Læknaneminn


Læknaneminn - 01.06.1970, Page 46

Læknaneminn - 01.06.1970, Page 46
LÆKNANEMINN J,0 sem fræðin um stjómskipun ríkja í víðtækri merkingu. Það sem einkenndi þessa statistik var, að upplýsingar voru ekki gefnar í tölum. Því hefur þessi statistik verið nefnd „háskólastatistik“ til aðgreiningar frá „töflustatistik", þar sem áherzlan var lögð á tölu- íegar upplýsingar í töfluformi. Líta má á „töflustatistik" sem upphafið að grein hagnýtrar tölfræði, sem kalla mætti staðtölufræði. Einn af fyrstu staðtölufræðingunum var Crome (1753—1833). I einu af rit- um hans, sem kom út árið 1785, er að finna töflur yfir fólksfjölda, flatarmál ríkja, fólksfjölda á flatareiningu o. fl. I upphafi 19. aldar hófust mikl- ar ritdeilur milli fræðimanna í „háskólastatistik" einkum Gött- ingenskólans og staðtölufræðinga. Hinir síðarnefndu voru þá kallað- ir „Tabellenknechte und Skelett- irer der St,atistik“. „Háskólastatistik" er óskyld nútíma tölfræði (statistik) eins og það hugtak er notað í dag, þó að hún sé sögulega tengd tölfræðinni. Hins vegar má, eins og áður segir, líta á staðtölufræðina sem eina grein hagnýtrar tölfræði, sem næði yfir m. a. vissa tegund skýrslugerðar (mannfjöldaskýrsl- ur o. fl.). Við flesta, háskóla fá stúdentar kennslu í tölfræði en ekki staðtölufræði eins og ég hef notað þessi orð, enda bótt stað- tölufræðin geti og ætti að vera hluti af námsefninu. Að gefnu tilefni vil ég benda íslenzkum læknum og læknanem- um á, að tölfræði er mun betri þýðing á „statistik" en orðið staðtölufræði, sem felur í sér vissa tímaskekkju (e. anachron- ism). Fyrrihlutinn „staður“ er al- gjörlega óþarfi og beinlínis vill- andi. Stœrðfrœðin í þjónustu líf- og læTcnisfrœði. Á 17. öld voru gerðir ýmiskon- ar mannfjöldaútreikningar (e. vital statistics), t. d. útreikningar á fæðingar- og dánarlíkum. Rit enska kaupmannsins John Graunt (1620—74), sem út kom árið 1662, ber af öðrum slíkum verkum frá 17. og 18. öld. Graunt nefndi þetta einstæða verk sitt „Natural and political Observations upon the Bills of Mortality". Um rit þetta má segja, að það sé fyrsti vísir að stærðfræðilegri faraldsfræði (e. mathematical theory of epi- demics). Á þessum árum voru far- sóttir tíðar á Bretlandi og eftir eina slíka árið 1603 voru gefnar út vikulega skrár yfir skírnir og út- farir ásamt dánarorsök, ef um pest var að ræða. Eftir 1629 var dánarorsakar alltaf getið, en lík- skoðun var framkvæmd af göml- um eiðsvörnum konum. Það voru þessi gögn, sem Graunt rannsak- aði með árangri sem hefur tryggt honum varanlegan sess í sögu tölfræðinnar. Útreikningar sem þessir nefndust upphaflega á ensku „political arithmetic", enda var orðið tölfræði með nútíma inntaki þess ekki til á þessum tíma. Thomas Malthus setur fram kenningar sínar í lok 18. aldar um aukningu mannkynsins og fæðuöflun. Belgíumaðurinn Quet- elet (1796—1874) gaf út bók sína „Essai de Physique Sociale“ árið 1835, þar sem hann fjallar bæði um vöxt einstaklinga og þýðis (e. population). Hann mun vera sá fyrsti, sem notar Gaussdreifingu (normaldreifingu) til að lýsa líf- fræðilegum fyrirbærum, sem voru í þessu tilviki dreifing á niður- stöðum 10.000 hæðarmælinga á nýliðum í franska hernum og
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.