Læknaneminn - 01.10.1988, Síða 58

Læknaneminn - 01.10.1988, Síða 58
félaganna og fengu upplýsingar um starfsemi og stefnu SHI beintíæð. Þamafórulíkaframumræðurumýmis mál og menn sögðu frá vandamálum sinna félaga. Meðal efnis voru: lánamál, byggingar á hjónagörðum, 1. des hátíðarhöldin, útvarp ROt, kennslu-mál, skipting fjarmagns í sjóði Stúdentaráðs og innri bygging stúdentaráðs. Það er stefnan að þessir fundir haldi áfram og verði grundvöllurinn að meiri áhrifum deildarfélaganna á stefnu SHI. Vonandi að svo verði. Þetta ýtir líka undir samstarf félaganna. Samstarf við önnur félög. Formaður F.L. bauð á síðasta hausti formönnum nema í Hjúkrunarfræði, Lyfjafræði lyfsala og Sjúkraþjálfun á fund, með það í huga að auka samvinnu félaganna á sem flestum sviðum. Formlega séð eru þessi félög í sömu deildinni, með sama deildarforseta, en raunverulega erum við með fjórar sjálfstæðar deildir sem hafa ekkert samstarf. Það er kannski að byrja á öfugum enda að stúdentar auki samvinnuna, á meðan að kennaramir vinna hver í sínu horni, en við reyndum. Viðúnnum í vetur að nokkrum málum, svo sem mötuneytismálið á Landsspítalanum, lesstofumálið í Eirbergi, merkispjöldin á Landsspítalanum, fram- kvæmd l.des hátíðahaldanna og síðast en ekki síst héldum við sameiginlega árshátíð. Auk þessa veittum við hvort öðru ýmsar upplýsingar sem að gagni koma. Þessar námsgreinar eru mjög ólíkar, en það þýðir samt ekki að ekki sé hægt að vinna saman, öllum til gagns og gleði, að einstökum málum. Auk þessa áttum við mörg minni samskipti við önnurdeildarfélög. Samstarfið við deildarstjórn Ásmundur Brekkan, með sinn harða svip og oft óblítt viðmót, hefur reynst okkur stúdentum vel í starfi Deildarstjóra Læknadeildar undanfarin tvö ár. Með sjálfstæði sýnu og réttsýni hjálpaði hann okkur mikið. Auðvitað voru árekstrar en oftast var gott að leita til hans. Þórður Harðarson er nýkjörinn Deildarforseti og óskum við honum velgengni í starfi. Um Deildarráð í heild má segjaað það varalltaf hlustað á og ræddar tillögur stúdenta, svo að ekki er undanþví að kvarta. Viðgetumhaftáhrif,efviðviljum og nennum. Við buðum Deildarráði og Kennslunefnd Læknadeildar í jólaglögg í vetur í félagsheimilinu, og víst er að ekki spillti það samkomulaginu. Samstarfið við Rektor Þó að Sigmundur vilji ólmur selja ofan af okkur lesstofuna á Tjarnargötu 39,sjá aftar, þá er hann ekki vondur maður. Hann reyndist vel viðræðuhæfur og tók vel okkar málflutningi. Hann hélt í vetur fund með formönnum allra nemendafélaganna og ræddum við þar meðal annars hlutverk háskólans, þ.e. hvort hér á að vera Akademía eða Verkmenntaskóli. Félagsheimilið að suðurgötu 26b. Við erum til húsa í gamla kofanum skáhallt upp af Skólabæ. Þar höfum við 3 herbergi á neðri hæð og 4 áefri hæð. DanskurLektorhýristíeinu herbergi áefri hæðinni. Húsið er illa byggt og illa farið, en í vetur fengum við Háskólann til að gera miklar endurbætur innanstokks, sem utan. Skippt á gólfum, nýr vaskur, rifnir veggir, lagaðar þakrennur og hitaveita og sjálf máluðum við allt húsið að innan og settum upp rimlagluggatjöld. Um leið tókum við til og komum til dæmis öllu fræðabúrinu og skjalasafni F.L. fyrir í góðu herbergi, útbjuggum sér tölvuherbergi og fundarherbergi. Skemmst er frá að segja að þetta var mikið verk, en gekk vel og sennilega höfum við núna besta félagsheimilið af öllum nemendafélögunum í H.í. Húsið mun hafa sögulegt gildi og verður því ekki rifið. Hinsvegar hefur Háskólin ekki ráð á að gera það fullkomlega upp svo að líkur eru á því að við höldum aðstöðunni einhver ár. Lesstofur Háskólinn hefur reynt í mörg ár að selja húsið að Tjamargötu 39, þar sem eru lesstofur læknanema í kjallara og á fyrstu hæð. Þótt undarlegt megi virðast, hefur engin viljað kaupa höllina og við því haldið lesplássinu. Um 30 manns hafa lesið þama á hverjum vetri. Til stóð að loka húsinu núna í haust, því að Háskólinn vill ekki púkka meiru upp á húsið. Ekkert skrítið við það, húsið er ónýtt. Á sama tíma er Læknadeild að fly tja út úr Ármúla 30 yfir í V atnsmýrina og missum við þaraðauki um20borð. FyrirhugaðarlesstofuríVatns- mýrinni verða ekki til fyrr en á næsta ári, og 56 LÆKNANEMINN árg.

x

Læknaneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.