Læknaneminn


Læknaneminn - 01.10.1979, Page 36

Læknaneminn - 01.10.1979, Page 36
rokgjörn efni auðveldlega með þessari aðferð, en allnokkra undirbúningsvinnu þarf fyrir órokgjörn efni. Grómskil með lofti er einfaldari aðferð heldur en double isotope derivative aðferðin, sem lýst var hér að framan. Fyrir stera þarf þó talsverða undirbún- ingsvinnu og aðferðin hentar ekki, þar sem mæla þarf mikinn fjölda sýna. Ruðnings- eða mettunaraðferðir Hér er um að ræða tvennar tegundir mælingar- aðferða, þ. e. competitive protein binding (CPB) og radioimmunoassays (RIA). Ekki verður fjölyrt um aðferða fræði hér, þar sem slíkar upplýsingar eru fyrir hendi í nýlegri grein (M. Kjeld: Mælingar með geisla- og ónæmisefnum, Læknablaðið 1975, bls. 84). RIA er næmara og sérhæfðara en CPB og er því notað æ meir. Kostir þessara rannsókna eru gíf- urlega lág greiningarmörk (picogrömm), sérhæfni, einfeklni og hraði í framkvæmd. Okostir eru tiltölu- lega dýr tækjabúnaður. RIA hefur gjörbylt allri inn- kirtlafræði og raunar allri læknisfræði og skyldum greinum, þar sem mælingar efna með lágum styrk (concentration) eru nauðsynlegar. Fyrstu RIA mæl- ingum kynstera var lýst árið 1969. Síðan hafa þær þróast nokkuð og hafa bæði betri mótefni verið framleidd og betri geislaefni. Starfspróf (function-tests) Svokölluð bælingarpróf (suppression tests) og örvunarpróf (stimulation tests) hafa verið mikið notuð sl. 10 til 15 ár til að prófa starfsemi nýrna- hettna. Með tilkomu áðurlýstra RIA mælinga á ster- um hafa opnast möguleikar til að nota efnafræðileg starfspróf við könnun kynkirtlasjúkdóma. Prófin, sem notuð hafa verið til þess, eru eingöngu örvunarpróf, aðallega með örvandi (trophic) hor- mónum eins og human chorionic gonadotrophin (HCG) og human menopausal gonatotrophin (HMG). Clomiphene citrate, sem upphaflega var kannað sem antiöstrogen, hefur verið notað síðan 1961 til þess að meðhöndla ófrjósemi, sem orsakast af því að egglos á sér ekki stað. Meðferð leiðir til aukins styrks östradiols í blóði kvenna og aukins testoster- óns hjá körlum, en þó ekki hjá sjúklingum án heila- dinguls starfsemi. LH og FSH hækkar einnig í blóði beggja kynja við meðferð með chlomiphene citrate. Nota má því clomiphene gjöf til að kanna hvort kyn- kirtlar og heiladingulsstarfsemi er í lagi. Luteinizing hormone releasing factor (LRF), sem nú er auðvelt að fá keyptan, er nú notaður til að greina nánar sjúkdóma í undirstúku og heiladingli, en FSH og LH hækka innan 30 mín. eftir dælingu LRF í æð hjá heilbrigðu fólki. Lokaorð Hér hefur verið farið yfir þróunarsögu og nútíma þekkingu á kynsterum og stiklað á stóru og mörgu sleppt. T. d. hefur ekki verið minnst á synthetiska stera og getnaðarvarnir, progesterone eða prolactin. En flest skrif eiga sér sína kjörlengd og of stórir skammtar geta haft svæfandi aukaverkanir. Eg vil að endingu færa Onnu Gunnarsdóttur Jjakk- ir fyrir að vélrita handritið. Kennsla hefst í sállækningum á vegum Félags til eflingar sálkönnun á íslandi miðvikud. 10. sept. nk. kl. 20.30 í Domus Medica, stofu 441. Umsóknir berist fyrir 1. ágúst 1980. Upplýsingar veitir varaformaður námsráðs, Ingvar Kristjánsson geðlæknir Geðdeild Landspítalans, sími 29000. 26 LÆKNANEMINN

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.