Læknaneminn - 01.10.1988, Page 35
Mvnd 3. Left ventricular short-axis view of MAC. Subclassification of MAC, (1) medial location of
calcium located at the medial portion of the posterior mitrai anulus and also extending to the anterior mitral
leaflet (AML) close to the conduction system. (2) central-lateral location of MAC. (PML=posterior mitral
leaflet, PM=posteromedial, C=central, AL=anteroIateral).
á móti 54% einstaklinga í samanburðarhóp (3).
Almennt er þó talið að kím sé ekki undirliggjandi
heldur samverkandi orsök hjartabilunarinnar.
Systólísktóhljóð. Krufningarannsókniráeldra
fólki með systólískt óhljóð hafa sýnt að langoftast
finnst kölkun í míturlokuhring (1). Ymsum óhljóðum
með mismunandi staðsetningu, útleiðslu, lengd og
tíðni hefur verið lýst. Þar sem allt að 75 % sjúklinga
með kím hafa einnig kölkun í ósæðarrót eru skýringar
óhljóðanna vafalaust margar. Míturlokuleki er ein
skýringin, þá heyrist gjaman pansystólískt óhljóð yfir
broddi hjartans.
Diastólískt óhljóð. Diastólískt óhljóð heyrist
sjaldan hjá sjúklingum með kím. Þegar það heyrist er
það oftast talið stafa af turbulent flæði yfir míturlokuna
jafnvel þótt ekki sé um veruleg þrengsli að ræða (2,12).
Einkenni míturlokuþrengsla s.s. opening snap,
diastólic rumbling og presystólískt óhljóð heyrast því
afar sjaldan hjá sjúklingum með kím.
Greining.
Ymsar greiningaraðferðir hafa varið notaðar
við rannsóknir á kölkun í míturlokuhring. Helstu þrjár
aðferðirnar eru röntgenmynd, fluoroscopy og síðast en
ekki síst ómskoðun (echocardiography).
Röntgenmynd. Venjuleg röntgenmynd af
hjarta og lungum getur í sumum til vikum greint kölkun
í hringnum. Næmni rannsóknarinnar er þó ekki mikil
og líklega greinast ekki nema um 5 % sjúklinganna
þannig. Ástæða þessa er sú að kölkunin er ekki það
mikil að hún sjáist við venjulega uppleysingu
(resolution). Þegar kölkunin hins vegar sést birtist hún
oftast sem C, J, eða U laga kölkun í submitral horninu
(1). Sjaldan sést þetta sem órofinn hringur.
Skyggning (Fluoroscopy). Þetta er tiltölulega
næm greiningaraðferð. Með nákvæmri skyggningu á að
vera hægt að greina flestar kalkanir. Stundum getur þó
verið erfitt að greina kölkun í míturlokuhring frá kölkun
í lokublöðunum sjálfum. Skyggning er þó ekki notuð
sem hefðbundin rannsókn við greiningu á kím.
Ómskoðun (Echocardiography). Bæði ein
(m—mode) og tvívíddar ómskoðun af hjarta eru mjög
næmar við greiningu kím. Þetta er því aðalrannsóknin
sem notuð er við greiningu sjúkdómsins. Á m—mode
ómskoðunartæki greinist kím sem þétturóm—strengur
rétt fyrir neðan aftara míturlokublaðið, þessi þétting
hreyfist samsíða afturvegg vinstra slegils (1,2,16).
Með þessum hætti er einnig unnt að mæla þykkt
kölkunarinnar en eins og áður var vikið að var þykkt >
LÆKNANEMINN árg.
33