Læknaneminn


Læknaneminn - 01.06.1970, Qupperneq 99

Læknaneminn - 01.06.1970, Qupperneq 99
LÆKNANEMINN 83 Sagði hann núverandi stjórn vera máli þessu fráhverfa. Ýmsir erfiðleikar yrðu á rekstri félagsheimilis, einkum þar sem það yrði öðrum þræði notað til skemmtanahalds. Læknanemar koma einnig til með að fá aðstöðu í vænt- anlegnm byggingum Landsspítalans. Kvað hann sjálfsagt, að læknanemar fengju einnig starfsaðstöðu i væntan- legu læknadeildarhúsi. Þar sem þörfin nú á eigin félagsheimili geti ekki talizt brýn og ekki liggi önnur fjárfrek verk- efni fyrir, telur stjórnin forsendur brostnar fyrir skattlagningu á laun stúdenta. Umræður urðu síðan um erf- iðleika á framkvæmd skattgreiðslu. 1 atkvæðagi’eiðslu var launaskattsmálinu vísað frá með 11 atkvæðum gegn 1. Þessu næst kynnti Pálmi Frímanns- son athugasemdir stjórnar F.L. við nýju reglugerðina fyrir H.Í., er varðar læknadeild. Kynnti hann fyrst innritun- armálið og sagði, að stjórnin hefði ekki lagzt gegn takmörkunum á nemenda- fjölda í læknadeild með „numerus clausus", en þá yrði miðað við stúdents- próf og árangur á prófi eftir fyrsta árið í deildinni eftir nánari ákvörðun deildarinnar. Þá gat hann þess, að stjórnin mundi beita sér fyrir því, að haustpróf yrðu tekin upp. Óhæfa væri, að þeir, sem féllu á vorprófi eða þyrftu að fresta prófi vegna veikinda eða fé- lagsstarfa, þyrftu að tefjast um eitt ár. Einnig sagði hann það skoðun stjórn- arinnar, að vald kennslustjóra þyrfti að aukast til muna, ella væri hætt við því, að starfsskilyrði hans yrðu óviðun- andi og skipulagning kennslunnar lé- leg. Kennslunefnd kvað hann of stóra. Skárri væri 5 manna nefnd en 11 manna eins og nú er. Þá minnti Pálmi á, að síðasti aðalfundur F.L. hefði þegar krafizt þess að fá % fulltrúa á deildar- fundum, en þess væri einnig krafizt, að fá 3 fulltrúa í deildarráð. Einnig var það gagnrýnt, að stúdentar skuli ekki hafa atkvæðisrétt, þegar fjallað er um embættaveitingar. Að lokinni ræðu Pálma ákvað fundurinn að fela stjóm F.L. alla tillögugerð til breyt- inga á reglugerð. Hallgrímur Benediktsson kynnti hug- myndir, sem fram hefðu komið eftir allvíðtæka könnun meðal stúdenta varð- andi framkvæmd á endurskipulagningu náms í læknadeild. Kom þá glöggt fram, hversu mál þetta er flókið, en einkum varð mönnum tiðrætt um þau vandamál, sem skapast vegna hins stóra hóps sem útskrifast 1976. VERKLEG NAMSKEIÐ í MIÐHLUTA Kúrsus í veirufræði Sumarið 1969 var í fyrsta sinn skipu- lögð verkleg námsdvöl í veirufræði að Keldum. Enn er kúrsusinn ekki opinber- lega viðurkenndur, enda voru kennslu- breytingar þegar fyrirhugaðar eins og kunnugt er. Að Keldum voru nýbakaðir klínikerar um sumarið, mislengi eftir tíma og áhuga, og kynntust serólogiu veira. Ljóst er, að enn er lítil reynsla kom- in á þennan kúrsus. Til að mynda er hann alls ekki eins þaulskipulagður með tilliti til tímanýtingar og kúrsusinn í bakteríologíu, þar sem nokkrar umræð- ur, sem upp koma, nægja til að allur tíminn til sýnikennslunnar fer forgörð- um. Hér er raunar ólíku jafnað saman. Keldnakúrsusinn er námsdvöl, en bakteríologíukúrsusinn er sýnikennsla, skipulagður með hagnýt sjónarmið í huga fyrir okltur læknanema. Eftir eins árs kynningu af miðhluta virðist mér, að eigi kostir Keldnakúrs- usins að nýtast, er bezt að læknanemar taki hann strax fyrsta sumarið eftir 1. hluta próf. Prófessorinn skipuleggur vinnuna. Vinnurútína er grundvallarat- riði, og menn geta sloppið með það. Þeir, sem vilja vera lengur, geta notað tækifærið og ,,vísindazt“. Vilji prófess- orsins er fyrir hendi til að hafa umsjón með og skipuleggja verkefni við hæfi. Sá vaxtarbroddur, sem í veirufræðinni er, og tíminn, sem valinn er (sumarið), hjálpa til við að skapa einn akadem- iskasta kúrsusinn í náminu. Á þessu stigi hafa menn enn ekki reynt það maraþon að böðlast yfir stóru, gulu skræðuna (Robbins) á hundavaði með þremur kennurum, sem sumir hverjir eru að kenna allt aðra bók! Að innri gerð er vinnan ámóta og gera má ráð fyrir. Menn kynnast veiru- ræktun, sérvizku þeirra hvað æti varð- ar, læra að inókúlera í egg, vefjagróð- ur og tilraunadýr, allt eftir því hve kræsnar þær eru. Þá er mjög mikilvægt að kynnast í reynd framkvæmd díagnostiskra prófa, þar eð vinnan við veirupróf er ólíkt meiri en menn gera sér almennt grein fyrir. Þar að auki veita þau nokkra innsýn í immúnologíuna, þar eð starf með hina þrjá meginmótefna- flokka veira (hemagglútínerandi, neutralíserandi og komplement bind- andi mótefni) veitir læknanemanum hið
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116

x

Læknaneminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.