Skinfaxi - 01.01.2022, Qupperneq 42
42 S K I N FA X I
HVAÐ ER AÐ
FRÉTTA?
Erla Þórey hjá USVS hefur í vor staðið í flutn-
ingum. Hún situr uppi með nokkra kassa af
gömlum rykföllnum bikurum sem enginn veit
hvað á að gera við og enginn vil henda.
Við þekkjum mörg vandræðaganginn með gamla bikara. Þeir eru alls
konar, stórir og smáir, á þá fellur og þeir eiga það til að daga uppi á
hillum og í skápum, í pappakössum í geymslum félaga víða um land
og jafnvel inni í bílskúr gamalla iðkenda. Ekki hefur tíðkast að henda
gömlum djásnum af þessu tagi.
Þetta er ekki einsdæmi. Erla Þórey Ólafsdóttir, framkvæmda-
stjóri Ungmennasambands Vestur-Skaftafellssýslu (USVS), er einmitt í
þessum sporum.
„Við erum á milli húsa og erum í vandræðum með alla bikarana.
Þetta eru nokkrir kassar hér með bikara af öllum stærðum og gerðum.
Við höfum flutt nokkrum sinnum og nú þarf ég að flytja þessa blessuðu
bikara enn einu sinni. Við höfum aldrei tekið umræðuna um hvað skuli
gera við þá,“ segir hún.
Skrifstofa USVS hefur síðastliðið árið verið til húsa í Kirkjubæjarstofu.
Nú er hún að flytja og þarf að færa alla munina annað. Þar á meðal eru
nokkrir kassar með bikurum frá ýmsum tímum í sögu USVS og íþrótta-
sögu Skaftfellinga.
Bikararnir sem eru frá mörgum mótum eru sumir komnir vel til ára
sinna. Í reglugerð um verðlaunagripi USVS, sem samþykkt var á árs-
þingi USVS 2019, segir meðal annars að aðildarfélögin séu hvött til að
hafa gripina til sýnis á áberandi stað bæði til kynningar og hvatningar.
Stjórn USVS skuli halda skrá um alla verðlaunagripi sem í gangi eru
hverju sinni og hverjir eru handhafar þeirra. Reglugerðin nær til allra
bikara, en þó einkum farandbikara. En svo eru þeir sem afhentir voru
fyrir mörgum árum og hafa almennt litla merkingu í samtímanum.
„Sumir eru frá um 1970 frá alls konar viðburðum, hafa verið afhentir
á stigamótum, héraðsmótum og við ýmis tækifæri. Við erum auðvitað
með stóru bikarana, farandbikara sem íþróttafólk ársins fær og fyrir
ýmsa aðra viðburði. Þeir hafa alltaf verið til sýnis í íþróttahúsinu. En all
nokkrir eru fyrir minni viðburði og hafa jafnvel verið afhentir í greinum
sem enginn keppir hér lengur í. Við höfum heldur aldrei sýnt þá opin-
berlega, að því er ég best veit,“ segir hún.
Erla velti því fyrir sér að henda bikurunum en var
snarlega bent á að það tíðkaðist ekki, bikarar hefðu afar
mikið tilfinningalegt gildi fyrir ýmsa félagsmenn og ekki væri vel séð
að sjá slíka gripi í ruslinu.
Enginn hefur skoðað bikarana enn sem komið er og metið mikilvægi
þeirra fyrir sögu USVS. Erla þekkir ekki mikilvægi þeirra heldur, né
neinn í hennar umhverfi.
Erla segir hafa dregið úr afhendingu bikara fyrir eins marga viðburði
og tíðkaðist áður.
„Það voru afhentir bikarar við ýmis tækifæri. Við höfum afhent bikara
við allt of mörg tilefni. En ég held að þessi hugsun sé að hætta enda
orðið léttvægt að fá bikar fyrir skammvinna viðburði og stutt mót. Við
verðum líka að gera það því hætt er við að við sitjum uppi með gamla
bikara sem taka pláss, safna ryki og enginn veit hvað á að gera við,“
segir Erla.
Hvað á að gera
við gamla bikara?
USVS í hnotskurn
Sambandssvæðið nær yfir Vestur-Skaftafells-
sýslu, þ.e. Mýrdalshrepp og Skaftárhrepp,
frá Jökulsá á Sólheimasandi í vestri, austur á
Skeiðarársand. Þéttbýlisstaðir eru Vík í Mýrdal
og Kirkjubæjarklaustur.
Aðildarfélög USVS eru:
Hestamannafélagið Kópur
Hestamannafélagið Sindri
Ungmennafélagið Ármann
Ungmennafélagið Katla
Ungmennafélagið Skafti
Hvað er gert við gamla bikara hjá ykkar félögum?
Okkur langar til að heyra í ykkur. Hafið samband við þjónustu-
miðstöð UMFÍ í síma 568 2929 eða sendið skeyti á umfi@umfi.is
og segið okkur frá því hvað þið gerið við gamla bikara. Þið getið
líka sent okkur skeyti á Facebook-síðu UMFÍ.