Bókasafnið - 01.01.2004, Blaðsíða 13
man. See Homo. Ein af lengri greinunum er um
örkina hans Nóa og gengið út frá því að hún hafi verið
staðreynd. Til dæmis er rúmmál hennar reiknað út
ásamt fæðuþörf dýranna. í fyrstu útgáfunni var líka
hægt að slá upp ýmsum hagnýtum upplýsingum, svo
sem hvernig skyldi bera sig að við að draga tennur úr
fólki, aflima slasað fólk eða aðstoða við fæðingar. Það
mátti læra rétta aðferð við að brugga öl eða sjóða
sultu. Höfundarnir lágu heldur ekki á skoðun sinni
um ýmis viðkvæm málefni, þrælahald er fordæmt og
lítið gert úr galdratrú.
Britannica hefur alls verið gefm út fimmtán sinn-
um í bókarformi. Nokkrar útgáfur hafa skarað fram
úr. í annarri og þriðju útgáfunum (1810) var bætt við
heilmiklu af nýju efni og var Britannica þá búin að
festa sig í sessi sem fremsta alfræðiritið á Vestur-
löndum. Níunda útgáfan sem kom út í 24 bindum á
árunum 1875-1889 var afar vönduð. Sú útgáfa var
kölluð alfræðirit fræðimannanna (scholars’ encyclo-
pædia) meðal annars vegna þess að hátt á annað
hundrað evrópskir og bandarískir fræðimenn lögðu
henni til efni. í ritinu voru fáar en ítarlegar fræðilegar
greinar. Ellefta útgáfan sem kom út í Cambridge 1910-
1911 í 29 bindum þykir svo bera af. Þá var tekin sú
stefna að fjölga greinunum með því að gera fleiri
stuttar greinar úr þeim sem voru lengstar. Markmiðið
með þessu var að gera ritið aðgengilegra fyrir
almenning.
Árið 1920 gerðust þau stórtíðindi að Sears,
Roebuck & Co. í Chicago keypti Britannicu og eftir það
er útgáfan talin vera bandarísk. Síðar eignaðist
Háskólinn í Chicago útgáfuréttinn (1941). í 14. útgáf-
unni (1929) voru greinarnar styttar enn meira og nýju
efni bætt inn. Hún þótti þá vera orðin úrelt að mörgu
leyti því 12. og 13. útgáfurnar voru nánast óbreyttar. í
lok fjórða áratugarins var ákveðið að efni hennar
skyldi endurskoðað reglulega og hún prentuð árlega.
Árið 1938 var líka farið að gefa út Árbók Britannicu
með yfirliti yfir það helsta sem þótti markvert á
árinu. Því miður var Britannica oftast endurprentuð
án þess að greinarnar væru yfirfarnar. Mátti þar enn
finna fimmtíu ára gamla grein um tónskáldið Johann
Sebastian Bach árið 1962. Eins þótti vanta betri
umfjöllun um listir og það vantaði alveg greinar um
ýmsa þekkta málara svo sem Braque, Klee og
Kandinskíj.
Árið 1964 gaf maður að nafni Harvey Einbinder út
bók sem hét The Myth ofthe Britannica og í henni lýsti
hann rannsóknum sínum á Britannicu. Hann komst
að því að hún væri orðin afar gamaldags og hefði þar
að auki að geyma beinlínis villandi upplýsingar. Bók
Einbinders hafði mikil áhrif. Árið 1968, á 200 ára
afmæli ritsins, var Britannica gefin út aftur og hafði
þá allt efni hennar verið endurskoðað. Einnig fylgdu
registur og atlas í sérbindum. Þessari útgáfu var þó
ekki gefið númer. Á sjöunda áratugnum var hafinn
undirbúningur að gjörbreyttri útgáfu og árið 1974 var
hin svokallaða 15. útgáfa Britannicu gefin út með
nýju skipulagi. Þar er efnið þrískipt: Micropædia í 10
bindum með stuttum og hnitmiðuðum greinum með
tilvísunum í lengri greinar í 19 bindum Macropædiu.
(Þessir hlutar eru stundum kallaðir Mike og Mac í
daglegu tali.) Auk þess fylgir eins binda Propædia,
sem á að vera yfirlit yfir þekkingarkerfi ritsins. Með
þessari útgáfu má segja að ritið hafi verið orðið
alþjóðlegt því meira en 4.000 höfundar frá rúmlega
eitt hundrað löndum lögðu því til efni.
í gegnum tíðina hafa margir frægir menn og konur
skrifað greinar í Britannicu. Sigmund Freud skrifaði
um sálgreiningu, Leó Trotskíj um Lenín, Niels Bohr
um atómið, Robert Baden-Powell um skátahreyf-
inguna, Max Reinhardt um leikhúsfræði og svo má
lengi telja. Nokkrir íslendingar haft lagt til efni í
Britannicu. í elleftu útgáfunni eru til að mynda
greinar um Jónas Hallgrímsson, Jón Sigurðsson, Jón
Thoroddsen og Grím Thomsen eftir Sigfús Blöndal og
um landafræði og jarðfræði íslands eftir Þorvald
Thoroddsen.
Snemma á tíunda áratug síðustu aldar kom
Britannica út á CD-ROM og árið 1994 varð hún fyrst
alfræðirita aðgengileg á Netinu. Eins og lesendur vita
hefur öll íslenska þjóðin aðgang að netútgáfunni eftir
að samningar um landsaðgang tókust árið 1999.
Þakgerð. Úr Encyclopédie.
BÓKASAFNIÐ 28. ÁRG. 2004
11