Læknaneminn - 01.10.1988, Page 15
EPENDYMOMA
Sigurbjöm Birgisson læknanemi
I. INNGANGUR
Ependymoma er heiti á miðtaugakerfisæxli (MTK
æxli) og á ekkert skylt við fyrirbæri það sem einungis
finnst hjá karlpeningnum og kallast epididymis. Þessi
orð eiga það sameiginlegt, að vera óþjál í framburði og
er sá (sú) löglega afsakaður sem verður fótaskortur á
tungunni við framburð þeirra.
Það var í upphafi ætlun höfundar að gera grein
fyrir fleiri en einni tegund MTK—æxla en sökum
tímaskorts var það ekki mögulegt ef leysa átti
viðfangsefnið sæmilega úr hendi. I greininni verður
hins vegar óhjákvæmilega komið inn á ýmis atriði sem
eiga við MTK—æxli almennt, þannig að greinin ætti að
nýtast í víðtækari skilningi en heiti hennar ber með sér.
Læknisfræðileg orð sem fyrir koma verða ekki
þýdd nema jafn góð og gild, lýsandi íslensk orð, séu
fyrir hendi sem allir ættu að skilja.
II. EPENDYMOMA
Skilgreining. Ependymom eru æxli sem að
mestu leyti eru gengin út frá ependymafrumum (1).
Ependyma (mynd 1) er bifhærð, einföld,
tenings eða stuðlalaga þekja af neuroectodermal toga.
Þekja þessi klæðir hólfa og gangakerfi heila og mænu
(2). Ependymafrumur má einnig finna í eðlilegum
heila í nánd við heilahólfin og mynda þær þá ýmist þétta
frumuhópa eða raða sér upp í kringum miðstætt op og
mynda þannig rósettu (krans) (3). I umfrymi
ependymafruma má oft sjá, í Ijóssmásjá á mikilli
stækkun, svokallaða blepharoplasta (mynd 1) sem í
rafeindarsmásjá samsvara basal bodies, rót bifháranna
(1,2,4). í umfryminu má einnig sjá glialfilament sem
eru intermediate filament (um 10 nm í þvermál), en þau
eru mjög áberandi í astrocytum (1,5,6).
Samheiti. Ependymom hafa gengið undir
mörgum nöfnum sem ekki eru notuð lengur. Helstu
samheitin eru: adenoglioma, glioependymoma,
glioepithelioma, ependymoepithelioma, ependymo-
glioma., ependymocytoma, columnar cell glioma,
blastoma ependymale og neuroepithelioma (7).
III. FARALDSFRÆÐI (Tíðni—Kyn—Aldur—
Staðsetning)
Tíðni. Ependymomeru2—6%aföllumæxlum
í heilabúi (intracranial), hjá öllum aldurshópum, en um
10% heilabúsæxla hjá börnum (15 ára og yngri) (7) og
er það þriðja algengasta heilaæxlið í þeim aldurshópi,
næst á eftir astrocytoma og medulloblastoma (8,4).
Mynd 1. Ependyma. í umfrymi frumanna, næst
yfirborðinu, sjást litlar agnir, svokallaðir
blepharoplastar og eru þeir einkennandi fyrir
ependymafrumur (x!260) (1, fig. 105).
LÆKNANEMINN %>88-41. árg.
13