Læknaneminn - 01.10.1988, Page 51
“vikariati.” Að fá block (verða FV-lakare) er þó miklu
öruggari samningur, því þá er námstíminn skilgreindur
og að vissu marki skipulagður. Það þýðir þó ekki að
menn fái endilega betri menntun og mjög misjafnt er
hvemig mismunandi spítalar skipuieggja blockina og
misvel gengur að fara eftir því skipulagi.
SJÚKRAHÚSIN
Hver sýsla (lán) í Svíþjóð hefur sitt
Centrallasarett (aðalsjúkrahús) sem veitir alla alhliða
þjónustu og auk þess eru háskólasjúkrahús í Umeá,
Uppsala, Stockholm, Linköping, Göteborg, Lund og
Malmö. Ymist ráða menn sig fyrst á centrallasarett og
eru svo 1 -2 ár á háskólaklinik í lokin, eða fara beint á
háskólasjúkrahús. Hvortveggja hefur sína kosti og
galla. Þeir sem byrja á centrallasaretti komast oftast
miklu fyrr inn í alla rútínu og þurfa ekki að olnboga sig
áfram eins og oft vili verða á háskólaspítulum. Séu
menn búniraðeyðaeinu ári hérheima viðað vinnaíþví
fagi sem þeir ætla í skiptir það minna máli. Eins getur
verið erfitt að komast að á háskóladeild þegar það
hentar og hitt að menn þurfa að rífa upp sína fjölsky ldu
og flytja þegar kemur að því.
SÉRFRÆÐIRÉTTINDI
í aðalatriðum fá menn sérfræðingsréttindi eftir
að hafa uppfyllt skilyrði um ákveðinn tíma í faginu og
lokið ákveðnum skyldukúrsum. Hingað til hafa menn
orðið að ljúka 6 vikulöngum kúrsum. Ekki hefur verið
um eiginlegt sérfræðipróf að ræða. Þó er byrjað að
bjóða sérfræðipróf í ortopedíu og geislagreiningu
(röntgen). Ekki erskyldaað taka þessi próf, sem haldin
eru 1 -2 á ári, en það telst tvímælalaust mikill plús. Ég
spái því að ánæstu árum verði æ fleiri greinar sem bjóði
slík próf og hinu að þau verði gerð að skyldu. Fyrir
dyrum stendur auk þess nánast alger
endurskipulagning á framhaldsnámi lækna (á næstu
árum). Einnig á sér stað mikil umræða og hugsanlegar
breytingaráráðningarformi lækna. Þauráðningarform
sem stefnt er að myndu leiða til meira starfsöryggis
lækna og minna flakks milli stofnana á meðan námi
stendur og hugsanlega meiri möguieika á að halda
áfram starfi á þeirri deild sem menn hafa lært á.
LAUN
Þau munu vera á bilinu 13-14000 SEK á
mánuði, eða ca. 8 þúsund eftir skatt. Menn byrja í
lægsta flokki og ekki er tekið tillit til vinnu hér heirna
fyrr en menn hafa lokið vikulöngum kúrs til að fá
löggildingu sem læknir í Svíþjóð. A þessum
“legitimationskurs” er farið í heilbrigðislög og reglur,
lög um lyfseðla o.þ.h. Síðan hækka launin um einn
iaunaflokk árlega. Greitt er sérstaklega fyrir yfirvinnu,
en 30% af henni verða menn að taka út í launum.
Restinni ráða menn hvort tekið er út í fríi eða launum.
FILIS
Félag íslenskra lækna í Svíþjóð. í þvíeru nánast
allir læknar í framhaldsnámi í Svíþjóð. Félagið gefur
reglulega út meðlimaskrá sem hægt er meðal annars að
fá á skrifstofu læknafélaganna. Þar má finna nöfn
þeirra sem eru “ á staðnum “ og geta gefið upplýsingar
og verið “hjálplegir.”
LÆKNANEMINN Vim-41. árg.
49