Læknaneminn - 01.09.1982, Page 28
ur daglega og sumir gefa acetazola-
mid til varnar augnþrýstingshækkun.
Sumir gefa Iyf, Epsikapron (amino-
caproidsýra), sem hindrar fibrinolys-
is í sködduðum æðum í 5 daga að því
er virðist með góðum árangri. Annað
antifibrinolytiskt efni er tranexam-
sýra, Cyclokapron. Rannsóknir hafa.
sýnt að endurblæðing verður í 3%
tilfella ef gefin er aminocaproidsýra
(Epsikapron) en í 33% af engri lyfja-
notkun (placebo)1.
Athuga þarf ljósop, stærð, lögun
og ljóssvörun. Hringvöðvinn í lit-
himnu (m. sphincter iridis) getur
brostið við högg á auga. Ljósop þenst
út og svarar ekki ljósi (mydriasis
traumatica). Stundum kemur skarð í
ljósopsjaðarinn.
Svonefndur Vossiushríngur mynd-
ast, þegar litan þrýstist að framhjúp
augasteins og er af sömu stærð og
ljósopið var þegar höggið lent á aug-
anu. Þessi litarefnishringur sést
þegar ljósop er víkkað og er oft árum
saman eftir slys.
Sköddun á forhólfshorni, þannig
að liturótin rifnar frá síuvefnum (tra-
beculum), á sér stundum stað við
þungt högg á auga samfara blæðingu
í forhólf. Þrýstingshækkun getur
komið í augað, oft nokkrum mánuð-
um eftir að slysið átti sér stað.
Við högg á auga getur augasteinn
Iosnað að meira eða minna leyti.
Þegar um fjórði hluti beltisþráðanna
(fibrae zonuláres) rifnar, missir Iitan
stuðning sinn af honum. Forhólfið
verður dýpra á þeim hluta og litan
blaktir (iridodonesis) á því svæði. Ef
augasteinninn þrýstist alveg fram í
forhólf hækkar augnþrýstingurinn
skyndilega upp úr öllu valdi. Er þá
ekki um annað að ræða en nema
hann á brott sem fyrst með skurðað-
gerð. Ástæða þrýstingshækkunar er
sú, að afrennsli frá auganu teppist.
Þó að augasteinninn fari alveg úr
skorðum og lendi inni í glerhlaupi
kemur þrýstingshækkun oft ekki fyrr
en löngu síðar. Má aðgerð þá bíða.
Eftir augnmar kemur oft drer-
myndun í augastein (cataracta
traumatica). Ef augasteinshýðið
(capsula lentis) rofnar síast vökvi
strax inn í augasteinsvefinn og drer-
myndun verður að hluta til eða að
öllu leyti. Jafnvel þótt ekkert sjáist á
augasteininum fyrst í stað eftir slys,
getur ský myndast eftir marga mán-
uði, sem að jafnaði er staðsett í aftur-
skauti augasteinsins og er stjörnu-
laga. Veldur slíkt ský fljótt sjóndepru
vegna legu sinnar í augasteininum
(nálægt noidal point).
Rifa á hvítu. Algengast er að hvít-
an rifni rétt aftan við glæru, en stund-
um um miðbik. Slíkar rifur sjást oft
ekki, en hafa ber þær í huga við blæð-
ingu í forhólf, þegar augað er óeðli-
lega lint, forhólf djúpt og þegar mikill
bjúgur og blæðing eru í slímhúð. Slík-
ar rifur þarf að sauma saman, en það
getur verið erfitt, þegar rifan liggur
aftantil á auganu.
Blœðing í glerhkmp getur verið sam-
fara blæðingu í forhólf. Blæðingin
kemur frá sködduðum æðum í æða-
himnu, sjónu eða fellingabaug. Sjón-
tap fer eftir því hversu blæðingin er
26
LÆKNANEMINN - 35. árg.