Bókasafnið - 01.01.2004, Page 3

Bókasafnið - 01.01.2004, Page 3
BÓKASATNIÐ 28. árgangur 2004 Efni blaðsins 2 Upplýsingamiðstöð í Nýheimum á Höfn / Árni Kjartansson og Gísli Sverrir Árnason 7 Hringur þekkingar : úr sögu alfræðirita / Áslaug Agnarsdóttir 16 Varðveisla íslenskra vefsíðna / Þorsteinn Hall- grímsson 23 Lokaverkefni í Kennaraháskóla íslands : grein- ing á heimildaskrám frá árunum 2002 og 2003 / Kristín Indriðadóttir og Þórhildur S. Sigurðar- dóttir 29 Þekkingarveita á norðurslóð : Landsbókasafn á breyttum tímum / Dr. Sigrún Klara Hannes- dóttir 35 GATS-samningurinn og bókasöfn / Páll H. Hannesson 41 Staða bókasafna gagnvart alþjóðlegum við- skiptasamningum / Einar Ólafsson 48 Vandratað um frumskóg Evrópuupplýsinga? / Þóra Gylfadóttir og Guðrún Tryggvadóttir 51 Bækur og líf 54 Afgreiðslutími safna í apríl 2004 60 Höfundar efnis Frá ritstjóra Undirrituð lætur nú af starfi ritstjóra Bóka- safnsins eftir að hafa sinnt því í fjögur ár. Þetta hafa verið mér lærdómsrík ár í mörgum skilningi því að á sama tíma hef ég starfað að innleiðingu bókasafnskerfisins Gegnis. Sameiginlegt bókasafnskerfi fyrir allt landið virtist fjarlægur draumur fyrir nokkrum árum en er nú smám saman að verða að veruleika, þökk sé þeim kraftmikla hópi hugsjónafólks sem vann hugmyndinni brautargengi meðal stjórnenda íslenskra bókasafna og innan menntamálaráðuneytisins. Þetta framtak nálgast það að vera einstakt í heiminum því hvergi annarsstaðar hafa jafnmörg ólík bókasöfn ákveðið að það sé mikilvægara að beina kröftunum að því sem sameinar þau en hinu sem aðskilur þau. Vissulega er mikið starf enn óunnið en merkur áfangi náðist þó nú í byrjun apríl þegar öll söfnin sem notað höfðu bókasafnskerfið Feng í meira en áratug, nálægt 100 talsins, tóku Gegni formlega í notkun. Nú má leita í safnkosti allra stærstu safna landsins á Netinu - á gegnir.is - og þau hafa því ekki bara galopnað allar dyr sínar fyrir notendum, heldur mætti kannski segja að þetta jafngildi því að þau hafi einnig rifið milliveggina og gert eitt safn úr mörgum. 28. árgangur Bókasafnsins sem nú kemur út hefur ekkert eiginlegt meginþema, en spannar fjölbreytt við- fangsefni á sviði bókasafns- og upplýsingafræða. Hér má finna greinar um varðveislu veraldarvefsins, greiningu á heimildaskrám lokaritgerða í KHÍ, sögu alfræðirita, nýja menningarmiðstöð og bókasafn á Hornafirði, skipulags- breytingar á Landsbókasafni, miðstöð Evrópuupplýsinga við Háskólann í Reykjavík og tvær greinar byggðar á fyrirlestrum sem fluttir voru á málþingi Upplýsingar þann 9. október 2003 um bókasöfn og alþjóðlega við- skiptasamninga. Höfundum greina er þakkað fyrir framlag þeirra til blaðsins og einnig vil ég þakka öllum samstarfskonum mínum í ritnefndinni undanfarin ár kærlega fyrir ánægju- legt samstarf og vel unnin störf að útgáfunni. Nýjum ritstjóra, Evu Sóley Sigurðardóttur, óska ég velfarnaðar og er þess fullviss að blaðið mun halda áfram að blómstra undir hennar stjórn. Dögg Hringsdóttir Mynd á kápu: Gamli og nýi tíminn. Ljósm. Dögg Hringsdóttir. Útgefandi / Publisher: Upplýsing. Félag bókasafns- og upplýsingafræöa / Information. The Icelandic Association of Library and Information Science ISSN: 0257-6775 Heimilisfang / Address: Bókasafniö, c/o Eva Sóley Sigurðardóttir Grænuhlíö 13 105 Reykjavík Ritnefnd / Editorial board: Dögg Hringsdóttir, ritstjóri/editor Eva Sóley Siguröardóttir, ritari Kristín Ingunnardóttir, gjaldkeri Kristín Ósk Hlynsdóttir, umsjón meö netútgáfu Emilía Sigmarsdóttir, meðstjórnandi Auglýsingar: Hænir sf., Ármúla 36,108 Reykjavík Sími: 533 1850, bréfsími: 533 1855 Prentun: Gutenberg Letur: Caecilia 9 pt á 13 pt fæti Bókasafnið hefur frá árinu 1989 verið lyklað í Library & Information Science Abstracts (LISA) Veffang/URL: http://www.bokasafnid.is Netfang/email: ritnefnd@bokasafnid.is

x

Bókasafnið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.