Læknaneminn - 01.10.1988, Síða 12
hemagglutinin vegna áhrifa glycopeptíða ,með þekkta
virkni, sem einangruð voru úr meinverpandi brjósta-
krabbameini(29).
Æxlisfrumur geta reyndar varist ágangi ónæmis-
kerfisins á fleiri vegu en með bælingu á frumum þess.
Dvorak og samstarfsmenn fundu FIBRIN-útfellingu í
bandvef (stroma) allra þeirra brjóstakrabbameina sem
þeir skoðuðu. Og í gegnum þessa hindrun komast
einungis átfrumur. Fáir hafa hinsvegar orðið til að sýna
fram á verulega samsöfnun eða hlutverk átfrumna í
æxlum(30).
Þegar krabbamein vex upp gerist tvennt.
Annars vegar öðlast krabbameinsfrumurnar þol gegn
drápsaðferðum ónæmiskerfis hýsilsins og
krabbameinsfrumurnar dreifa sér. Hins vegar minnkar
svörun við krabbameinstengdum mótefnavökum
(TAA) og það heldur áfram að vaxa og skipta sér.
Hvorki er þekkt orsökin fyrir þessu né gildi þessara
þátta fyrir framgang brjóstakrabbameins(19).
Nýlega hafa birst upplýsingar þess efnis að a-inter-
feron geti aukið tjáningu krabbameinstengdra
mótefnisvaka á yfirborði frumnanna(31). Þetta er
hugsanlega eitt af því sem gerir það að verkum að
krabbamein sem sýna mikla íferð hvítra blóðkorna hafa
betri horfur.
Eins má gera sér vonir um að framtíðin beri í skauti sér
þekkingu á því hvers hvít blóðkorn annars vegar og
æxlisfrumur hins vegar eru megnugar í samskiptum
sínumhverjarviðaðrar.
IV. LOKAORÐ.
Þegar illa gengur að lækna sjúkdóm gefur það
tilefni til að huga að framtíð þess sem fengið hefur
sjúkdóminn. Hvaðaeinstaklingareru líklegirtil að lifa
lengi án sjúkdómseinkenna og/eða eftir að sjúkdómur
hefur tekið sig upp aftur? Hvernig eru þessir sjúklingar
frábrugðnir hinum, sem deyja?
I þessari ritgerð hefur verið reynt að varpa ljósi á
þýðingu hormóna annars vegar og ónæmiskerfisins
hins vegar fyrir lífslíkur kvenna með brjósta-
krabbamein. Rannsóknir undanfarinna ára hafa leitt til
víðtækari þekkingar á verkun vaxtarþátta, þ.á.m.
vaxtarþátta ónæmiskerfisins. Aukin þekking á
vaxtarstjórnun utanaðkomandi vaxtarþátta, og á því
hvers vegna sú stjórnun bregst í mörgum tilfellum,
verður, í framtíðinni, vonandi þess megnug að svara
spurningum um eðli illkynja vaxtar. Einnig er
möguleiki að svar fáist við því hvað gerir einn
einstakling öflugri í baráttunni við illkynja sjúkdóm en
annan.
Ég þakka dr. Helgu Ögmundsdóttur yfirlestur
ritgerðarinnar oggóðráð.
TILVÍSANIR
(1) Ariel,I.M. (1987) -"Breast Cancer A Historic Review: Is
the Past Prologue?”. í Ariel,I.M. og Cleary.J.B.: Breast
Cancer. Diagnosis and Treatment.
( McGraw-Hill, New York); bls. 9 og 14.
(2) Rowlands.M.G. (1985) - ‘‘Homiones and Cancer”. í
Farmer,P.B.og Walker ,J M.: The Molecular Basis of Cancer.
(Croom Helm, London); bls. 223-224.
(3) Sigurður Árnason (1987) - “Áfengi og
brjóstakrabbamein". Heilbrigðismál,4;bls. 10-11.
(4) Mueller,C.B.ogJeffries,W.(1975)-”Cancerofthebreast
;its outcome as measured by the rate of dying and cause of
death”. Annals of surgery,182 ; bls. 334-340.
(5) Whittaker.M.G. og Clark.C.G. (1971) -”Depressed
Lymphocyte Function in Carcinoma of the Breast”. The
British Joumal of Surgery,58 ; bls. 717-720.
(6) Hibberd,A.D. (1986) -”Surgery - Prolonged survival or
Cure?”. í StolfB.A.: Breast Cancer. Treatment and
Prognosis. (Blackwell Scientific, Oxford); bls. 7.
(7) Stoll.B.A. (1986) -”Components of a Prognostic Index”.
í Stoll.B.A.: Breast Cancer. Treatment and Prognosis.
(Blackwell Scientific, Oxford); bls. 115-128.
(8) Thomas,P. (1985)-”Molecular Approaches to Diagnosis
ofCancer”. 1 Farmer,B.ogWalker,M.:TheMolecularBasis
of Cancer. (Croom Helm, London); bls. 201-215.
(9) Herman.C.og Zuckerman.M.D. (1987) - “The Role of
Mammography in the Diagnosis of Breast Cancer”. 1
Ariel.l.M.og Cleary.J.B.: Breast Cancer. Diagnosis and
Treatment. (McGraw-Hill, New York); bls. 152-170.
(10) Graham.J.B. og Graham.R.M. (1954).-”Antibodies
Elicated by Cancer in Patients”. Cancer,8 ; bls. 409.
(11) Borkowski.A., Body,J.J. og Leclercq,G. (1988) -
“Hormone Receptors and Cancer”. Eur.J.Cancer.
Clin.Oncol.,24;bls. 509-511.
(12) Marx.J.L. (1988) - “Cell Growth Control Takes
Ballance”. Science,239 ; bls. 975-976.
(13) Ernster,V.L., Wrensch.M.R., Petrakis,N.L., King,E.B.,
Miike.R., Murai.J., Goodson,W.H. og Siiteri.P.K. (1987) -
“Benign and Malignant Breast Disease: Initial Study Results
of Serum and Breast Fluid Analyses of Endogenous
Estrogens”. J.Natl.Cancer. Inst.,79 ; bls. 949-960.
(14) Manni,A. (1987) -”Hormone Receptors”. í Ariel.I.M.
10
LÆKNANEMINN ^Í988-41. árg.