Læknaneminn - 01.10.1988, Page 32

Læknaneminn - 01.10.1988, Page 32
Mvnd 1. M-mode echocardiogram of a patient with a mitral anular calcification (MAC). The dark band of echoes (>3mm) from the anulus is between the posterior mitral leaflet (PML) and the left ventricular posterior wall (LVPW). (IVS=inter-ventricuIar septum, AML=anterior mitral Ieaflet). því aðeins hjá örfáum sjúklinga með kím (9). Orsakir. Sá þáttur sem hvað helst er talinn orsakavaldur er hrörnun í bandvefsgrind hjartans (1). Ekki þarf að koma á óvart þó hrörnun eigi sér stað í míturlokuhring því mikið mæðir á lokunni og er talið að hún opnist og lokist u.þ.b. 2,5 — 3 billjón sinnum á einni mannsævi (2). Eins og áður hefur verið getið um er þetta fyrst og fremst sjúkdómureldrafólks. Hjá ungu fólki getur kím hins vegar sést samfara ýmsum efnaskiptasjúkdómum s. s. Marfan’s syndrome og Hurler’s syndrome, einnig samfara ýmsum sjúkdómum sem valda hypercalcemiu t. d. hefur þessu verið lýst hjá sjúklingum með langvarandi nýrnabilun sem hafa afleiddan hyper- parathyroidismus. Ymsar hugmyndir hafa verið uppi um tilurð kím hjá sjúklingum með langvarandi nýmabilun. Það sem virðist standa upp úr er hátt gildi fosfats og kalks í blóði. Um þátt hækkaðs para- thyroidhormóns í orsök er ekki nákvæmlega vitað. Þó virðist sem þeir sjúklingar með langvarandi nýrnabilun, sem undirgengist hafa parathyroid- ectomiu hafi síður kím. Háþrýstingur virðist ekki vera mikilvægur orsakaþáttur hjá þessum sjúklingum (7,8). Það er einnig eftirtektarvert að þessir sjúklingar hafa einnig mikið af mjúkpartakölkunum annarstaðar bæði í hjartalokum og öðrum hlutum hjartans. Margir sjúklingarmeð Marfan’s syndrome hafa kím. Þekkt er að þessir sjúklingar hafa margir hverjir míturlokuprolaps (1,2). Ekki er víst hvort truflun í bandvef míturlokuhrings eða aukið álag á lokubúnaðinn vegna míturlokuprolaps er orsök kím hjá þessum sjúklingum. Hins vegar er talið að hjá sjúkling með Hurler’s syndrome sé um innri truflun í bandvef lokunnar að ræða sem leiði til aukinnar kölkunar (5). í Framingham rannsókninni komu fram ýmsir þættir sem sáust oftar hjá sjúklingum með kím en öðrum. Þannig var kím talin algengari með auknum aldri og systólískur blóðþrýstingur hjá kalmönnum og offita hjá konum voru greinilegir sjálfstæðir áhættuþættir fyrir myndun submitral kölkunar. Rökrétt ályktun af framangreindu er því, að allt það sem eykur álag á míturlokuna flýti fyrir hrörnun hennar og valdi því frekar kím. Einn þáttur sem augljóslega eykur álag á míturlokuhring er aukinn sýstólískur þrýstingur í vinstri slegli. Hækkaður blóðþrýstingur, ósæðarlokuþrengsli og cardio- myopathia hypertrophica eru meðal orsakaþátta fyrir auknum sýstólískum þrýstingi í vinstri slegli og hefur verið lýst samfara kím. Tengsl háþrýstings við kím eru vel þekkt. I stórum hópum hefur allt að þriðjungur 30 LÆKNANEMINN M988-41. árg.

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.