Læknaneminn - 01.10.1988, Síða 62
aðallega úr þremur áttum. Félagsgjöld, ráðningagjöld
og úr félagsmálasjóði Stúdentaráðs. Helmingur
félagsgjalda fer til Læknanemans. Afgangurinn fer í
almennanrekstur.t.d. útgáfu Meinvarpaog Símaskrár,
kynningabæklinga ýmiskonar, styrkir tii utanfara á
ýmsar ráðstefnur, risnu stjómar og fleirra.
Félagið er stórt og hefur töluverð umsvif og
leggur læknanemum lið í hinum og þessum málum.
Með því að kaupa félagsskírteini styrkja læknanemar
félagið beint, en í staðin fá þeir áskrift að
Læknanemanum, möguleika á læknastöðum og
ódýrara inn á böll félagsins.
Fræðslunefnd
Á síðastliðnu starfsári, stóð fræðlunefnd fyrir
fundum, námskeiðum og gagnasöfnun fyrir
fræðabúrið. Fjórir fræðslufundir voru haldnir á
starfsárinu. Snemma hausts var haldinn fundur í
samvinnu við Félag lækna gegn kjamorkuvá. Þar var
starfsemi félagsins kynnt og fjallað um kjarnorkuna.
Einkum var fjallað um hlutverk læknanema og lækna í
baráttunni gegn kjarnorkuvá. “Náttúrulyf-
Náttúruefni1' varnæstafundarefni. Þarhöfðu framsögu
Ævar Jóhannesson, Magnús Jóhannsson og Jónas
Kristjánsson. Síðan svöruðu þeir fyrirspurnum, og
varð umræðan ansi lífleg á köflum. Fundurinn var
mjög fróðlegur og vel sóttur. Þriðji fundurinn fjallaði
um Syndina, og var haldinn í samvinnu við Félag
Hjúkrunarfræðinema. Fulltrúar frá Samtökunum um
sorg og sorgarviðbrögð sáum um fundinn, sem var
mjög athyglisverður og fjallaði um efni sem
læknanemum er nauðsynlegt að hugsa um. Það er því
mjög dapurt hvað læknanema mættu illa, en hinsvegar
komu margir lyfjafræðinemar. Fulltrúar samtakanna
buðust til að halda annan fund um sama efni fyrir
læknanema og lyfjafræðinema og rætt var um að hafa
hann núna í haust. Það er óskandi að læknanemar sýni
nú meiri áhuga, því að það er hverjum verðandi lækni
nayuðsynlegt að vita um sorg og viðbrögð fólks við
henni.
Síðasti fundur vetrarins fjallaði um
heilbrigðismálí3. heiminum. ÁstríðurStefánsdóttirsá
um fundinn og var hann mjög athyglisverður. Því
miður var mjög fámennt en í staðin góðmennt og fór
fundurinn fram yfir kaffibollunum á Gauki á Stöng.
Annað starf Fræðlunefndar var að afla gagna í
Fræðabúrið. Þar með talin eru próf og verkefni og
ýmislegt annað, sem mönnum dettur í hug að komið
geti að gagni í náminu. Ég þakka síðan fyrir samstarfið
á síðasta starfsári. Mér þykir að vísu að læknanemar
mættu mæta betur á fræðslufundi. Þeir fjalla oft um
efni sem ekki fær neitt pláss í náminu, en sem
læknanemar hafa gott og gaman af að kynnast. Einnig
skora ég á félags menn að koma með hugmyndir að
fundarefni og aðrar hugmyndir um störf fræðslu-
nefndar, svo að hún geti sinnt hlutverki sínu enn betur
en ella.
F.h. fræðslunefndar, Gerður Aagot Ámadóttir
Frá Hópslysanefnd
Starf nefndarinnar fólst í því að halda
skyndihjálparnámskeið sem um 60 mans sóttu. Einnig
stóð hún fy rir heimsókn í stjórnstöð almannavama, sem
var mjög fróðleg en fámenn. Meira nenntum við
haugarnir ekki að gera, en starfsmöguleikar
nefndarinnar eru nánast óþrjótandi og vonandi að
kraftur færist í starfið.
F.h. hópslysanefndar, Hildur Einarsdóttir
Læknaneminn
Fyrra tölublað ársins 1988 skaut upp kolli í lok
aprílmánaðar. Síðara tölublaðið (þetta blað) lætur sjá sig
í kringum áramótin. Mikil breyting hefur átt sér stað á
vinnslublaðsins,höfundar hafaskilað greinum sínum
inn á diskettu og ritnefnd hefur dundað sér með textann
fyrir framan skjá tölvunnar og sett upp blaðið. Sparar
þetta pening fyrir félagið en eykur vinnu ritnefndar.
Ritstjóri.
60
LÆKNANEMINN Vi988-41. árg.