Læknaneminn - 01.10.1979, Blaðsíða 57
Ha, SUDAN?
Björn Logi Björnson stud. med.
Súdan er stærsta land Afríku. Það teygir sig frá
Egyptalandi suður að Kenya, Uganda og Kongo við
4° n. br. Gróðursnautt er að mestu, nema syðst og
austast. Væri lítið búið í landinu ef ekki nyti Nílar-
fljóts við. Ibúar þess er fjölbreytt litróf Araba og
hávaxinna negra. Flestir eru múhameðstrúar, aðrir
eru kristnir eða ganga um berrassaðir og trúa á alls
engan guð. Þjóðasafni þessu er stjórnað með rögg-
semi og festu af herforingj astj órn Númeris, sem
komst til valda í byltingu 1969. Höfuðborgin er
Khartoum. Hún liggur í SA.-horni Sahara, þar sem
árnar Hvíta-Níl og Bláa-Níl mynda Níl sjálfa. Undir-
ritaður dvaldi októbermánuð sl. í borg þessari fyrir
atbeina F. L., til að kynnast því hvernig hitabeltis-
læknisfræði gengur fyrir sig, og óneitanlega einnig
til að svala ævintýralosta sínum.
Einhverntíma seinni part vetrar 1979 hóf Félag
súdanskra læknanema bréfaskriftir við samsvarandi
félag hérlendis og óskaði eftir að hafa stúdentaskipti
sem fyrst við þetta kalda land. Af einhverjum or-
Vistarvera mín á stádentagarSinum reyndist alveg gegndrœp
íyrir eySimerkurryki, umferSardrunum, regni og múhameSsk-
um trúboSum. En auSur andans óx í öfugu hlutfalli viS ytri
aSbúnaS. - Þar koma líka til kynni viS lœknanema, jlótta-
rnenn og ferSamenn af ýmsum uppruna.
Minjar hins forna Egyptalands ná langt inn fyrir súdönsku
landamærin. Mynd þessi er tekin í þjóSminjasafni Súdans,
sem er aS verulegu leyti aSjluttar steinblokkir úr bygging-
um, sem ella hefSu fariS undir vatn vegna Aswan-stíflunnar.
sökum fannst mér ferð til Súdan alveg ómótstæðileg
hugmynd og vatt mér strax í undirbúninginn. Eftir
að hafa lesið örlítið um landið var ekki annað að
gera en að fá samþykki Súdana, vegabréfsáritun og
aðstoð Félags læknanema á íslandi með bréfaskrif
og ferðastyrk. Kostaði farmiðinn 310 þúsund kr.,
hvar af félagið borgaði 60%. Það verður að játast
að á tímabili leit þetta ekki eins bráðsniðuglega út
og það gerði fyrst, m. a. vegna þess að lýsingar
tveggja manna, sem hvor um sig hafði farið til Khar-
toum, voru nokkuð samhljóða um að það hlyti að
vera ömurlegasti staður á jörðinni. En 27. sept sl.
steig ég engu að síður upp í fyrstu þotuna af fjór-
um sem fluttu mig til Khartoum. búinn lítilli hand-
tösku farangurs og innbyggðu ónæmiskerfi, sem ör-
ugglega var í hernaðarástandi eftir allar bólusetn-
ingarnar.
A viðkomustað einum í Evrópu sendi íslendingur-
inn í sinni góðu trú skeyti til Félags súdanskra
læknanema, þar sem hann bað þá vinsamlegast um
að taka á móti sér á flugstöðinni eða gera aðrar
LÆKNANEMINN
43