Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.04.2023, Side 32

Skinfaxi - 01.04.2023, Side 32
32 S K I N FA X I Þjálfara- menntun ÍSÍ Upplýsingum og fræðslu um hinsegin íþróttir hefur verið bætt við í þjálfaramenntun ÍSÍ, sem gefur réttindi til íþróttaþjálfunar. ÍSÍ sér um almenna hlutann og fer öll kennsla fram í fjarnámi. Sérsambönd ÍSÍ sjá um sérgreina- hluta námsins. Námið er í boði þrisvar á ári, þ.e. sumar-, haust- og vor- fjarnám.Ítarlegri upplýsing- ar um þjálfaramenntun ÍSÍ má nálgast á www.isi.is Fjölbreytileikinn hjá ÍBR Íþróttabandalag Reykjavíkur (ÍBR) hefur tekið saman ítarlegar upplýsingar um fjölbreyti- leika í íþróttum bæði fyrir iðkendur, hinsegin fjölskyldur og vini. Á heimasíðu ÍBR segir að það skipti máli að allir upplifi öryggi og vellíðan og séu lausir undan for- dómum í félagsstarfi sínu. Íþrótta- og æskulýðsfélög þurfa að vera vel í stakk búin til að styðja við fjöl-beyttan hóp iðkenda. Besta leiðin til að gera það er að skapa og rækta opna og umburðarlynda menningu innan félagsins þar sem hinsegin félagar verða ekki fyrir einelti og upplifa sig sem hluta af hópnum. Þá þarf einnig að beina sjónum að iðkendum sem eru ekki hinsegin og hvernig þeir tala og haga sér. Með því að vinna að hinseginvænni íþrótta- og æskulýðs- félögum er unnið gegn staðalímyndum sem geta þrengt að fleirum en einungis hinsegin fólki. Hinseginvæn félög eru því góð fyrir alla. Meira á heimasíðu ÍBR, www.ibr.is segir hann skref í rétta átt. Einnig megi finna alls konar sögur á heimasíðu Hinsegin daga undir greininni: Hvar er hinsegin íþróttafólkið? Fræðsla til íþróttafélaga „Aðalatriðið er að öll íþróttafélög, sérsam- bönd og regnhlífarsamtök fái hinsegin íþrótta- fræðslu,“ segir Sveinn og bætir því við að reynslan síðastliðið ár sýni að það hafi gífur- lega jákvæð áhrif. „Stærsta jákvæða þáttinn þar má sjá hjá þeim félögum sem ég heimsótti tvisvar. Í fyrra skiptið vissu margir ekkert hvar hægt væri að finna upplýsingar til að leysa ákveðin vandamál sem geta komið upp tengd hinsegin fólki. Í seinni heimsókninni svöruðu allir í kór: Ef við vitum ekki svarið heyrum við í Samtökunum 78 eða Svenna! Það var eins og tónlist í eyrum mér,“ segir Sveinn. Bjartsýnn á framhaldið Heilt yfir segist Sveinn vera gífurlega bjart- sýnn á þróun mála. Um þessar mundir eigi sér stað ótrúlega flott vinna á sviðinu en líka á bak við tjöldin. „Þetta á bæði við um íþróttahreyfinguna og fleiri staði. Á næsta ári er líka að koma út fullt af flottu fræðsluefni sem er hluti af verk- efni stjórnvalda í málefnum hinsegin fólks. Auk þess er vinna að hefjast við að leysa flest þau vandamál sem ég hef nefnt hér áður. Það er komið af stað og mun auðvitað taka sinn tíma. En það tekst,“ segir Sveinn. „Góðir hlutir gerast í þessu tilfelli hægt. En við sjáum málefni hinsegin fólks í íþróttum færast í rétta átt hérna á Íslandi, þótt það sé kannski erfitt að sjá það akkúrat núna í miðju bakslagi. En aðaláherslan þarf að vera á fræðslu og meiri fræðslu,“ segir hann að lokum. Takk fyrir stuðninginn

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.