Læknaneminn - 01.10.1979, Side 37
Ofrjósemi kvenna
Jón Hilmar Alfreðsson læknir
Barnlaus sambúð er ýmist viljandi eða óviljandi.
Hin síðarnefnda á sér ýmsar orsakir, svo sem endur-
teknar andvanafæðingar og fósturlát, en algengasta
ástæðan er ófrjósemi.
Ofrjósemi (sterilitas, infertilitas) er varanlegt og
algert getuleysi til þungunar. Skert frjósemi (sub-
fertilitas) táknar minnkaða þungunargetu og er mun
algengara fyrirbæri. Hvort tveggja tekur bæði til
karla og kvenna.
Ofrjósemi kvenna er kölluð frumlæg (primer),
bafi þungun ekki tekist áður, en hafi það gerst er
talað um síðari (secunder) ófrjósemi.
Nú á tímum er gjarnan lilið á ófrjósemi sem sam-
eiginlegt vandamál hjónanna beggja (parsins) og tal-
að um ófrjósama sambúð (sbr. „infertile couple“).
Það er nú ljóst, að ófrjósemi er í 30^10% tilfella
vegna skertrar frjósemi beggja aðila. Skert frjósemi
annars aðilans getur dulist vegna mikillar frjósemi
hins, en sé beggja frjósemi skert, verður afleiðing-
in eins konar summa þess eða algjör ófrjósemi hjón-
anna. Þetta skýrir ófrjósama sambúð tveggja maka,
sem hvort um sig geta tímgast í annarri sambúð.
Önnur og eldri skýring á þessu fyrirbæri er einhvers
konar misræmi milli tveggja einstaklinga af ónæmis-
toga eða erfðafræðilegum. Á þeirri lilgátu hefur
ekki fengist staðfesting.
Séu báðir aðilar í sambúð fullkomlega frjósamir
ætíi getnaður (conceptio) að takast á fyrsta mán-
uði, sem reynt er. Nú er vitað, að verulegur hluti
frjóvgaðra eggja ferst þegar á fyrstu vikunum og
því tekst aðeins þungun (graviditas) á fyrsta mán-
uði hjá um 50% hjóna. Að hálfu ári liðnu hefur um
80% tekist þungun og eftir eill ár 90%. Helmingur
þeirra sem eftir eru tekst svo þungun á öðru ári.
Venja er að telja sambúð ófrjósama, hafi þungun
ekki tekist innan 1—2 ára og þá límabært að hefja
rannsókn.
Tíðni ófrjósemi er samkvæmt þessu 5-10%. I
mörgum ritum er talað um 8% af öllum hjónabönd-
um sem ófrjósöm. Barnlaus hjónabönd, viljandi og
óviljandi eru um 15%.
Hér fer á eftir greinargerð fyrir ófrjósemi kvenna,
helstu orsökum, rannsóknaraðferðum og meðferð.
Orsahir ófrjjósvmi
Meginorsakir ófrjósemi hjá konum eru taldar
þrjár: hormónatruflanir, bólgusjúkdómar og með-
fæddir gallar. Þessar megin orsakir eru stundum
samtvinnaðar í einstökum tilfellum.
Til greina kemur að rekja orsakirnar eftir líffær-
um eins og gert verður hér á eftir, en þá ber að hafa
hugfast, að áhrif hormónatruflana, sýkinga og mis-
smíða eru oft víðtæk og ekki bundin við einstök líf-
færi.
Þáttur eggjastokka
Verulegri truflun í hormónabúskap eggjastokka
fylgir ávallt eggleysi (anovulation). Orsakirnar eru
ýmist frumlægar í eggjastokkum (primer ovarial in-
sufficiens), eða sjúk innkirtlastarfsemi nýrnahetta,
skjaldkirtils og/eða heiladinguls (secunder ovarial
insufficiens). Þá er Turner syndrom dæmi um litn-
ingagalla. sem veldur agenesis á eggjastokkum með
verulegri hormónatruflun.
Eggleysinu fylgir að jafnaði tíðateppa (amenorr-
hé). Um þetta efni er fjallað í kennslubókum undir
þeirri fyrirsögn.
Eggleysi með tíðablæðingum (anovulatorisk men-
struation) er einnig þekkt fyrirbæri og telst raunar
eðlilegt (fysiologiskt) á fyrstu árum eftir upphaf
tíða (menarche) og undir lok þeirra (menopausis),
en verður einnig við væga bilun á nýrnahetlum
(subclinical adrenal insufficiens) og vítamín B-12
skort.
Loks er að geta vægari hormónatruflana í eggja-
27
LÆKNANEMINN