Læknaneminn - 01.06.1970, Qupperneq 16
16
LÆKNANEMINN
Hér með er því skorað á læknadeild eða Félag læknanema að gang-
ast fyrir námskeiði í hjálp í viðlögum fyrir alla læknanema og það
sem fyrst. Hér verður ekki spurt um það, hverjum ber að gera þetta,
heldur hitt hver hefur viljann til framkvæmda. Kennslukrafta skortir
ekki og tæki eru ýmist til eða ætti auðveldlega að vera hægt að útvega.
Takist ekki að koma þessu á, er það skylda hvers læknanema að verða
sér úti um þessa þekkingu á eigin spýtur, til dæmis með því að leita til
skáta eða slysavarnafélaganna. Hentugar bækur um efnið eru einnig
til. Þeim, sem þegar hafa eitthvað lært, er engin minnkun að því að
gera þetta líka, því að stöðugrar upprifjunar er full þörf. Hættan á
því, að læknanemar fyllist ofdrambi við að öðlast þessa þekkingu er
þó sáralítil miðað við það, sem í húfi er. Minnist þess, að læknisfræðin
er ekki til orðin fyrir læknana heldur fyrir þá veiku.
Enginn veit hvenær sá dagur kemur, að hjálpar hans verður ósk-
að. Það getur eins orðið í dag eins og á morgun. Ekki er heldur að vita,
hver það verður, sem hjálpar þarf með. Það sem máli skiptir er: Hvert
verður svar þitt þá, læknanemi ? JHJ
#
sólarleysissumri
Stjórn F. L. hefur ákveðið að gera eitthvað til að hressa upp á
þreyttar heilafrumur læknanema, þar eð allt útlit er fyrir, að sólin láti
ekki sjá sig sunnan heiða í sumar frekar en á síðasta sumri. Ekki er
þó ætlunin að skipuleggja Mallorcaferð (út af fyrir sig ágæt hugmynd),
heldur verða teknir fyrir tveir málaflokkar, sem eru bæði læknanem-
um og öðrum þjóðfélagsþegnum í hæsta máta viðkomandi.
Fyrri hluta júlímánaðar verður seminar um þróunarlöndin. Verð-
ur kynnt starf það, sem norrænir læknar og læknanemar hafa unnið
víða um heim. I framhaldi af því verður hugleitt hvort íslenzkir lækna-
nemar geti látið til sín taka í málum þessum. Guðjón Magnússon verð-
ur stjórn F. L. til ráðuneytis um skipulagningu þessa seminars, en
eftir hann birtist grein í Læknanemanum um þróunarlöndin.
Einnig verður hafin könnun á stöðu aldraðra í íslenzku þjóðfélagi.
Er þá sérstaklega höfð í huga sjúkrahúss- og hjúkrunaraðstaða, f jár-
hagsafkoma o. fl.
Ef vel tekst til með ofangreinda málaflokka, verður haldið áfram
á sömu braut og þá tekin fyrir málefni geðsjúkra.
Þeir stúdentar, sem hafa áhuga og tíma til að starfa að þessum
málum, eru beðnir um að hafa samband við einhvern stjórnarmanna
hið fyrsta.
Éins og menn muna, þá var árgjald F. L. hækkað upp í kr. 500 á
síðasta aðalfundi. Innheimta hefst um leið og fyrirlestrar í haust.
Eru stúdentar beðnir um að haga líferni sínu í sumar í samræmi
við þessi breyttu viðhorf.
Stjórn F. L.