Læknaneminn - 01.06.1970, Qupperneq 12
12
LÆKNANEMINN
oin og lídokaín. Það síðastnefnda
er eingöngu gefið i. v.
Skyndilegur lungnabjiígur
(asthma cardiale).
Meðferð fer eftir, hve kastið er
svæsið. Sé það í mildara lagi, get-
ur hvíld og morfín verið nægjan-
legt til að lagfæra ástandið. Við
hraða atríal fibrillation þarf hrað-
digitaliseringu, láta sjúkling nærri
sitja uppi í rúminu og gefa morfín
20—30 mg s.c., sem dregur úr hinu
kvíðafulla og erfiða ástandi með
því að minnka hina erfiðu öndun
og hindra reflexa, sem valda
hyperventilation. Nauðsynlegt er
einnig að gefa fúrósemíð eða
etakrynsýru i.v., sem hefir svo til
strax mjög ákveðna þvagleysandi
verkun. Þá þarf að gefa súrefni
með grímu eða gegnum nefkathet-
er.
Nýlega hefir komið fram í sviðs-
ljósið lyf — trimethphan cam-
sylate (Arfonad), sem notað hefir
verið við sjúklinga með svæsinn
lungnabjúg, t. d. af völdum há-
þrýstings. Er lyfið gefið i.v. og
er talið valda arteríal og venös
æðavíkkun (vasodilatation), þann-
ig að blóð safnast fyrir í útlim-
um og meltingarfærum með þeim
afleiðingum, að lungnabjúgurinn
hverfur fljótlega. Nægileg reynsla
er vart fyrir hendi á þessu lyfi,
en fylgjast þarf með því.
Á seinni árum er meira gjört af
því að leggja stasa á útlimi held-
ur en að gjöra venesectio. Sam-
eiginlegt er báðum þessum aðgerð-
um, þ. e. Arfonad og stasa á út-
limina, að með þeim er reynt að
minnka hið mikla blóðmagn, sem
hjartað hefir gefizt upp á að dæla
út í líkamann. Auk þess er oft
gefið inj. theophyllamini 0,25—0,5
g i-v.
Endurteknar iijartabilanir.
Eigi sjúklingur ekki sök hér á
með rangri hegðun sinni, þarf að
skerpa meðferðina. Athuga þarf
blóðsöltin og hvort digitalis-
skammtur sé hæfilegur, einnig
hvort aðrir kvillar hafi sett ástand
sjúklings úr skorðum.
Þegar ofangreindar aðferðir og
meðferð ætla ekki að bera tilætl-
aðan árangur, er stundum gripið
til þess að gjöra blóðsíun á sjúkl-
ingi eða gjöra skinusíun (periton-
eal dialysis) með hyperosmótiskri
upplausn, og á þann hátt er sjúkl-
ingur þá losaður við töluvert
vökvamagn, sem hinn hypertón-
iski vökvi sýgur í sig.
Við erfiðar og endurteknar
hjartabilanir er stundum reynt að
gefa tiouracil-lyf eða radíoaktiva
joðmeðferð til þess að lækka efna-
skiptin og með því móti létta störf
hjartans.
#
Spurning í prófi í hjálp í viðlögum: Hvað er það mikilvæg-
asta, sem gera þarf við björgun druknandi manns?
Svar: 1 fyrsta lagi ná manninum upp úr vatninu og í öðru lagi
ná vatninu upp úr manninum.
★ ★ ★
Vísindamaður: Maður, sem getur fundið upp lyf við sjúkdómi,
sem ekki er til.
Læknir: Maður, sem lifir fyrir heilsuleysi.
Sérfræðingur: Læknir, sem meðhöndlar þá, sem veikjast milli
kl. 9 og kl. 5.