Læknaneminn - 01.10.1979, Blaðsíða 47
MAGN
Mynd 1. Magn alkóhóls á mín. 15-150 í blóði f%<) fjögurra
stúdenta (nr. 1-4), er drukku 180 ml áfengis (whisky,
vodka) fastandi viS nánar tilgreindar tilraunalegar aSstæSur
(sjá texta). Einnig er sýnt magn alkóhóls í Jrvagi viS lok
tilraunarinnar. Stúdentar nr. 3 og 4 drukku whisky og nr. 1
og 2 drukku vodka. Stúdentar nr. 2 og 3 vógu um þaS mil 71
kg og stúdentar nr. 1 og 4 um þaS bil 98 kg.
Niðurstöðulölur úr síðari hluta tilraunarinnar eru
sýndar á mynd 2. Hámarksþéttni var mun lægri en
í fyrri hluta tilraunarinnar eða einungis 0,85%t að
meðaltali. Líkamsþyngd stúdentanna var hins vegar
nær óbreytt frá fyrri hluta tilraunarinnar. Athyglis-
vert var, að minnst alkóhól virtist vera í blóði nr. 2.
Var það öfugt við niðurstöðutölur úr fyrri hluta til-
raunarinnar, en þá var mest afkóhól í blóði nr. 2.
Svo virtist sem hámarksþéttni kæmi fyrr í síðari
hluta tilraunarinnar en í fyrri hluta.
Magn alkóhóls í þvagi var sömuleiðis mun minna
í síðari hluta tilraunarinnar en í fyrri hluta. Þéttni
var mest hjá nr. 3 (l,19%e), en minnst hjá nr. 4
(0,74%o). Þéttni var mitt á milli hjá nr. 2 (0,86%c)
og nr. 1 (0,83%o). Þéttni alkóhóls í þvagi var þann-
ig að meðaltali l,59%o í fyrri hluta tilraunarinnar,
en 0,90%c í síðari hluta.
Alkóhól var ekki í blóðsýnum, sem tekin voru í
upphafi (mín. 0).
Umrœifu oy ályhtanir
Tilraunir hafa sýnt, að eftir áfengisdrykkju frá-
sogast al'kóhól mun síðar frá maga en frá skeifugörn
og mjógirni. Frásog frá þessum hluta meltingarveg-
ar er í raun svo mikið, að nánast ekkert alkóhól
berst til ristils. Frásog alkóhóls frá munnholi er enn-
fremur lítið við venjulegar aðstæður (Ritchie,
1975). Þannig má ætla, að því hraðar sem maginn
tæmist, því hraðar og meir frásogist alkóhól frá
meltingarvegi (TVallgren, 1970; Ritchie, 1975).
Eftir töku sýrubindandi lyfja verður seinkun á
tæmingu magans. Sama verður að lokinni máltíð.
Er raunar líklegt, að matur í maga seinki tæmingu
hans a .m. k. að hluta vegna þess, að frí saltsýra
minnkar í maganum. Nú eru liðin 60 ár frá því, að
sýnt var með vissu fram á áhrif fæðutekju á frásog
alkchóls hjá mönnum (sbr. Wallgren, 19701.
I þeim tilraunum, er hér greinir frá, voru stúd-
entar látnir drekka mikið magn áfengis á stuttum
MAGN
Mynd 2. Magn alkóhóls á mín. 15-150 í blóði (%c) fjögurra
stúdenta (nr. 1-4), er drukku 180 ml áfengis (whisky,
vodka) aS lokinni máltíS viS nánar tilgreindar tilraunalegar
aSstœSur (sjá texta). Einnig er sýnt magn alkóhóls í þvagi
viS lok tilraunarinnar. Sjá ennjremur texta viS mynd 1.
LÆKNANEMINN
33