Læknaneminn


Læknaneminn - 01.11.1965, Side 8

Læknaneminn - 01.11.1965, Side 8
8 LÆKNANEMINN (mani) eða óráð og rugl af utan- aðkomandi orsökum er að ræða. Yfirleitt er hins vegar talið vara- samt að nota það við þunglyndi, vegna þess að það auki á tregðuna, sem fylgir þeim sjúkdómi, en nota þá heldur t.d. Taractan (sjá síð- ar). Promazin eða Sparine (Wyeth) hefur þó nokkuð verið notað hér á landi í „psychiatria minor“, ekki sízt við alkoholismus, þ.e.a.s. óróa og vanlíðan eftir langvarandi mis- notkun alkohols, en einnig við ýms- um öðrum óróa. Er það, eins og nafnið ber með sér, náskylt Chlor- promazininu (-H í stað -C1 í R-2). Eðlismunur á verkun þessara lyf ja er ekki mikill, nema stigsmunur- inn, Promazin 25—50% veikara en Chlorpromazin. Sé það notað til innspýtingar, veldur það mun minni ertingu en Chlorpromazin, hvort heldur er i.m. eða i.v. í síð- ara forminu er þó talið ráðlegt að þynna það með jöfnum hluta salt- vatns. Eituráhrif á lifur eru talin mun minni, a.m.k. af jafnstórum skömmtum. Þrátt fyrir ýmsa góða kosti, hefur notkun Promazins minnkað talsvert, ýmislegt annað komið í þess stað. Sé snúið að efnum þeim, þar sem hliðarkeðju með piperidin- hring er hnýtt við R-l, er hið sama uppi á teningnum og í fyrri flokkn- um, að fá efni eru þar notuð að nokkru marki. Lacumin og Paca- tal voru nokkuð notuð um tíma, en lítið lengur. Eitt efnið í þessum hópi virðist hafa unnið sér fótfestu og er talsvert notað, Thioridazin. Er þar thiomethylhóp hnýtt við R-2. Lyfið gengur undir sérheitinu Melleril. Óþægilegar aukaverkanir eru mjög lítið áberandi, en verk- anir til lækninga eru líka heldur minni en t.d. af Chlorpromazini. Sjálfsagt er þetta lyf hentugast við minni háttar einkenni, kvíða, nokkurn óróa og þess háttar, 10— 25 mg x 3, og jafnvel eru til drop- ar framleiddir handa börnum, þar sem um eitt milligram er í drop- anum, en skammtar frá 10—30 mg á dag eftir aldri. Sé hins veg- ar um svo erfið einkenni að ræða, að 150—300 mg á dag nægi ekki, er heldur farið yfir í önnur sterkar verkandi lyf, því að við stóra skammta og langvarandi notkun hafa komið fram sjónuskemmdir, (degeneratio pigmentosa), sem öll líkindi benda til, að stafi af lyfinu. Að vísu skal þess getið, að þessi einkenni hafa menn rekizt á í sam- bandi við fleiri piperidin-bundin fentiazin. Miklu stærri skammtar en hér hafa verið nefndir hafa svo sem verið notaðir, 800 mg sem viðhaldsdagskammtur, jafnvel 1600—2400 mg, en fáir mundu freistast til slíkra tilrauna nú. Síðasti flokkur fentiazina er sá, sem hefur hliðarkeðju með piper- azinhring bundna við R-l. Þau eru talin kröftugar verkandi en Chlor- promazin, þ.e. sem antipsykotika, en ekki psykosedativa sem því svarar. I þeim hópi eru nokkur allmikið notuð lyf, og enda sum kröftugustu lyfin, sem geðlæknar ráða yfir enn sem komið er. Prochlorperazin eða Stemetil er þekktast sem antiemetikum og hefur verið reynt við Mb. Meniére og sízt með verri árangri en margt annað. Einnig hefur það verið not- að við migraine, þegar ógleði hef- ur verið áberandi. Helzta efnið má að mörgu telja Perphenazin eða Trilafon, sem hef- ur náð allmikilli og sennilega verð- skuldaðri útbreiðslu. I R-2 er klóratómi hnýtt við fentiazin- hringinn. Er það eitt bezta lyfið í þessum flokki, þegar sótzt er eftir antipsykotiskri verkun, en róandi,

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.