Bókasafnið - 01.01.2004, Qupperneq 32

Bókasafnið - 01.01.2004, Qupperneq 32
ýmsir aðilar sem talið var að gætu átt hagsmuna að gæta að safnið hefði skýra sýn á upplýsingarþarfir framtíðarinnar. í Borgarnesi áttu menn að sjá fyrir sér hvernig safnið ætti að líta út eftir 5 ár og hvað þyrfti að gera til að ná þeirri framtíðarsýn. í reynd varð hugmyndaregnið mikið og heim komum við með 92 hugmyndir sem lagðar höfðu verið fram af þessum hópi, þeim hafði verið forgangsraðað og menn reynt að átta sig á hver væri vilji þessa hóps varðandi framtíðarsýn og forgangsröðun. Niðurstöðurnar voru síðan lagðar fram í stefnumótunarskjali sem ber heitið Þekkingarveita á norðurslóð. Með öll þessi gögn í höndum var næst að hefja þriðja þrepið í vinnslu stefnu og aðgerða en það var að kortleggja þau verkefni sem verið var að vinna í safninu sjálfu eða þurfti að vinna. Þessi verkefni voru mjög mislangt komin. Sum voru rétt á hugmynda- stigi en önnur höfðu lent í biðstöðu vegna tímaskorts eða fjárskorts og með þessari kortlagningu stækkaði hugmyndabankinn enn meir og verkefnaáætlunin stækkaði jafnt og þétt. Ný stjórn tók við í nóvember 2002. Formaður hennar er Hörður Sigurgestsson en aðrir í stjórninni eru Anna Soffía Hauksdóttir og Hjalti Hugason full- trúar Háskólans, Eydís Arnviðardóttir fulltrúi Upp- lýsingar og Vilhjálmur Lúðvíksson fulltrúi Vísinda- ráðs. Þegar ný stjórn tók við, var vinna við stefnu- mótun komin nokkuð á veg, búið var að skilgreina framtíðarsýn og meginþætti stefnunnar og verið var að forgangsraða verkefnum. Stjórnin samþykkti síðan stefnu safnsins í mars 2003 og var stefnan ásamt aðgerðáætlun birt undir heitinu: Þekkingarveita á norðurslóð: Markmið og aðgerðir 2003-2006. í því skjali er sett fram í hnotskurn framtíðarsýn safnsins næstu 3-4 árin og meginmarkmið safnsins á þessum tíma. Framtíðarsýn Landsbókasafn íslands - Háskólabókasafn er horn- steinn í öflun, varðveislu og miðlun þekkingar um íslenskt samfélag og á sviði vísinda og fræða. Safnið er þekkingarveita sem vinnur að því að veita faglega upplýsingaþjónustu um íslenskt samfélag og tryggja að íslendingar standi jafnfætis öðrum þjóðum hvað varðar aðgengi að hvers kyns þekkingu og upplýs- ingum. Markmið • Að efla safnið sem þjóðbókasafn og bókasafn Háskóla íslands. • Að auka fjölbreytni í þjónustu safnsins og bæta hana. • Að skerpa ímynd safnsins sem þekkingarveitu og efla hlutverk þess sem forystuafls meðal íslenskra bókasafna. • Að efla safnið sem eftirsóttan vinnustað. Þessum markmiðum en síðan fylgt eftir með aðgerðaáætlun þar sem tiltekin eru fjölmörg verkefni sem safnið vill vinna til að koma þessum megin- markmiðum í framkvæmd. Þar komu inn mjög margar af þeim hugmyndum sem fram höfðu komið í stefnumótunarvinnunni og sömuleiðis þau verkefni sem starfsfólk hafði talið upp sem nauðsynleg eða æskileg. í þeirri vinnu sem unnin var við stefnumótun var jafnframt hugað að nauðsynlegum nýjungum í skipulagi safnsins. í lögum um Landsbókasafn eru ákvæði sem segja fyrir um að skipurit og deildar- skipting skuli ákveðin í reglugerð um safnið og í reglugerð voru tilgreindar sex deildir, aðfangadeild, skráningardeild, upplýsingadeild, útlánadeild, hand- ritadeild og þjóðdeild. Þessi deildaskipting er ýmist eftir tegund safnkosts eða eftir starfsemi og var forstöðumaður yfir hverju sviði. Safnráð var eini sameiginlegi vettvangur yfirstjórnar (landsbókavarðar, aðstoðarlandsbókavarðar og fjármálastjóra), forstöðu- manna deilda og starfsmannastjóra. Safnráð var hins vegar aðeins samráðsvettvangur og sömuleiðis höfðu forstöðumenn ekki neitt fjárhagslegt vald og gátu ekki samþykkt fjárframlög til einstakra verkefna innan safnsins Stjórnunarkerfi safnsins hafði ekki tekið miklum breytingum frá því safnið hafði tekið til starfa og til dæmis höfðu sömu aðilar gegnt forstöðumanns- hlutverkunum frá árinu 1994. Árið 1999 hafði þó verið gert nýtt skipurit þar sem fjármálastjóri fékk í sinn hlut umsjón með starfsmönnum í skrifstofuhaldi, rekstri húss og öðrum þáttum sem voru rekstrar- tengd og aðstoðarlandsbókavörður tók við mannafor- ráðum í kerfisþjónustu og tölvumálum, bókbandi, myndastofu og viðgerðum, en ekki varð sjáanleg breyting á hlutverki forstöðumanna né annarra stjórnenda. Forstöðumenn deildanna sex, höfðu ekki nema takmarkaða ábyrgð á starfsemi sinna deilda, til dæmis gerðu þeir ekki fjárhagsáætlanir og höfðu ekki í höndum rekstraráætlun eða kostnaðaráætlun um þá fjármuni sem þeir mættu nota til verkefna innan sinna deilda. Fjármálastjórn var í einu og öllu í höndum yfirstjórnar og hvorki safnráð né forstöðu- menn gerðu áætlanir um kostnað við verkefni safn- sins. í starfsemina vantaði því hvatningu til hagræð- ingar og meðvitund starfsmanna um hvað hlutirnir kosta og hvernig mætti nýta hagræðingu til að ná fram fleiri verkefnum. Vorið 2003 hófst mikil vinna við að greina þarfir, ræða við starfsfólk og móta á hvern hátt starfsemi safnsins og hin nýja stefna gæti best endurspeglast í skipuriti sem er í raun aðeins umgjörð um starf- semina og skilgreiningar á boðleiðum. Ráðgjafar við þetta verk var fyrirtækið Alta undir stjórn Halldóru Hreggviðsdóttur og Runólfur Smári Steinþórsson, 30 BÓKASAFNIÐ 28. ÁRG. 2004
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bókasafnið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.