Skinfaxi - 01.01.2022, Page 34
34 S K I N FA X I
P 187
C15 M100 Y100 K4
R172 G37 B43
4
Takk fyrir stuðninginn
112 ára Ungmennasamband Skagafjarðar (UMSS), 17. apríl 1910
112 ára Héraðssambandið Skarphéðinn (HSK), 14. maí 1910
110 ára Ungmennasamband Austur-Húnvetninga (USAH),
30. mars 1912
110 ára Ungmennasamband Borgarfjarðar (UMSB), 26. apríl 1912
108 ára Héraðssamband Þingeyinga (HSÞ), 31. október 1914
104 ára Ungmennasamband Dalamanna og Norður-Breiðfirðinga
(UDN), 24. maí 1918
100 ára Ungmennasamband Eyjafjarðar (UMSE), 8. apríl 1922
100 ára Héraðssamband Snæfellsness- og Hnappadalssýslu (HSH),
24. september 1922
100 ára Ungmennasamband Kjalarnesþings (UMSK),
19. nóvember 1922
93 ára Keflavík íþrótta- og ungmennafélag (Keflavík),
29. september 1929
93 ára Ungmennasambandið Úlfljótur (USÚ), 29. sept. 1929
91 árs Ungmennasamband Vestur-Húnvetninga (USVH),
28. júní 1931
90 ára Ungmennafélagið Þróttur Vogum, 23. október 1932
87 ára Ungmennafélag Grindavíkur (UMFG), 3. febrúar 1935
81 árs Ungmenna- og íþróttasamband Austurlands (UÍA),
28. júní 1941
78 ára Ungmennafélag Njarðvíkur (UMFN), 10. apríl 1944
78 ára Íþróttabandalag Reykjavíkur (ÍBR), 31. ágúst 1944
78 ára Héraðssamband Strandamanna (HSS), 19. nóv. 1944
78 ára Íþróttabandalag Akureyrar (ÍBA), 20. desember 1944
76 ára Íþróttabandalag Akraness (ÍA), 3. febrúar 1946
52 ára Ungmennasamband Vestur-Skaftafellssýslu (USVS),
21. júní 1970
51 árs Héraðssambandið Hrafna-Flóki, febrúar 1971
40 ára Héraðssamband Bolungarvíkur (HSB), 15. des. 1982
35 ára Ungmennafélagið Vesturhlíð (UV), 27. maí 1987
22 ára Héraðssamband Vestfirðinga (HSV), 30. apríl 2000
13 ára Ungmenna- og íþróttasamband Fjallabyggðar (UÍF),
25. maí 2009
Aldur, afmælisdagar og stofnár sambandsaðila UMFÍ
Árið 1997, í tilefni 90 ára afmælis síns, gaf UMFÍ út ritið Félaga-
tal ungmenna- og íþróttafélaga sem stofnuð voru 1854–1994.
Höfundur ritsins var Þorsteinn Einarsson, fyrrverandi íþrótta-
fulltrúi ríkisins. Í ritinu eru upplýsingar um öll íþrótta- og ungmenna-
félög og samtök þeirra sem stofnuð voru á þessu 140 ára tímabili.
Í ritinu er m.a. sagt frá stofnun UMSE. Þar segir:
„Á seinnihluta sambandsþings UMFÍ 1908, sem haldinn var í Reykja-
vík, var félögunum skipt milli fjórðungssambanda. Ungmennafélögin
við Eyjafjörð voru i Fjórðungssambandi Norðurlands. Fljótt kom í ljós
að fjórðungssvæðin voru of stór, til þess að samstarf væri virkt, svo sam-
tök urðu til milli félaga á smærri svæðum. Við Eyjafjörð varð til 1917
félagið Kynning, sem að stóðu Umf. Skriðuhrepps, Umf. Möðruvalla-
sóknar og Umf. Öxndæla: „...til þess að kynna félagsskapinn...“. Inn
í þetta samstarf gekk 1918 Umf. Vorhvöt, Glæsibæjarhreppi. Félagið
Kynning starfaði fram yfir stofnun Ungmennasambands Eyjafjarðar
08. 04. 1922. Sambandssvæði UMSE náði frá Fljótum, Skagafirði, um
Siglufjörð, Ólafsfjörð, Eyjafjarðarsýslu, Akureyri, Svalbarðsstranda- og
Grítubakkahreppa í Suður-Þingeyjarsýslu. Stofnfélögin voru: Umf.
Árroðinn, Öngulsstaðahrepps, Umf. Vorboðinn, Saurbæjarhrepps,
Umf. Svarfdælahrepps, Umf. Ólafsfjarðar, Umf. Haganesvíkur í Fljótum,
Umf. Siglufjarðar, Umf Akureyrar og Umf. Dagsbrún, Grýtubakkahrepps
(alls 12 félög). UMSE sagði sig úr UMFÍ 1934 en gekk inn í það aftur
1939. Óstaðsett Skotfélag Eyjafjarðar, var sameinað 1993 Skotfélagi
Akureyrar, sem starfar í tveikur deildum Íþróttadeild og Skotveiðideild.“
Tólf félög stofnuðu Ungmennasamband Eyjafjarðar