Skinfaxi - 01.01.2022, Side 37
S K I N FA X I 37
Hver er staðan hjá þér?
Eru vísbendingar um að börn og ungmenni séu að hætta
íþróttaiðkun á þínu sambandssvæði eða í félaginu þínu?
Eða er þróunin kannski önnur og iðkendum að fjölga?
Hver ætli ástæðan sé? Við viljum heyra sögurnar.
Þú getur sent okkur tölvupóst á umfi@umfi.is með helstu
upplýsingum og við höfum samband.
Þegar iðkendur leita annað
„Við höfum áhyggjur af stöðunni í barnastarfinu. Iðkendum hefur verið
að fækka, samsetning íbúanna í sveitarfélaginu að breytast og eldri iðk-
endur farnir að æfa annars staðar,“ segir Petra Ruth Rúnarsdóttir, for-
maður Þróttar Vogum. Upplýsingar um þróunina hafa ekki formlega
verið teknar saman og leggur Petra áherslu á að um tilfinningu stjórnar
Þróttar sé að ræða.
Á stjórnarfundi Þróttar í mars var rætt um vísbendingar um að iðkend-
um hefði fækkað hjá félaginu. Petra segir að hægt sé að finna nokkrar
skýringar á fækkuninni þótt fleira þurfi líklega að koma til.
„Þegar hverfin voru að byggjast upp hjá okkur í kringum 2005 flutti
margt ungt fólk með börn í sveitarfélagið. Þá varð samsetning töluvert
óvenjuleg miðað við önnur sveitarfélög, enda fjölgaði börnum hratt.
Börnin eru nú orðin eldri og aldurssamsetning íbúa er því að færast í
eðlilegra horf samanborið við önnur sveitarfélög,“ segir Petra.
Aldur barnanna helst í hendur við fækkun nemenda við grunnskóla
bæjarins og telur Petra að mögulega líði íþróttastarfið fyrir það að upp-
sveiflan hafi jafnað sig.
„Það koma auðvitað hæðir og lægðir í starfinu og hefur það sést
gegnum árin og mögulega var það tímaspursmál hvenær iðkendum
færi að fækka. En maður vill síst að það þróist svona fljótt og barna-
starfið brotlendi. Ég vil frekar að við grípum inn í þróunina og finnum
leiðir til að sporna við brottfalli,“ heldur hún áfram.
Íþróttahúsið lekur
Til viðbótar við fækkun af svo að segja náttúrulegum ástæðum lak
íþróttahúsið í Vogum með þeim afleiðingum að miklar vatnsskemmdir
urðu á gólfi hússins og óvíst er hver staðan er á því.
„Við óttumst að staða íþróttahússins ýti krökkunum til annarra félaga,
sérstaklega stelpunum sem stunda knattspyrnu. Við erum svo fá að þær
ná ekki í lið. Krakkarnir vilja auðvitað keppa og leita skiljanlega annað.
Þær hafa því margar verið með annan fótinn í öðrum félögum og þrýst
á vinkonur sínar að koma yfir. Þær fara aðallega til Njarðvíkur og mögu-
lega einhverjar í Hafnarfjörðinn. Nú þegar við höfum engan íþróttasal
fyrir þær eykst hættan á því að þær fari nánast allar yfir til annarra félaga,“
heldur Petra áfram og rifjar upp að mjög vel hafi gengið í gegnum tíð-
ina að kynna íþróttastarfið þegar þjálfarar félagsins heimsóttu nemend-
ur í skóla. Það hafi fallið niður í Covid-faraldrinum. Í staðinn hafi for-
svarsfólk Þróttar auglýst á heimasíðu og samfélagsmiðlum auk þess
að hafa fengið að senda upplýsingar gegnum skóla á alla foreldra. Það
hafi ekki tekist jafn vel.
Sú breyting varð þó á íþróttamálum í Vogum um mánaðamótin að
Breyta fyrir-
komulagi
íþrótta
yngstu barna
Fyrir eitt verð geta börn prófað og
æft margar íþróttagreinar.
Íþróttafélagið Höttur á Egils-
stöðum áformar að taka upp nýtt
fyrirkomulag í æfingum barna í
fyrsta og öðrum bekk. Börnin
þurfa ekki að velja á milli íþrótta-
greina heldur mega þau prófa allt
sem í boði er. Þetta er talið geta
seinkað framförum barnanna í íþróttum fyrst um sinn en dregið líka úr
líkum á að þau hætti í íþróttum. Svipað fyrirkomulag er hjá Íþrótta-
félagi Reykjavíkur (ÍR) sem býður öllum börnum á fyrsta og öðru ári
grunnskóla að iðka allt að sex íþróttagreinar fyrir eitt verð. Með því
móti fá þau tækifæri til að kynnast og prófa margar íþróttagreinar. Þau
mega jafnframt færa sig á milli greina eins og þeim hentar. Í boði eru
keila, körfubolti, knattspyrna, handbolti, skíði, frjálsar, karate og tae-
kwondo.
Þróttur tók yfir rekstur íþróttahússins af sveitarfélaginu. Petra sér sóknar-
færi í því og er undirbúningur fyrir skipulag barnastarfs fyrir næsta
haust hafinn.
„Með því að reka húsið getum við haldið betur utan um krakkana.
Þá getum við nýtt tíma sem ekki er verið að selja í og boðið upp á skot-
bolta, pílukast og fleira sem höfðar til krakkanna,“ segir hún og telur
að íbúum Voga muni fjölga á næstu fimm árum.
„Ég bind vonir við að barnafólk flytji hingað. Það er mikil uppbygg-
ing í gangi. Þegar fólkið kemur vil ég að við verðum búin að byggja
sterkan grunn í íþróttahúsinu og verðum tilbúin að taka á móti þeim.
Það á að vera hjarta bæjarins og að öðru heimili fyrir börnin, sem leiki
sér hér. Við erum stolt af því að vera ungmennafélag og getum nýtt
okkur það. Við höfum tækifæri þar til að bjóða upp á fjölbreytt félags-
starf eins og leiklist, spilakvöld fyrir fjölskyldur, börn og eldri borgara
og margt fleira. Félagið á að höfða til allra. Félagið á að endurspegla
áhugamál sem flestra félagsmanna en ekki fárra og sjáum við tækifæri
í að gera það enn betur með því að reka nú íþróttahúsið,“ segir Petra
Ruth, formaður Þróttar Vogum.
Petra Ruth Rúnarsdóttir.
Sveinn Þorgeirsson.
Sveinn Þorgeirsson, aðjúnkt við Íþróttafræðisvið Háskólans í Reykja-
vík, vinnur með íþróttafélaginu að nýja fyrirkomulaginu. Í því felst að
foreldrar borga aðeins eitt gjald. Það gefur barni þeirra kost á að æfa
hvaða grein sem er. Æfingum er fækkað og æfingatími samstilltur.
„Til lengri tíma ætti ávinningurinn helst að vera sá að það yrði betri
ástundun og minna brottfall til lengri tíma. Fjölbreyttur grunnur þar
sem krakkarnir þróa með sér fjölbreyttari og betri grunnfærni. Og
það er ekki fyrr en við komum inn á kynþroskaaldurinn sem við sjáum
hvaða líkamsburði einstaklingarnir hafa. Hvar þeir muni finna sig ekki
bara líkamlega heldur líka andlega,“ sagði Sveinn í viðtali við RÚV.