Læknaneminn - 01.10.1988, Side 30
hverrar tegundar um sig. Þar sem smásjárgreiningin
byggist á nákvæmri athugun á formi sveppanna er
nauðsynlegt, að sem minnst brenglun verði á
gróðrinum, áður en hann er smásjárskoðaður. Þess
vegna er endursáði gróðurinn látinn vaxa undir
þekjugleri og tekur sá vöxtur eina til tvær vikur. Hluti
gróðursins festist við þekjuglerið, sem síðan er tekið
varlega af ætinu, lagt í dropa af lactophenol cotton blue
lit á smásjárgleri og skoðað. Stundum reynist erfitt að
fá fram sérkennandi tegundarform.
Ef engir húðsveppir vaxa á upphaflegu sán-
ingarskálunum á þrem vikum er ræktun hætt og
lokasvar sent um viðkomandi sýni.
Svepparæktanir frá húð, hári
og nöglum 1985-1987.
Til Sýklarannsóknadeildar Landspítalans
bárust árin 1985-1987 að meðaltali um 500 sýni árlega
til svepparæktunar frá húð, hári og nöglum. Sýnin
voru langflest úr mönnum, en einstaka úr gæludýrum.
Tatla II sýnir íjöldahúðsveppa, ættir þeirra og tegundir
og einnig fjölda gersveppa og umhverfissveppa, sem
ræktuðust úr þessum sýnum. Athuga ber, að úr sama
sýni vaxa stundum bæði húðsveppir og annars konar
sveppir.
Aðalheimildir.
Rippon J. W. Dermatophytosis and Dermatomycosis.
In: Medical Mycology.
The Pathogenic Fungi and The Pathogenic
Actinomycetes.
W.B. Saunders Company 1982, 154-248.
E. Glyn V. Evans, James C. Gentles. Essentials of
Medical Mycology.
Churchill Livingstone 1985, 1-61.
I BU FE N
Gigtar- og verkjastillandi lyf
Helstu kostir ÍBUFENS eru:
* Þolist vel
* Fljót virkni
* Ódýr valkostur
R.F. TÖFLIJR; M 01 A E 01
Hvcr tafla inniheldur Ibuprofenum INN 200 mg, 400 mg eöa 600 mg.
Eiginlcikar: Ibuprófen er bólgueyöandi lyf meö svipaöar verkanir og
acctýlsalicýlsýra. Helstu áhrif eru bólgueyöandi, verkjastillandi og hitalækk-
andi verkun. I.yfið frásogast hratt eftir inntöku og helmingunarttmi í blóði
er u.þ.b. 2 klst. Um 60% útskilst í þvagi en 40% meö galli í saur. Prótcin-
binding í plasma er um 99%.
Ábcndingar:Bólgueyöandi og verkjastillandi lyf, ætlað til notkunar við
liöagigt, þegar acetýlsalicýlsýra þolist ekki. Lyfið má einnig nota sem vcrkja-
lyf eftir minni háttar aðgerðir. t.d. tanndrátt.
Frábendingar: Lyfið er ekki ætlað vanfærum konum. I.yfið skal ekki notað
ef lifrarstarfsemi er skert.
Aukavcrkanir: Ofnæmi (útbrot). Meltingaróþægindi svo sem niðurgangur
og ógleði. Lyfið skal nota með varúð hjá sjúklingum með tilhneigingu til
magasárs cða sögu um slík sár. l.ifrarbólgu hefur verið lýst af völdum lyfsins
(toxiskum hepatitis).
< Milliverkanir: Getur aukið virkni ýmissa lyfja svo sem hlóðþynningarlyfja
og krampalyfja.
Skammtastærð handa fullorðnum: Sjúkdómseinkenni og lyfjasvörun
ákvarða hæfilegan skammt hjá hverjum einstaklingi. Skammtar eru venjulcga
600—2000 mg á dag og ckki er mælt með stærri dagsskammti en 2400 mg.
Hæfilegt er að gefa lyfið 3—4 sinnum á dag í jöfnum skömmtum. Morgun-
skammt má gefa á fastandi maga til að draga fljótt úr morgunstirðleika. Viö
nýrnabilun þarf að minnka skammta.
Skammtastærdir handa börnum: Venjulegir skammtar eru 20 mg/kg lfk-
amsþunga á dag, gefið í 3—4 jöfnum skömmtum. Börnum. sem vega innan
við 30 kg, skal eigi gefa meira en S00 mg á dag.
Pakkningar:
Töflur 200 mg: 30 stk; 100 stk.
Töflur 400 mg: 30 stk; 100 stk.
Töflur 600 mg: 30 stk; 100 stk.
A
IYFJAVERSLUN RÍKISINS
BORGARTÚN 6, 105 REYKJAVÍK, ® 623900,
28
LÆKNANEMINN ^1988-41. árg.