Læknaneminn - 01.10.1988, Side 31

Læknaneminn - 01.10.1988, Side 31
Kölkun í míturlokuhring (anulus mitralis) Emil L. Sigurðsson læknir og Jón Þ. Sverrisson læknir Inngangur. I eftirfarandi greinarstúf ætlum við að kynna sjúkdóm í míturloku hjartans, sem kallaðurhefur verið mitral anular calcification eða kölkun í míturlokuhring (kím). Tiltölulega lítið hefur verið ritað um þennan sjúkdóm í íslenskum læknisfræðiritum og læknanemar fengið takmarkaða fræðslu. Kölkun í míturlokuhring hefur verið þekkt í klíniskri læknisfræði alltfráárinu 1908,erBonninger lýsti því fyrst (1). Almennt er talið, að kím sé góð- kynja fyrirbæri og í mörgum tilvikum hefur hún enga klíniska þýðingu (2). A hinn bóginn hefur ýmsum alvarlegum fylgikvillum verið lýst s.s.hjartsláttar- truflunum, áunninni míturloku-þrengingu og leka, leiðslutruflunum, blóðreka og hjartaþelsbólgu (1). Kölkun í míturlokuhring er almennt talin hrömunarfyrirbrigði, sem helst sést hjá eldra fólki. Krufningarannsóknir á gömlu fólki, sem haft hefur systólíst óhljóð, hafa sýnt, að kím er algengasti kvillinn sem finnst íhjarta þessaraeinstaklinga (1). Um algengi sjúkdómsins hefur þar til nýlega lítið verið vitað. Þannig hafa krufningar á fólki yfir fimmtugt sýnt algengistölur á bilinu 8,5%—13% (1,2,3,4). Faraldsfræðileg rannsókn, Framingham rannsóknin, sýndi að submitral kölkun fannst hjá 2,8% þeirra 5.694 einstaklinga sem rannsakaðir voru. Af þeim sem höfðu kím, voru 95 % eldri en 59 ára. Engin undir 45 ára aldri hafðisubmitralkölkun. Kynjahlutfallið var2:l konum í óhag, en munurinn eykst eftir sjötugt (5). Þekking manna á þessum sjúkdómi hefur vaxið mjög síðustu árin, og fjöldi greindra hefur aukist. Helsta ástæða þessa eru framfarir í greiningartækni, sérstaklega með tilkomu hjartaómskoðunar. Líffærafræði og meingerð. Míturlokuhringurinn er hluti af bandvefsgrind hjartans. Bandvefshringurinn hringar sig aðeins í kringum aftari hluta mitrallokunar og því hefur fremri hlutinn ekki raunverulegan míturlokuhring (anulus mitralis). Þess í stað er slegilsyfirborð fremra mítur- blaðsins í samfellu við ósæðarrót og loku. Miðlægi hluti míturlokuhringsins og miturlokunnar liggur nærri himnuhluta slegilsskiptarinnar (septum inter- ventriculare) (2,6). Því er augljóst að kölkun í mítur- lokuhring getur haft áhrif á leiðslukerfið, His búntið og greinar þess. Kölkun í míturlokuhring er sjaldan aðeins bundin við anulus einan, heldur teygir sig oft niður í hornið á milli aftara míturblaðsins og vöðvalags vinstri slegils. Ymsir telja því að nafnið “ mitral anular calcification “ sé ekki alveg hið ákjósanlegasta og hafa bent á “submitral calcification” sem líffærafræðilega réttara nafn (2). Kölkunin getur verið mjög víðtæk og teygt sig langt. Sjaldan veldur þetta þó kölkun í míturblöðunum sjálfum en getur myndað kalkhring í kringum blöðin sem stundum lyftir þeim í átt til forhólfsins. Þannig getur orðið veruleg aflögun á blöðunum þannig að þau falla ekki eðlilega saman og afleiðingin orðið míturlokuleki. Á hinn bóginn hefur einnig verið lýst míturlokuþrengingu sem afleiðingu af kím. Er skýringin á því oftast sú að kalkaður massi skagar inní opið og þrengir það. Kalkhrönglið í kím er talið klætt æðaþeli sem getur særst og þannig leitt til blóðreks. Kím hjá sjúklingum með langvinna nýmabilun er sérstætt á ýmsan máta. Ekki aðeins vegna þess að um yngri sjúklinga er að ræða, en þessir sjúklingar eru oft á aldrinum 30 — 60 ára, heldur er meingerðin á vissan hátt sérstæð (3). Kölkunin hefureinkennandi rúnnaðar eða hnútóttar útlínur og er oft samfara kölkun í chordae tendineae, musculi papilares og í trabeculae myocardii (7,8). Kölkun í öðrum hlutum hjartans sést stundum hjá sjúklingum með kím. Þannig hafa rannsóknir sýnt að allt að 25 ■— 84 % sjúklinga með kím hafa einnig þykknun eða kölkun í ósæðarloku (1,2). Kölkun í anulus tricuspidalis, er hins vegar miklu sjaldgæfari en kím, og er talin hafa allt aðrar orsakir. Kölkun þar sést LÆKNANEMINN M988-41. árg. 29

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.