sambandsins byggi hann söguna ekki á þeim og fundargerð-
um við söguritunina nema að litlu leyti. Þess í stað er saga UMSE rakin
með ógrynni viðtala við fólk sem hefur tengst UMSE með einum eða
öðrum hætti, fyrrverandi stjórnarfólk og íþróttafólk sem gerði það gott
undir merkjum sambandsins og aðildarfélaga á sambandssvæðinu.
Þar á meðal eru skíðakappinn Björgvin Björgvinsson, frjálsíþróttakonan
Snjólaug Vilhelmsdóttir, sem búsett er í Þýskalandi, og margir fleiri.
„Ég einfaldlega valdi það sem var áhugaverðast í sögu UMSE frá
upphafi og skrifaði greinar um eitt og annað sem tengist henni síðast-
liðin hundrað ár. Þetta er ekki í tímaröð. En auk þess er margt forvitni-
legt og gagnlegt í sögunni. Þar á meðal er þar á einum stað stjórnar-
mannatal og listi yfir allar varastjórnir síðastliðin 100 ár ásamt afreka-
skrá í frjálsum íþróttum. Þetta er því bæði áhugavert og skemmtilegt
og gagnleg söguritun. Tímaritaformið hentar mjög vel til þess, auk þess
sem sagan verður líflegri á allan hátt. Ég tel það hvetja til lesturs og ná
mögulega langt út fyrir raðir lestrarhesta og unnendur almennra sagn-
fræðirita,“ segir Óskar, sagnaritari UMSE.
Keppendur frá UMSE við setningu á Unglingalandsmóti UMFÍ.
Björgvin Björgvinsson í stórsvigi í alpagreinum í Val d'Isere í Frakklandi árið 2009.