Læknaneminn


Læknaneminn - 01.11.1965, Síða 39

Læknaneminn - 01.11.1965, Síða 39
LÆKNANEMINN 89 Heigi Þ. Valdimarssoui, cand. med. Að embættisprófi loknu fannst mér fróðlegt að leiða hugann að þeirri kennsluskipan, sem ég hafði notið s.l. s]ö ár. Kennslan var þá enn fersk í minni, en einstakir þættir hennar höfðu samt fengið tíma til að renna saman í heildar- mynd, sjónhending, sem glatast, þegar lengra dregur frá prófi. Framundan var ákvörðun um val sérgreinar og framhaldsnám. Þar sem ég var enn óákveðinn, reyndi ég eftir föngum að kynna mér ástand og horfur í íslenzkum heil- brigðismálum. Einnig las ég eitt og annað um læknanám í bókum og tímaritum og hafði þá jafn- framt í huga það nám, er ég hafði nýlega lokið. Læknaneminn hefur að undan- förnu birt greinar og viðtöl um læknanám á Islandi. Allir, sem um málefnið hafa fjallað, virðast álíta nauðsynlegt að gera breytingar, og eru flestir harla róttækir. I 1. tbl. þessa árs ræddi ég málið á breiðum grundvelli og hafði þá við orð að gera síðar nánari grein fyr- ir breytingum, sem gera þarf að mínum dómi. Við nánari yfirvegun og endur- mat hafa nú mótazt með mér hug- myndir um námsskipan, sem ég myndi kjósa, ef ég ætti að hefja námið að nýju. Eru þessar hug- myndir sumpart byggðar á eftir- farandi forsendum: 1. Stytta þarf námstímann, án þess að slá af kröfum um kunn- áttu. Þetta ætti að vera unnt m.a. með því að bæta skipulag og kennslutækni. 2. Auka verður samhengið í náminu og brúa það bil, sem nú er á milli einstakra hluta. 3. Kennsluna þarf að samræma breyttum viðhorfum, þannig að meiri áherzla verði lögð á þær greinar, sem eru að öðlast vaxandi mikilvægi, á kostnað þeirra, sem greinilega eru staðnaðar. 4. Skipuleggja þarf námskeið á annan og betri veg en nú er gert. 5. Breyta þarf fyrirkomulagi prófa. Þau þarf að halda í lok hvers misseris, og verði prófverk- efnin valin á víð og dreif úr náms- efninu. Ganga þarf milli bols og höfuðs á þeim gamla draug, að læknanámi sé lokið með embættis- prófi. Eldri læknir, sem miklu hef- ur gleymt og litlu bætt við sig, er hættulegur. Þess vegna er mik- ilvægara að tryggja, að læknar haldi menntun sinni við, heldur en að krefjast þess af læknastúdent- um, að þeir hafi á takteinum, hvernig tennur verða til eða lyf eru skömmtuð. Tillaga um námsfyrirkomulag. I. ár: a) Eðlisfræði og efnafræði í einni kennslubók, sem ætluð er til undirbúnings fyrir læknanárn. b) Yfirlit yfir líffærafræði. Stú- dentar læri líffæragerð og líffæra- heiti í stórum dráttum og kynnist helztu grundvallarhugtökum. Hæfileg kennslubók væri 400—500 bls. og þar með talið yfirlit yfir almenna vefjafræði. Þeir stúdentar, sem stæðust upphafspróf í fyrrnefndum grein- um myndu taka 4—5 vikna nám- skeið í krufningum og 4 vikna námskeið í einfaldri sárameðferð og hjálp í viðlögum.

x

Læknaneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.