Læknaneminn


Læknaneminn - 01.11.1965, Side 10

Læknaneminn - 01.11.1965, Side 10
10 LÆKNANEMINN en margir sjúklingar kvarta mjög um munnþurrk, sem getur verið hvimleiður. í einstaka tilfellum hafa sézt krampar við innspýtingu á stórum skömmtum af þessu lyfi, en þó therapeutiskum að almennu mati. Síðast má svo nefna efni, sem illt er að flokka efnafræðilega nokkurs staðar í kringum þau efni, sem hér hafa verið á döfinni, en að verkan til eru þau ómótmælan- lega skyld, þá nánast sem psyko- sedativum, en það er lithium- ioninn. Stendur hann efnafræðilega mjög nærri natrium- og kalium- ionunum og er oftast notaður sem lithium carbonat. Virðist það verka lyf ja bezt á langvarandi eða síend- urtekin oflæti (mani), dregur úr öllum einkennum án þess að vera á nokkurn hátt svæfandi. Engin extrapyramidal einkenni er að finna sem aukaverkanir, nema ef skyldi telja titring, sem er eitt af fyrstu toxisku einkennunum og ekki hefur fundizt viðhlítandi skýr- ing á. Sjálfsagt er ekki þorandi að byrja lithium-meðferð nema með nákvæmum blóðrannsóknum til þess að fylgjast með magni þess í blóði. Er þá sótzt eftir því, að það sé upp undir 2 mekv/1. Eitur- verkanir geta verið banvænar, þá nephrotoxiskar með anuri. Fyrsta eitrunareinkenni er venjulega, eins og að framan greinir, titringur, síðan svimakennd, þokusýn, ógleði, hljómur fyrir eyrum og fleira. Það var Ástralíumaðurinn Cade, sem varð til að benda á þetta lyf fyrstur manna (1949), en síðan 1953 hefur mikið verið unnið við rannsóknir á verkan lithiums í Danmörku (M. Schou o.fl.), og hefur verið sannað, að með skyn- samlegri og varlegri notkun er þetta eitt af betri lyfjunum, sem ráð er á við maniu. Er fyrsta ör- yggisboðorðið þar, að sjúklingur hafi örugglega nóg af salti í mat og ekki óeðlilega mikinn saltút- skilnað og svo auðvitað að nota það ekki við sjúklinga með nýrna- kvilla eða -insufficience. Hin síðustu árin hefur ýmislegt komið fram, sem bendir til þess, að lithium kunni einnig að vera nothæft með árangri við tíðum þunglyndisköstum (sem oft eru ónæm fyrir verkunum antidepres- sivra lyfja). Væri það auðvitað mikill sigur, ef svo væri, en breytti hins vegar stöðu efnisins í yfirliti á borð við þetta, þar sem ekki væri þá hægt að tala um hreint psykosedativum. Áður en lokið verður þessum kafla um síðastnefnd lyf, skal nefndur enn einn lyfjaflokkur að endingu, en það er sá, er tæpt var á snemma þessa máls, Rauwolfia serpentina rótin og lyf unnin úr henni. Eins og að framan getur, var hreint efni, Reserpin, undir sérnafninu Serpasil unnið úr rót- inni hjá Ciba í Basel árið 1952, og u.þ.b. ári síðar var farið að prófa efnið til lækninga, en þegar árið 1930 skrifuðu tveir læknar, Chen og Bose, um þessa rót í indverskt læknatímarit. Öldum saman áður var hún samt þekkt hjá þarlendum , ,náttúrulæknum“. Verkun lyfsins er ekki fyllilega upplýst, en kemur fram með lækk- uðum blóðþrýstingi, hægari hjart- slætti og ennfremur með almenn- um psykosedativum áhrifum. Eru menn ekki á einu máli um, hvort valdi einkanlega um hið fyrra, sympatisk inhibition eða para- sympatisk stimulation, og þá hugs- anlega við það, að Serotonin losni úr bindingu. En Reserpin virkar einmitt þannig á önnur monoamin, einkanlega Noradrenalin. Aðrir eru þeir, sem telja Reserpin verka

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.