Læknaneminn - 01.10.1979, Page 7
Staða kransœðaaðgerða í dag
Kristinn Jóhannsson brjóstholsskurðlæknir
Kransæðasjúkdómur er alvarlegur sjúkdómur, sem
verður mörgum að aldurtila í blóma lífsins. Horfur
sjúklinga með kransæðasjúkdóma hafa batnað til
muna á 10 síðustu árum. Nú eru liðin 10 ár síðan
byrjað var að gera kransæðaaðgerðir (bypass) og
hafa þessar aðgerðir sannað ágæti sitt með því að
bæta líðan manna. Enn eru menn ekki á sama máli
um aðra kosti, sem kransæðaaðgerðir eru taldar
hafa. Kransæðaaðgerðir hafa smátt og smátt öðlast
viðurkenningu og mun dánartíðni við þessar að-
gerðir halda áfram að lækka með betri svæfingum,
betri hjarta- og lungnavélum og Ijetri tækni við að-
gerðirnar. Aðgerðardauði nú á dögum er víðast inn-
an við 4%. Skýrslur hafa komið fram, sem sýna að
sjúklingar, sem hafa útbreiddan kransæðasjúkdóm,
lifa lengur ef kransæðaaðgerðum er beitt.11,13,17-
18,20,22
llíinnsóknir « sjnklintinm tneð krtins-
teðastíflu
Horfur eru ekki alltof góðar eftir að kransæða-
sjúkdómur gerir vart við sig.i0,14,10 Talið er, að
dánartala sjúklinga með hjartakveisu (angina pec-
toris) sé um 4% á ár'. Hvaða sjúklinga með krans-
æðasjúkdcm á að rannsaka náið? Sjúklinga með
hjartakveisu eftir kransæðastíflu og afbrigðilegt
EKG í hvíld, sem bendir til kransæðasjúkdóms og
einnig þeir, sem eru með leiðslutruflanir og óeðli-
legt áreynslupróf. Eiga allir i áðurnefndum flokkum
að fá æðarannsókn, áreynslupróf eða skönn? Krans-
æðarannsókn (Coronary angiografia) er nú ná-
kvæmasta rannsókn til greiningar á kransæðasjúk-
dómi.7’9 Sjúklingar með hjartakveisu er langstærsti
hópurinn, sem sendur er í kransæðarannsókn.
Akvörðun um að gera kransæðarannsókn á ein-
kenna lausum sjúklingum eftir kransæðastíflu fer
eftir aldri sjúklingsins, starfi hans, áhættuþáttum og
árangri af áreynsluprófi. Áreynslupróf er mjög mik-
ilvægt í sambandi við gre'ningu á hjartasjúkdómi.0
Með því að nota bergmálstækni og isotopa techne-
tium 99 og thallium 201 er hægt að meta blóðþurrð
í hjartavöðva mun betur en áður. Það hjálpar skurð-
læknum að greina hvort sjúklingurinn hefur drep í
hjartavöðva, eða blóðþurrð og geta þá skurðlæknar
með meiri vissu en áður skorið upp sjúklinga með
yfirvofandi kransæðastíflu.
A mynd 1 er sýnt hvernig vena saphena magna er saumuð
um kransæð. Allir sutururnar erusettar jyrst í kransæðina og
gegnum bláœðina og eru hnýttar í réttri röð. Þetta minnkar
hœttuna á þrengslum við tenginguna. 6/0 silki er notað þeg-
ar vena er saumuð í kransæð.
LÆKNANEMINN
5