Læknaneminn


Læknaneminn - 01.09.1982, Blaðsíða 33

Læknaneminn - 01.09.1982, Blaðsíða 33
Okkar menn. Sá sænski bakatil heldur að verið sé að mynda hann. fimmtudegi voru niðurstööur um- ræðuhópanna kynntar og lauk ráðstefnunni þar með. í tengslum við ráðstefnuna voru tvær sýningar, á annari voru sýnd nýstárleg kennslutæki og á hinni kynntu nokkrir þátttakendur nið- urstöður tilrauna um breyttar kennsluaðferðir. Á kvöldin var ýmislegt gert ráð- stefnugestum til skemmtunar. Við sáum tréklossa- og sverðdans að enskum sið og fórum á Haydn tón- leika. Einnig sátum við veislu þar sem étið var sexréttað. Við vorum landi og þjóð til sóma þar sem endranær, enda búin að lesa bók- ina: ,,How to Behave in Aristo- cratic Britain". í lok veislunnar var skálað fyrir drottningunni en í bókinni stóð að það þýddi að nú mætti reykja, varð það öðrum greinarhöfundi til ánægju en hinum til ama.Ákvöldin varbarinn opinn, sem var þrátt fyrir allt vin- sælasta dægradvölin. Samneyti við aðra íslendinga var í minna lagi nema við kvöldverði þegar við drukkum rauðvín á þeirra kostn- að. LÆKNANEMINN - 35. árg. Cambridge er frægur háskóla- bær og íbúarnir héldu því óspart að okkur að munurinn á himnaríki og helvíti væri minni en á Cam- bridge og Oxford, þann bæ mátti ekki nefna upphátt og var aldrei kallað annað en ,,hinn staðurinn". Okkur varsagtað „allirbestu synir Englands" hefðu fengið menntun sína í plássinu svo sem Newton gamli, Lord Byron og ekki ómerk- ari gauren karlinn hennarDiönu. Erfitt er að komast í nám í Cam- bridge. Fyrst þurfa stúdentar að standast inntökupróf í Cambridge University og síðan komast í ein- hvern college. College er eins konar stúdentagarður sem þó býð- ur upp á meira en fæði og hús- næði. Þar hefur hver íbúi umsjón- armann (tutor) sem fylgist með námsárangri, andlegri líðan og reynir að leysa úr öllum vanda- málum stúdentsins. Fyrirlestrar og verklegt nám eru á vegum há- skólans. Alls stunda þrettán þús- und stúdentar nám í Cambridge hverju sinni. Stúdentar mega ekki keyra innan borgarmarkanna og ferðuðust því allir á hjólum. Þetta þótti öðru okkar gróft brot á mannréttindum. Cambridgebúar halda mjög upp á gamla siði og minjar. Merkileg- ast þótti okkur að sjá elsta póst- kassa (e. postbox) Bretlandseyja og var þó úr nógu að velja. Flest erindin flutt á ráðstefnunni voru áhugaverð, en ræðumenn- irnir voru misjafnir eins og alltaf. Norskur læknir las bréf frá syni sínum. Sá franski hreif þingheim allan með sjálflýsandi glæru- penna og þyrptust menn að hon- um eftir á til að fá upplýsingar um sölustaði, efni ræðunnar skipti mun minna máli. Frá ísrael talaði einn með sexí rödd (að honum fannst), um nýjan læknaskóla í Beer Sheva. Á honum mátti skilja að þar væri allt fullkomið, sem kom okkur spanskt fyrir sjónir en við höfum bæði dvalið þar sem skiptinemar. Sagt var frá þrem öðrum nýjum læknaskólum, í Noregi, Hollandi og Kanada og má vera að þeir ræðumenn hafi einnig krítað svolítið, en samkvæmt lýs- ingu þeirra er skipulag þar að mörgu leyti heillandi. í þessum fjórum nýbylgjuskólum komast nemendur strax í samband við sjúklinga og miðast námið frá upphafi við að leysa vanda þeirra; þ. e. námið er „problem oriented" og mikil samtvinnun námsefnis. Greinilegt er að ef breyta á náms- skipulagi að einhverju marki er auðveldara að stofna nýjan skóla en að breyta þeim sem fyrir eru. Þegar niðurstöður umræðu- hópanna voru kynntar kom í Ijós að vandamálin eru svipuð í flest- um læknaskólum og líkar leiðir voru nefndar til úrlausnar. Sömu atriðin voru nefnd aftur og aftur, bara mismunandi orðuð. Við nefn- um hér það helsta sem var rætt og kemurokkurvið. ,,An unmotivated teacher can- 31
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Læknaneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.